06.04.1968
Neðri deild: 92. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 1095 í B-deild Alþingistíðinda. (957)
179. mál, vegalög
Björn Pálsson:
Herra forseti. Ég ætla ekki að blanda mér inn í talnadeilur þeirra hæstv. samgmrh. og hv. 1. þm. Vestf., enda báðir vel færir á því sviði. En ástæðan fyrir því, að ég var með því að heimila lántöku, var sú, að ég leit svo á, að ríkisstj. þyrfti að fá meira fé en hún hefur til að geta annað þeim framkvæmdum, sem nauðsynlegt er að gera til viðhalds veganna, vegna vegaskemmda, sem urðu, og annarra slíkra hluta. Ég fyrir mitt leyti hefði því gjarnan viljað hafa lánsheimildina lægri, en taldi þó, að eðlilegt væri, að hún væri einhver af þessum ástæðum. Það var ekki neinn ágreiningur hjá okkur um það, að það væri æskilegt að leggja hraðbrautir og bæta vegi. Við getum allir verið sammála um það. En við teljum, að eins og útlitið er, sé ekki hægt að leggja á skatt, sem á að nema á árinu 1969 um 160 millj. kr. og fara upp í 190 millj. kr. eftir því, sem ráðh. gerði áætlanir um, og bæta því ofan á alla þá skatta, sem fyrir eru. Nú vitum við, að það eru fleiri hundruð millj. kr. í sköttum, sem eru lagðir á bifreiðarnar og renna beint til ríkissjóðs. Nákvæmlega skal ég ekki segja um, hvað þetta er mikið, en ýmsir halda því fram, að þetta séu um 500 millj. kr., og bara í leyfisgjöldum af bílum og bifhjólum eru það 190 millj. kr. á ríkisreikningum árið 1966, sem er síðasta talan, sem við höfum — bara á þeim eina lið.
Ráðh. talar um það, að það sé ekki meiri þungaskattur hér en í nágrannalöndunum og benzínið sé ekki dýrara. Þegar þessi benzínhækkun er komin, sem ráðgerð er nú, er það aðeins Svíþjóð, að mig minnir, eftir þeim upplýsingum, sem við fengum, sem er hærri, en það eru fleiri gjöld, sem við borgum, heldur en þungaskattur og skattur af benzíninu. Það munar dálitlu, hvort bílar eru tvöfalt dýrari en 3 nágrannalöndunum. Það er ekki lítill peningur að borga vexti af þeim. Við skulum segja, að meðalbíll kosti eitthvað á þriðja hundrað þús., sem eru frekar ódýrir bílar, sem fjölskyldur nota, en það er dálítill munur, hvort hann kostar rúmar 100 þús. kr. og þarf aðeins að borga vexti og afborganir af þeirri upphæð. Og svo eru gúmmígjöld og fleiri skattar. Það eru fleiri skattar hjá okkur heldur en bara benzínskattur og þungaskattur. Ef maður gerir ráð fyrir, að þetta frv. verði samþ. og gjöldin yrðu, skulum við segja, um 160 millj. kr. af bílum, sem nú eru fyrir í landinu, er þetta allt að því 5 þús. kr. skattur á bíl.
Við leggjum til, að þessar 190 millj. kr. eða þetta gjald af bifreiðum og bifhjólum, sem rennur til ríkissjóðs, fari í Vegasjóð. Þá er náttúrlega eðlilegt, að ráðh. spyrji, hvernig á ríkissjóður að fá borið þetta uppi, og það er ekki nema eðlilegt, að þeir óski eftir svari um það frá okkur, sem leggjum þetta til. Ég álít, að ríkisstj. eigi að lækka útgjöld ríkisins; það sé ekki annað hægt að gera. Það kom fram frv. hér í vetur, og það var einn skattur, sem var mjög skynsamlegur í því, og það var farmiðaskatturinn. Ég hældi þeim fyrir þann skatt hér. Hann miðar að því að draga úr eyðslunni. M.a.s. bandaríska þjóðin eða forráðamenn hennar eru farnir að reyna að draga úr miklum ferðakostnaði. Ég reiknaði út ferðakostnað Bandaríkjamanna og okkar, og við erum svona þrisvar til fjórum sinnum hærri árið 1966. Nú get ég vel gengið inn á það, að Íslendingar þurfi að ferðast dálítið, því að við erum lítil þjóð og þurfum mikil viðskipti við aðrar þjóðir. En að við getum eytt svona þrisvar til fjórum sinnum meira í ferðalög heldur en ríkasta þjóð í heimi, það held ég, að sé ofrausn. Það væri mikið vit í að gera eitthvað til þess að vinna á móti þessu.
