06.04.1968
Neðri deild: 92. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 1082 í B-deild Alþingistíðinda. (951)
179. mál, vegalög
Magnús Kjartansson:
Herra forseti. Þetta frv. er aðallega rökstutt með því af hálfu hæstv. samgmrh. og ríkisstj., að með því sé verið að undirbúa mjög víðtækar áætlanir um lagningu hraðbrauta á næstu árum — mjög stórfelld áform, sem hæstv. ráðh. hefur gert nokkra almenna grein fyrir. Hann hefur þar rætt um upphæðir eins og 1500 millj. kr. á tiltölulega skömmum tíma. Ég held, að við þurfum að gera okkur það ljóst, að áform eins og þessi eru að sjálfsögðu háð því, að hin almenna þróun efnahagsmála og atvinnumála í landinu sé slík, að við getum lagt svo mikla fjármuni í þessar þarfir. En mér finnst algjörlega skorta þessa undirstöðu í málflutningi hæstv. ríkisstj.
Mér varð sérstaklega hugsað til þess í gær, þegar ég hlýddi á einkar fróðlega, skemmtilega og íhugunarverða ræðu, sem hæstv. forsrh. flutti hér um atriði, sem tengd eru stjskr., að það hefur skort mjög á það í vetur, að þessi hæstv. ráðh. hafi á sama hátt gert grein fyrir þeim nærtæku verkefnum, sem eiga að vera aðalstörf hans. Það er verkefni hæstv. ráðh. að leggja hér á ráðin fyrir hönd ríkisstj. um þróun efnahagsmála og atvinnumála. En þótt þingið hafi nú setið að störfum í næstum því hálft ár, minnist ég þess ekki að hafa heyrt þennan hæstv. ráðh. gera grein fyrir þeim vandamálum af sama skýrleika og á jafníhugunarverðan hátt og hann gerði grein fyrir sögulegum vandamálum í ræðu sinni hér í gær. En þetta er auðvitað algjört meginatriði í sambandi við framtíðaráform eins og lagningu hraðbrauta. Og það er ekki nóg með það, að hæstv. forsrh. og aðrir ráðh. hafi verið mjög þagmælskir um þessi undirstöðuatriði í störfum ríkisstj., heldur hafa verk þeirra sýnt, að þeir vita ekki, hvernig þeir eiga að halda á málum.
Störf okkar hér í vetur hafa að miklu leyti snúizt um það að vera að ákveða hvers kyns ráðstafanir, sem einatt hafa rekið sig hver á aðra. Í þingbyrjun tókum við til við frv. um efnahagsaðgerðir, sem að sögn hæstv. forsrh. átti að koma í veg fyrir gengislækkun. Þessu næst kom svo gengislækkunin og átti samkv. skýringunum að koma í veg fyrir styrki og uppbætur. Þar á eftir komu svo styrkir og uppbætur. Við höfum þrívegis farið ofan í fjárl., sem breytt var mjög stórlega hverju sinni. Við höfum að undirlagi hæstv. ríkisstj. fellt niður ákvæði um vísitölugreiðslur á kaup, en síðan hefur ríkisstj. fallizt á vísitölugreiðslur á kaup að sínu leyti. Þannig gæti ég rakið dæmin eitt af öðru. En á meðan sjálf undirstaðan í athöfnum hæstv. ríkisstj. er þvílíkt ráðleysi, fæ ég ekki séð, að hægt sé að festa allt of mikinn trúnað á hugmyndir um hagnýtingu á einum til tveimur milljörðum kr. á næstunni til vegalagningar í landinu. Vegir, bifreiðaeign og bifreiðaakstur eru allt saman þjónustustarfsemi, og því aðeins getum við rækt þá þjónustustarf- semi eins og nauðsynlegt er, að sjálf undirstaðan atvinnuvegirnir og efnahagskerfið — sé það öflugt, að nægilegt fé verði aflögu til slíkra þjónustuverkefna.
En ástandið í atvinnumálum er engan veginn á þá leið, eins og við vitum. Það eru ekki nema nokkrir dagar, síðan stjórnarflokkarnir í Ed. felldu frv. Alþb.-manna um, að hafizt yrði loksins handa um endurnýjun togaraflotans. Við vitum allir, hvernig ástatt er með bátaflota okkar eða frystiiðnaðinn. Við höfum lesið það í blöðunum að undanförnu, að frystihúsin neiti að taka á móti karfa. Allt er í óvissu um það, hvernig síldveiðum verður háttað í sumar. Ég held, að það hefði verið ákaflega mikil nauðsyn, að hæstv. forsrh. hefði flutt meiri háttar ræðu hér í þingi, áður en hann sendi þingið heim, til þess að gera grein fyrir því, hvernig hæstv. ríkisstj. hugsar sér að leysa þessi nærtæku og stórfelldu vandamál, þ.e. ef hæstv. forsrh. telur sig hafa jafngóð tök á því viðfangsefni og hann reynist hafa á sögulegum viðfangsefnum. En allt umtal um hraðbrautalagningu svífur gersamlega í lausu lofti, nema þessi undirstaða sé algerlega traust. Þetta verðum við allir að horfast í augu við.
