02.04.1968
Neðri deild: 89. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 1067 í B-deild Alþingistíðinda. (947)
179. mál, vegalög
Halldór E. Sigurðsson:
Herra forseti. Því miður hef ég e.t.v. misst eitthvað af því, sem hæstv. samgmrh. sagði í sambandi við ræðu mína, vegna fundarhalda, sem ég og aðrir þm. Vesturl. tóku þátt í með mönnum þaðan vestra, en ég vona, að það hafi ekki verið til tjóns, því að það mikið heyrði ég af ræðu hæstv. ráðh., að ég fann viðhorf hans til ræðu minnar.
Í sambandi við hraðbrautanefndina sagði hæstv. ráðh., að hún hefði undirbúið áætlun, en samkv. henni ætti að hefja framkvæmdir í sambandi við varanlega vegi í landinu. Út af þessu vil ég segja það, að vegamálaskrifstofan undirbjó lagningu Keflavíkurvegarins, og ég hef aldrei heyrt, að það hafi verið deilt á þá stofnun fyrir það, að undirbúningur að því verki hafi ekki verið nægjanlega vel af hendi leystur, svo að ég sé ekki, að þrátt fyrir það, þó að þeir góðu menn, sem sitja í þessari n. eins og aðalbankastjóri Seðlabankans og forstöðumaður Efnahagsstofnunar, séu til margra hluta góðir, þá hélt ég, að þeir væru ekki öðrum mönnum færari að undirbúa verkfræðilegar áætlanir um vegagerð. (Landbrh.: Þm. hefur nú ekki heyrt það, sem ég sagði.) Ég heyrði þennan þátt samt. Ég heyrði ekki, hvort hæstv. ráðh. svaraði því, sem ég óskaði eftir um samanburð á álögum á umferðina hér og í öðrum löndum, sem hann vitnaði til og sagði, að væru ekki meiri hér en í þeim löndum, sem hann nefndi. Þá spurði ég um það, hvort hann ætti aðeins við þá skatta, sem hér væri verið að fjalla um, eða aðrar álögur eins og tolla og sérleyfisgjöld, söluskatta og það, sem við tökum af umferðinni hér. Ég treysti því, að hæstv. ráðh. láti mig heyra svar við þessu síðar, því að það skiptir verulegu máli.
Hæstv. ráðh. sagði, að fjármagn það, sem væri tekið til vegamálanna og ég vildi ná frá ríkissjóði, væri tekið frá fólkinu í landinu. Þetta eru ekkert ný sannindi. Þessir skattar, sem hér er verið að hækka, eru líka teknir af fólkinu í landinu. Bifreiðaeign landsmanna er orðin mjög almenn, og auk þess hefur þetta áhrif á flutninga í landinu að verulegu leyti og kemur það m.a. fram í grg. frv., þar sem að þessu er vikið og upplýst er, að það muni hækka mjólkurlítrann um 12–14 aura vegna aukinna flutningsgjalda. Þess vegna er hér um almenna skatta að ræða, og þeir eru teknir frá fólkinu alveg hreint eins og þeir skattar, sem við viljum, að sé skilað til umferðarinnar — og kannske þó þessum enn þá frekar.
Það, sem ég tel, að hafi verið gert með vegal. 1963, var, að mörkuð hafi verið þá af Alþ. sú stefna, að sérskattarnir af umferðinni í landinu skyldu vera notaðir til vegamála. Þessir sérskattar, sem eru eingöngu miðaðir við bíla, eru benzínskattur, þungaskattur, gúmmígjald og leyfisgjald af bifreiðum. Þessir fjórir skattstofnar eru sérskattar, og það var laukrétt stefna miðað við það, að Vegasjóður stæði fyrir öllum vegaframkvæmdum í landinu. Þá bar einnig að afhenda honum leyfisgjaldið af bifreiðum, vegna þess að það er sérskattur, og það er það, sem við höfum deilt við hæstv. vegamálaráðh. um, að þessi skattur var eftir skilinn. Það er brot á þeirri grundvallarreglu, sem l. eru byggð á, en við höfðum ekki gert till. um það að taka almenna tolla. Við höfum farið fram á leyfisgjaldið, og það er alveg í samræmi við l., og það er algjört brot á grundvallarreglunni, að þessi sérskattur skuli ekki vera einnig látinn ganga til Vegasjóðs auk þess, sem öllum er ljóst, sem vilja hugsa málið raunhæft, að Vegasjóði mun nú ekki af veita. Hæstv. ráðh. sagði, að það mætti segja það, að Vegasjóður hefði þá seilzt eftir tekjumöguleikum ríkissjóðs, þegar t.d. voru hækkaðir 1965 þessir skattar, sem nú er verið að hækka. Það er ekki svo, vegna þess að löggjöfin er búin að marka þessa stefnu, að sérskattarnir tilheyri Vegasjóði, og hlutverk Vegasjóðs á svo að vera að byggja upp vegakerfið í landinu, en ríkissjóður á ekki að hagnýta sér þessa skatta eins og benzínskatt, þungaskatt og gúmmígjald og ekki heldur leyfisgjöldin. Það er rétt. Þannig á það að vera, meðan þessi stefna ríkir um framkvæmd vegamálanna og uppbyggingu þeirra í landinu.