Annars getum við gert okkur það ljóst, að við getum ekki breytt eins á þessu ári og næstu árum og við höfum getað gert undanfarin ár, af því að tímarnir eru breyttir og gjaldeyrissjóðnum verður ekki eytt tvisvar sinnum. Útlitið með vertíðina er nú ekki glæsilegra en það, að það munar þetta fjórða parti og þriðja parti á aflamagni á þessum tíma í beztu verstöðvum landsins samanborið við aflamagn í fyrra, t.d. á Vestfjörðunum og í Vestmannaeyjum. Ofan á þetta á svo að bæta þessum smáa skatti, og það eru ekki vörubílstjórarnir, sem þurfa að vera reiðastir. Þeir borga ekkert af þessu. Þeir segjast bara hækka taxtann um 10% og eru þegar búnir að hækka um 15% í krónutölu. Svo ætla þeir að bæta 10% við vegna þessa nýja skatts, og þetta leggst vitanlega á atvinnufyrirtækin. Þetta leggst á fólkið úti um alla landsbyggðina; bílstjórar þurfa ekki að vera reiðir. Þeir láta aðra borga þetta. Þeir, sem verða að borga, eru alþýða manna í landinu og svo þeir, sem eiga einkabíla til heimilisnota. Það er alþýðan. En ríkisstj. getur farið ýmsar aðrar leiðir. Það var mjög greinargóð skýrsla, sem fjmrh. gaf hér í gær um bílaeign ríkisins. Oft hefur óþarfari fsp. verið borin hér fram. Það kom í ljós, að það eru yfir 500 bílar, sem ríkið á. Þið getið ímyndað ykkur, hvað þetta kostar.
Nú lýsti ríkisstj. því yfir, að það verði allir að fara að spara og neita sér um hlutina í vetur, þar sem ekki verði borguð vísitala á laun. Ég get vel gengið inn á það, að það sé örðugt fyrir atvinnuvegina. En það er líka erfitt fyrir fólkið að verða fyrir þeirri kjaraskerðingu, sem gengisbreytingin var, án þess að fá neinar bætur. En gott og vel. Það eru bæði sjómenn og aðrir búnir að taka á sig mikla kjaraskerðingu með minna aflamagni og lækkuðu verði. En eiga þá ekki þessir blessaðir forstjórar og ráðh. að ganga á undan og sýna gott fordæmi. Lúðvík XIV. Frakkakonungur var allrá manna mestur eyðsluseggur. En þegar hann var í stríði og þrengdi að þjóðinni, lét hann bræða upp borðsilfur sitt upp í stríðskostnað. Ég sé ekki, að ráðh. séu neitt farnir að spara í bifreiðakostnaði eða bílstjórahaldi. En þeir segja bara þjóðinni að spara og leggja svo þyngri skatta á hana. Það var upplýst hér af fjmrh., að það væru sjö ráðherrabílar. Ég hélt satt að segja um landbrh., að hann æki sínum eigin bíl, og ég held, að ég hafi verið búinn að segja bændum fyrir norðan þetta og hæla honum mikið fyrir. En það er víst þannig, að hann ekur bílnum, og er það góðra gjalda vert, en ríkið á hann. Þetta er nefnilega hrein endileysa, og þetta er ekkert nema ójöfnuður og rangindi.
Það hefur ekkert góð áhrif á starfsfólkið, að forstjóri sé að aka í bíl, sem ríkið kostar að öllu leyti einnig viðgerðirnar og benzínið, og svo eru þeir meira og minna notaðir í snatt fyrir fjölskyldurnar. Þetta skapar ekki neitt gott fordæmi eða gott andrúmsloft hjá stofnunum, því að það þurfa fleiri að fara heim til sín og heiman frá sér heldur en forstjórinn og fleiri að kaupa í matinn heldur en forstjórafrúrnar. Það er ekki eðlilegt; það á að ganga jafnt yfir alla í þjóðfélaginu að því leyti. Við eigum að búa við svipuð kjör. Út af fyrir sig, ef þarf að nota bíl í þágu fyrirtækis, er ekkert við það að athuga, að það sé hóflegur bílastyrkur handa forstjóranum. En við eigum bara að láta þá eiga bílana sjálfa. Viðgerðir verða ódýrari og betur með þá farið á þann hátt. Ég tala nú ekki um ráðherrabílana, því að sé fjölgað um einn ráðh., þarf nýjan ráðherrabíl og einn ráðherrabílstjóra, og það er jafndýrt og ráðh. sjálfur. Það vita allir menn.