Um sjálft frv., sem hér liggur fyrir, ætla ég ekki að ræða sérstaklega eða einstaka liði þess. Það hefur verið gert ítarlega, og komið hafa fram ýmsar markverðar röksemdir. Ég vil benda þm. sérstaklega á röksemdir þær, sem koma fram frá samtökum vörubifreiðastjóra. Mér sýnist þeir færa fram mjög sterk rök, sem þm. beri að taka tillit til. En það var eitt atriði annað, sem mig langaði til að ræða örlítið við hæstv. samgmrh. einmitt í sambandi við áformin um hraðbrautir og erlendar lántökur til þeirra. Hæstv. ráðh. hefur greint svo frá, að hann geri sér vonir um, að hægt verði að fá 40% lán hjá Alþjóðabankanum til slíkra framkvæmda. Ef gert væri ráð fyrir 1500 millj. kr. framkvæmdum, ætti lánið að geta orðið 600 millj. kr. Hins vegar hefur hæstv. ráðh. sagt oftar en einu sinni bæði hér innan þings og utan, að skilyrði þess, að hægt væri að fá erlend lán til slíkra framkvæmda, væri, að verkið væri undirbúið af erlendum verkfræðingum. Ég hygg, að í sambandi við þessa vegáætlun hafi hæstv. ráðh. eða starfsmenn hans haft samband við danskt fyrirtæki, KAMPSAX. Og mér skilst, að gert sé ráð fyrir því, að þessu erlenda verkfræðifyrirtæki verði greiddar býsna háar upphæðir til þess að sinna þessum verkefnum — margar millj. kr. Nú hef ég aldrei fengið fullnægjandi skýringu á því, hvers vegna það er talið rétt og nauðsynlegt að ganga fram hjá okkar eigin sérfræðingum á þessu sviði. Þegar hæstv. ráðh. vék að þessu í útvarpi fyrir rúmu einu ári, gerði félag ráðgjafarverkfræðinga íslenzkra aths. við þessi ummæli ráðherrans og vefengdi þar sérstaklega, að það væri nauðsynlegt að láta erlenda verkfræðinga annast undirbúning verka, ef hægt ætti að vera að fá til þeirra lán frá erlendum lánastofnunum. M.a. var komizt svo að orði í þessari aths. félags ráðgjafarverkfræðinga:
„Þessi ummæli ráðherrans eru villandi, og má í því sambandi benda á, að til virkjunar Laxár á árinu 1952–53 fengust erlend lán, og höfðu þó íslenzkir verkfræðingar staðið að undirbúningi þess verks. Til hitaveituframkvæmda Reykjavíkurborgar hafa fengizt lán úr Alþjóðabankanum, en undirbúning þeirra framkvæmda önnuðust íslenzkir verkfræðingar. Til Keflavíkurvegar fengust að hluta erlend lán, og var þó undirbúningur hans innlendur. Að vísu hafa útlendir verkfræðingar annazt undirbúning Búrfellsvirkjunar og Straumshafnar, en þar með er ekki sagt, að ekki hefði mátt fela þann undirbúning íslenzkum verkfræðingum eða að þeir hefðu ekki verið færir um að sjá um hann. Það hlýtur að vera hagsmunamál þjóðarinnar að nýta innlendan vinnukraft á þeim sviðum, þar sem hann er tiltækur.
Að því er varðar tæknilegan undirbúning verka, er staðþekking mikils virði, og ætla má, að íslenzkir verkfræðingar séu íslenzkum staðháttum að öðru jöfnu betur kunnugir en erlendir starfsbræður þeirra. Kostnaður við undirbúninginn verður minni, ef hann er gerður hér innanlands, og Íslendingurinn skilar allverulegum hluta hans til ríkis og bæja í sköttum, en slíku er ekki til að dreifa, þegar leitað er til erlendra aðila.“
Þannig komst félag ráðgjafarverkfræðinga að orði í fyrra í aths. um það, þegar hæstv. ráðh. taldi, að undirbúning að vegáætlun yrðu erlendir verkfræðingar að vinna. Og það má minna á ýmis fleiri mannvirki, sem veitt hefur verið til erlent lánsfé, sem undirbúin voru af íslenzkum aðilum, og samt hafa fengizt til þeirra lán á greiðan hátt, t.d. Grímsárvirkjun, Mjólkárvirkjun, Fossárvirkjun í Bolungarvík o.fl.
Ég held, að hæstv. ríkisstj. hafi tekið upp ákaflega háskalega stefnu, að því er varðar íslenzka sérfræðinga — ekki sízt verkfræðinga og verktaka. Alls konar verkefni á þeim sviðum hafa verið opnuð fyrir útlendingum algerlega að óþörfu — a.m.k. oft og einatt. En við skulum gera okkur það ljóst, að einmitt verkmenning og sérþekking eru ákaflega þýðingarmiklar undirstöður í hverju þjóðfélagi. Og ef við látum innlend verktakafyrirtæki og innlenda verkfræðinga lenda undir í samkeppni við útlendinga, erum við að brjóta niður mikilvæga þætti í þjóðfélagi okkar. Þetta er án efa mjög mikilvægt atriði, og ég vil beina því mjög eindregið til hæstv. samgmrh., að hann íhugi á nýjan leik gaumgæfilega, hvort ekki er bæði fært og sjálfsagt að láta íslenzka aðila undirbúa áætlanir um hraðbrautir, ef svo vel tekst til, að þróun atvinnumála og efnahagsmála verði slík, að unnt verði að framkvæma þessi áform á næstu árum, eins og við vonum að sjálfsögðu allir.