Hæstv. ráðh. sagði, að ósköp hefði tal mitt verið ábyrgðarlaust. Honum leið bara illa vegna þess, hæstv. ráðh., að menn skyldu tala af svona miklu ábyrgðarleysi og láta eins og þeir skildu ekki hlutina.
Nú ætla ég ekki að fara að deila við hæstv. ráðh. um ábyrgð og ábyrgðarleysi, og ég veit ekki, hvort hæstv. ríkisstj. hefur efni á því að tala um ábyrgðarleysi í athöfnum annarra, ef hún lítur á sínar eigin framkvæmdir. Ég dreg það mjög í efa, þegar litið er á athafna- og framkvæmdasögu hæstv. ríkisstj. undanfarin góð ár og þær aðgerðir, sem hún annað veifið hefur verið að beita í þjóðmálunum, að henni farist mikið að tala um ábyrgðarleysi.
En svo að ég snúi mér að þessari spurningu um ríkissjóð og að því, hvort ríkissjóður hafi lagt til vegamálanna núna eins og ætlunin var, þá vil ég benda hæstv. ráðh. á það, að það hefur verið gengið nokkuð frjálslega um afgreiðslu fjárl. bæði fyrr og nú, t.d. árið 1965 eða við fjárlagaafgreiðslu fyrir árið 1966, þegar þessi hæstv. ráðh. var fyrst neyddur til — en ég tel, að hann hafi verið neyddur til þess — að fella niður 47 millj. kr., þá var talað um ábyrgðarleysi af okkur, og við lögðum til að taka þær inn á fjárl. og töldum nauðsynlegt að sjá fyrir tekjum til að mæta þeim. En hvað fóru tekjur fjárl. mikið fram úr áætlun það ár? Tæpar 900 millj. kr. Halda hv. þm., að það hefði verið mikið ábyrgðarleysi, þó að Alþ. hefði bætt á útgjöld fjárl. 47 millj. kr. þá? Nei, það var ekki ábyrgðarleysi í sambandi við fjárlagaafgreiðsluna. Og hvað hefur gerzt í sambandi við fjárl. núna. Það var talað um ábyrgðarleysi, þegar við fluttum smá till., sem var 1–2% af heildarútgjöldum fjárlagafrv. En ríkisstj. gekk í það eftir mánuð eða ekki það að ákveða ríkissjóði útgjöld á fjórða hundrað millj. kr. útgjöld, sem fjárl. gerðu ekki ráð fyrir. Ég veit það, að það voru nauðsynleg útgjöld.
En fé til vegamála er líka nauðsynlegt, og vegamálin í okkar landi eru eitt af grundvallarmálunum og undirstaða í sambandi við atvinnulíf okkar og viðskiptalíf í landinu. Hæstv. ríkisstj. hikaði sem sé ekki við að stofna til sem nam 320 millj. kr. auknum útgjöldum, en það var ábyrgðarleysi að biðja um 47 millj. kr. handa Vegasjóði. Og hvað gerði hæstv. ríkisstj. þá? Hún hækkaði áætlun um áfengi og tóbak um 50 millj. kr. Það tók hana ekki langan tíma að gera það. Hefði ekki hæstv. samgmrh. getað komið því til leiðar, að þessi ákvörðun hefði verið tekin í sambandi við verðið á áfengi og tóbaki, til þess að Vegasjóður fengi sitt? Það var ekki meira ábyrgðarleysi en það, sem hann samþykkti og hæstv. ráðh. aðrir eftir nokkra daga. Því var líka haldið fram í sambandi við fjárlagaafgreiðsluna, að tollarnir yrðu lækkaðir um 250–270 millj. kr. Þegar framkvæmdin kom, voru það 159 millj. kr. Var þetta ekki ábyrgðarleysi að vera búnir að halda því fram fyrir nokkrum dögum, að það ættu að vera 250–270 millj. kr.? Þetta var ekki stjórnarandstaðan. Þetta voru hæstv. stjórnarsinnar, ráðh., sem sögðu þjóðinni þetta, og svo kemur hæstv. samgmrh. og talar um það mikla ábyrgðarleysi að láta sér detta það í hug, að það hefði verið hægt að bæta í ríkissjóð einhverjum auknum útgjöldum vegna Vegasjóðs.