Mér er sagt, að það séu þrír bílar til að aka forsetanum í frá Bessastöðum. Ég hélt, að það væri hægt að komast af með einn góðan bíl. Sumir segja fimm, en það er víst ósatt. Annars er það vel, að forsrh. leiðrétti þetta og einnig það, að Kanadaför forsetans hefði kostað 20 millj. kr., og gott er að leiðrétta það, sem rangt er. En nú vil ég fræða þá um meira, svo að þeir hafi tækifæri til þess að leiðrétta það, ef þeir hafa ekki heyrt það. Mér var sagt það úti í bæ, að það væri nýkominn einn ráðherrabíllinn til landsins. Mér var sagt þetta í vetur. Ég er lítill fagmaður í bílum og segi þessa sögu bara, eins og mér var sögð hún. Og hann mundi kosta með eðlilegum leyfisgjöldum um 800 þús. kr., ef venjulegir menn hefðu átt að fá hann. Þetta var um það leyti, sem ríkisstj. var að segja öllum að spara og að ekki væri hægt að greiða neinar vísitöluuppbætur, svo að fólkið var að spjalla um þetta. Ef þetta er ósatt, eiga ráðh. að mótmæla þessu. Þess vegna segi ég þessa sögu um, að þeir séu að fá sér 800 þús. kr. bíla. Þeir kosta náttúrlega minna, þegar ekki eru nein gjöld greidd af þeim. Og ég heyrði það hjá fjmrh., að í nokkur ár hefði átt að vera í gildi sú regla, að það væru ekki fluttir inn bílar fyrir ríkið, sem kostuðu meira en 250 þús. kr., en þarna hafa ráðh. brotið þessa reglu, og það er alls ekki gott að setja öðrum reglur, en fara svo ekki eftir þeim sjálfur. Og ég vildi bara benda ráðh. á þetta, af því að þeim veitir ekkert af að fara svolítið að skinna upp vinsældirnar.
Ég veit, að það yrði afar vel séð hjá alþýðu manna, ef ráðh. hreinlega seldu alla þessa bíla og létu bílstjórana fara að vinna eitthvað — fiska eða gera eitthvað. Það er svo mikill straumurinn nú í Búrfellsvirkjunina — þeir vilja heldur vera þar en á bátunum — að það er dálítið erfitt að fá góðan háseta. Það er sagt að þeir fái sér svo bara bíl hjá bifreiðastöð, þegar þeir þurfa að ferðast og borgi það annaðhvort sjálfir eða fái bílastyrk. Það væri hægt að eyða mörgum sinnum minna í þetta. Ég get vel gengið inn á, að ríkið þyrfti að eiga einhverja bíla fyrir menn, sem þurfa að ferðast að staðaldri fyrir ríkið; þá getur það verið réttlætanlegt. Og ef ráðh. gengju á undan og færu að eyða litlum peningum í þetta, hygg ég, að það mætti spara þarna nokkra tugi millj. kr., þannig að ríkið gæti látið eitthvað af þessum leyfisgjöldum ganga til veganna upp í þessar hraðbrautir, sem þarf endilega að fara að steypa og bílastyrkina mætti sjálfsagt lækka líka. Það er ákaflega erfitt að fara út í það að láta einstaka starfsmenn í stofnunum hafa styrki og aðra ekki — og engan veginn vinsælt til fyrirmyndar.
Ég er búinn að benda á tvo liði, sem ég tel jákvæða. Það er í fyrsta lagi skattur á farmiða til þess að draga úr öllu þessu lúxusflakki, sem er að nokkru leyti farið til þess að kaupa vörur erlendis, sem er svo ekki greiddur neinn tollur af, og í öðru lagi gætu þeir sparað mikið í bílunum. Svo benti ég um daginn á mörg atriði, sem þeir gætu sparað á, og það þarf í sannleika sagt að lækka ríkisútgjöldin um fleiri hundruð millj. kr., ef árferðið verður líkt því, sem búast má við, að það verði í ár. Ég talaði um það hér um daginn við 1. umr., að ég hefði ekki vanizt svo góðum eða fullkomnum vegum, þegar ég var að byrja búskap og fram eftir minni búskapartíð, að ég gæti ekki vel unað því að fara eftir þessum vegum 2–3 ár enn. Við fórum austur að Þjórsá um daginn. Ég varð ekki var við annað en við ækjum yfirleitt eftir góðum vegi, og vegirnir hafa heldur farið batnandi. Svo á allt í einu að vera ómögulegt að aka þessa vegi. Eigum við að steypa hraðbrautir, þó að við höfum ekkert fjármagn til þess nema bæta því á skattpínt fólk, sem er í vandræðum með að geta átt bíla, þó að það sé að basla við það? Ég álít, að það liggi ekki svo ákaflega mikið á. Það er óhætt að lofa þessum miklu mannvirkjum, sem eru í gangi núna, Straumsvíkinni og virkjuninni, að vinna dálítið meira í þeim, og ef búast mætti við því, að atvinnuleysi yrði, þá mætti fara að gera meira.