Hv. 12. þm. Reykv., Ólafur Björnsson, sagði í umr. í hv. Ed. fyrir nokkrum dögum í sambandi við ráðstöfun um að draga úr útgjöldum ríkissjóðs, að það væri vel hægt að hugsa sér að reka ríkissjóðinn með halla einhvern tíma; það væri matsatriði. Og auðvitað er þetta rétt hjá hv. þm., að það getur verið matsatriði, hvort það á að reka ríkissjóð með halla eitt ár eða ekki. Út af fyrir sig er ég ekki hrifinn af því, en þetta getur þó verið hugsanlegt, að sé skynsamlegt að gera. Það er ákveðin stefna, fjármálapólitíkin í það og það skiptið, sem ræður. Og ég er sannfærður um það, að á fjárl. ísl. ríkisins, sem eru á sjöunda milljarð, skipta 50–100 millj. kr. ekki orðið verulegu máli. Áætlunin er þannig, að það mun ekki breyta miklu nema í einstaka tilfellum, þó að henni sé þannig breytt. En hæstv. samgmrh. sagði, að það skipti engu máli með það, þó að ríkissjóður hefði hætt að leggja til Vegasjóðs 47 milljónirnar, vegna þess að Vegasjóði hefði verið bætt það upp. En ég spyr: Skipti það þá nokkru máli fyrir Vegasjóð í upphafi að fá þessar 47 millj. kr.? Ef það skiptir engu máli, þegar hann tapar þeim, hafa þær ekki skipt hann máli, þegar hann fékk þær.
Ég hef svo sem gert það áður og vil þó enn á ný minna á það, að hæstv. samgmrh. hafði aðra skoðun á þessu máli, þegar hann 19. des. 1963 lýsti þessu yfir ásamt mörgu fleira í ræðu hér á hv. Alþ., sem ég vil, með leyfi hæstv. forseta, vitna til. En þá segir hæstv. ráðh.:
„Og einmitt vegna þess er engin hætta á því og alveg útilokað, að ríkisframlagið verði lækkað. Það er alveg útilokað. Og þörfin fyrir aukið vegafé frá ríkissjóði verður fyrir hendi, þótt vegamálunum hafi verið tryggt fé með benzíngjaldi, gúmmígjaldi og þungaskatti.“
Heldur hæstv. samgmrh., að þegar hann mælti þessi orð, hafi hann haft þá skoðun, að það skipti engu máli, hvað ríkissjóður legði til vega? Nei, ég er ekki að efa það, að auðvitað var hæstv. samgmrh. það ljóst, að það skipti máli, og honum er þetta ljóst enn þá, og ég er sannfærður um það, að hæstv. samgmrh. var neyddur til þess að gera þetta. Og hann á auðvitað að kippa þessu í liðinn aftur; annað hæfir ekki. Og það eru svo margfaldir möguleikar til þess, að það er óþarfi að vera að deila hér á hv. Alþ. um atriði, sem þm. komu sér allir saman um, að skyldi vera. Og einmitt í umr. um vegal. var lögð rík áherzla á það, að ríkissjóður hagnýtti sér ekki þessa nýju skatta til þess að hætta við framlagið úr ríkissjóði og það var það, sem hæstv. samgmrh. var að undirstrika, þegar hann sagði þetta, sem ég vitnaði hér til áðan.
Ég vil líka segja það, að það er á misskilningi byggt, að það hafi bætt þetta upp, þó að hæstv. ráðh. hafi síðar beitt sér fyrir að hækka skattana, þ.e. benzíngjaldið, þungaskattinn og gúmmígjaldið, eins og hann er að gera núna. Það gerði það ekki. Nýjar álögur voru lagðar á umferðina til þess að fylla upp í þetta skarð, en þær gerðu lítið meira. Þess vegna hefur nú orðið að fara enn á ný af stað til þess að afla nýrra tekna til þess að reyna að mæta að einhverju leyti þörfinni, sem er á auknu fé til vega. Og það þarf ekkert um að deila, að þetta var leiðinlegt atriði og það mjög leiðinlegt, og tjón Vegasjóðs stendur, þangað til úr þessu verður hætt. Og það er það, sem á að gera núna. Ríkissjóður á að útvega fé — með láni ef þeir treysta sér ekki til að taka af eigin tekjum, sem ég tel, að skipti nú litlu máli, eins og búið er að fara með fjárl. nú — til þess að leggja fram það fé, sem þessum sköttum er ætlað að afla á þessu ári.
Það, sem hæstv. samgmrh. sagði um Útflutningssjóð og árið 1958, skal ég ekki eyða löngum tíma í að ræða nú. Við höfum gert það svo oft, ég og hæstv. samgmrh., en ég vil enn á ný lýsa því yfir, að hlutverk Útflutningssjóðs var það að mæta þeim halla, sem var orðinn, vegna þess að gengið var ekki lækkað, og þess vegna var hluta hans — teknahluta — aflað með almennu álagi á innflutninginn, sem nálgaðist gengisbreytingu. Síðan er búið að gera gengisbreytingu þrisvar sinnum, svo að hlutverk Útflutningssjóðs er nú algerlega úr sögunni, og ekki er hægt að bera saman þær tekjur, sem til hans gengu 1958, og þær tekjur, sem ganga til ríkissjóðs nú.
En þó að ég gangi inn á það sjónarmið hæstv. ráðh. að gera dæmið upp á þann hátt og taka tölurnar, sem ég las hér upp áðan og voru fengnar úr opinberum skýrslum, er það svo, að 1957 voru notuð til veganna í landinu 59% af þessum tekjum, 1958 50,9%, 1965 35,8% og 1966 32%. Árið 1967 mun þó verða enn þá óhagstæðara í þessum samanburði heldur en þau ár, sem ég vitna til, vegna þess að það hefur æ gengið lengra í þá átt að taka auknar tekjur af umferðinni hlutfallslega meira en til hennar hefur gengið.
Hæstv. ráðh. taldi, að ég liti ekki raunhæft á þessi mál, sem hér væri um að ræða. Ég skal nú ekki eyða löngum tíma í að deila um það, en ég vil undirstrika það og tel það raunhæft, að það, sem hér er að gerast, er ekki það, að verið sé að afla þess fjármagns, sem þarf til að byggja upp vegakerfið í landinu með varanlegum hætti. Hér er aðeins verið að afla fjár til þess að leysa úr þörfum til bráðabirgða, og það verður farið til fanga eftir stuttan tíma aftur, sér í lagi ef eitthvað á að aðhafast, sem bragð er að.
Ég undirstrika það, að það er ekki hægt að leysa vegamálin í landinu með því að gera varanlega vegi, þá þjóðvegi, sem ekki hafa verið lagðir enn þá, og hringveg um landið, nema ríkissjóður skili umferðinni að nokkru leyti aftur þeim tekjum, sem hann hefur þaðan nú. Það er ekki hægt að byggja upp vegakerfið í landinu með því að bæta alltaf sköttum á umferðina. Hér er komið það langt í þeim efnum, að þaðan verða ekki fjármunirnir teknir. Þess vegna segi ég það, að það er raunhæft að líta þannig á málið, að ef við ætlum að gera stórátak til uppbyggingar vegakerfisins, verður það ekki gert með öðrum hætti en þessum peningum sé skilað aftur. Ef menn treysta sér ekki til þess, verðum við að horfast í augu við það, að við höldum áfram að lappa upp á vegina, eins og við gerum nú og höfum gert.
Hæstv. ráðh. sagði, að við kynnum ekki að meta þetta mál rétt og mundum ekki afla okkur vinsælda á því. Það er nú vont, ef það verður hryggðarefni þessa hæstv. ráðh., að við, þm. í stjórnarandstöðu öflum okkur ekki vinsælda. En það verður þá að taka því. Við metum þetta mál, eins og það er. Ég hef lýst skoðun framsóknarmanna á málinu og því, hvað þurfi til þess að taka raunhæft á vegamálunum, og það mun sýna sig, að það verður það, sem að verður horfið, þegar verður farið að byggja vegakerfið upp í landinu, og hæstv. ráðh. má eiga sínar vinsældir út á slíkar framkvæmdir í vegamálum, sem hér er verið að hafa forgöngu um.