Viðvíkjandi því, að það þurfi endilega að fá erlend fyrirtæki til þess að undirbyggja þetta allt saman og bjóða þetta svo út, er ef til vill allt vel um það, en ég held, að bezt væri að reyna að nota okkar verkfræðinga. Það er, eins og réttilega var tekið fram hér hjá hv. 6. þm. Reykv., ekki lítils virði fyrir þá menn, sem eiga að gera áætlanir um þetta, að þekkja veðráttuna og landið. Og í öðru lagi finnst mér ekki útilokað að senda verkfræðinga — einhverja hæfa menn — til að kynna sér, hvernig þessir vegir hafa verið lagðir, t.d. í Noregi. Þeir hafa dálítið líka veðráttu í Norður-Noregi og við, þannig að ég held, að við ættum að geta komizt af með okkar innlendu verkfræðinga að mestu leyti.
Það er náttúrlega ágætt að kynna sér reynslu annarra og alveg sjálfsagt, en að taka lán á lán ofan til þess að leggja vegi; það eru tvær hliðar á því máli. Það er ekki litlir peningar, sem fara í vexti, og það væri í raun og veru ráðlegt fyrir okkur að reyna að losa okkur við megnið af þeim skuldum, sem komnar eru — losa sig við eitthvað af öllum þessum skuldum, a.m.k. áður en farið er að stofna til annarra nýrra. Það telur enginn bifreiðastjóri eftir, þó að bifreiðarnar væru látnar bera uppi samgöngubæturnar. En það, sem þeir eru óánægðir yfir, er, að meiri hlutinn af því fé, sem greitt er af þessum tækjum beint og óbeint, bæði með benzíni, þungaskatti, gúmmísköttum, söluskatti og ýmsu öðru, rennur í ríkissjóð.
Það er ekki ástæða fyrir mig að vera að aðvara ríkisstj. um þessa hluti. En ég held, að þetta mál muni afla henni talsvert mikilla óvinsælda. Það er ástæðulaust að fella þetta frv. Það væri hægt að láta það daga uppi, án þess að ríkisstj. hreppti neinar óvinsældir af því. Það er ekkert á móti því að ræða um svona mál og hugsa um það, bæði fyrir bifreiðastjórana og eins fyrir ríkisstj. og þm. En ég held, að það væri að mörgu leyti skynsamlegra af henni að fresta að knýja þetta gegnum þingið, athuga þetta allt saman betur og sjá, hvernig árferðið verður. Svo er það ekkert aukaatriði á vissan hátt, að það standa fyrir dyrum forsetakosningar, og ég gæti alveg eins búizt við, að allar þessar óvinsældir verði látnar bitna á því forsetaefni saklausu, sem hefur verið frammámaður hjá sjálfstæðismönnum, þannig að hann verði nokkurs konar píslarvottur fyrir þetta hraðbrautaræði, sem allt í einu hefur gripið ríkisstj., og væri það ómaklegt og leiðinlegt, ef það kæmi fyrir, þannig að ég fyrir mitt leyti get ekki verið með þessu frv. eins og það liggur fyrir.
Ég vil fara inn á þá leið sem lýst er í okkar grg. í stórum dráttum og taka eitthvað af þeim gjöldum, sem runnið hafa í ríkissjóð undanfarið, láta þau fara í vegina og lækka ríkissjóðsútgjöldin og ef það er ógerlegt, leggja þá á skatta eins og t.d. farmiðaskattinn og draga úr kostnaði við alla þessa blessaða bílaeign. Það gætu reytzt saman svona 80 millj. kr. bara á þann hátt — jafnvel 100, þannig að það væri hægt að brúa þetta bil án þess að leggja þetta á alþýðu manna eins og gert er með þessu, því að þetta kemur ekki á vörubílstjórana og ekki á stöðvarbílstjórana. Þeir taka það af fólkinu. Þetta kemur á hvern einasta mann í landinu í hækkaðri þjónustu. Það eru ekki þeir, sem þurfa að kvarta mest, sem selja vinnuna. Það eru hinir, sem verða að borga hana.