11.03.1968
Efri deild: 68. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 1157 í B-deild Alþingistíðinda. (993)
82. mál, tekjustofnar sveitarfélaga
Frsm. 4. minni hl. (Pétur Benediktsson):
Herra forseti. Ég er nú kallaður 4. minni hl. þessarar n., en í raun og veru tilheyri ég um flest efnisatriði stóra minni hl. og mynda þá með honum meiri hl., en einhvern veginn þótti það nú skemmtilegra í n. að vera ekki að mynda alltof stóra flokka og að frjáls hugsun einstaklinganna fengi að sýna sig í sem flestum afbrigðum í nál. Ég vil byrja mál mitt með því að bera sérstakt lof á hv. frsm. og þakka honum þá miklu vinnu, sem hann hefur lagt í þetta ákaflega lítið aðlaðandi mál, en svo má víst að orði kveða um tekjustofna sveitarfélaga, hvort heldur er frá löggjafans sjónarmiði eða kjósandans, umbjóðanda okkar, því að ekki þykir honum þessi löggjöf skemmtileg, þegar hún er komin á pappírinn og staðfest. En sem sagt, í málið hefur verið lögð mikil vinna og enginn vafi er á því, að þær brtt., sem hv. 1. minni hl. flytur, eru allar til bóta, nema kannske sú við 4. gr., og gera þær frv. á allan hátt aðgengilegra en það var áður.
Mínar till. til breytinga eru ákaflega ljósar og auðskiljanlegar. Þær eru um það að fella niður tvær greinar, þá 1. og 4. Það hefur þegar verið nefnt, hvert tilefni 1. gr. er. Það er tví- eða margsköttun á svokölluðum fjölþættum atvinnurekstri, þar eru sett fyrirmæli um það, hversu megi leggja aðstöðugjald á sama aðila að lögum fyrir áframhaldandi starfsemi að sama verkefni. Það, sem hefur valdið öllu uppnáminu, er nú frekar einfalt mál. Einn ágætur iðnaðarmaður úti á landi framleiddi dívana. Hann er þrifamaður og flytur þá í verzlunarhúsnæði með pússuðum glugga og hefur þar stúlku til að sýna þá og afgreiða til viðskiptavinanna. Þetta gera hinir ötulu skattheimtumenn sveitarstjórnarinnar á stað þeim, þar sem maðurinn býr, að tveimur atvinnurekstrarþáttum og heimta tvöfalt aðstöðugjald. Hins vegar þarf nágranni þessa sama dívanaframleiðanda, sem selur sína dívana í rykugri kompu í bakhúsi, ekki að greiða aðstöðugjald nema einu sinni. Nú hafði hæstiréttur komizt að þeirri niðurstöðu, að dívanar séu framleiddir af báðum þessum mönnum í því skyni að selja þá og að þeir eigi að greiða skatt einu sinni, hvort sem salan fer fram í bakhúsinu eða framhúsinu, hvort sem þeir leggja í þann aukakostnað að hafa afgreiðslumann við að selja þá eða ekki. Hæstiréttur segir það ekki skipta neinu máli, og þarna finnst mér hæstiréttur, eins og svo oft, tala fyrir munn heilbrigðrar skynsemi og það sé ekki allra minnsta ástæða til að láta sér bregða, þó að maður heyri þessa rödd. Svo má búa til alls konar önnur dæmi. Það má segja að einhver aðili eigi sláturhús og svo sé blóðmör, sem sé búinn til úr innmatnum frá því sláturhúsi, étinn á hóteli, sem sami aðili eigi, hvort þá eigi að greiða skatt einu sinni eða tvisvar. Ef menn eru í vafa um það, þá er bara að láta hæstarétt dæma aftur. Við skulum fá fleiri úrskurði dómstólanna um þessi mál. Til þess eru þeir settir að túlka þau lög, sem þessi vísa samkoma hér setur. Við og fyrirrennarar okkar og væntanlega þeir, sem á eftir okkur koma, við getum ekki séð öll tilvik fyrir, ekki nefnt öll hugsanleg tilvik í lagagreinunum, en dómstólarnir reyna að færa þetta til samræmis og eftir mætti til heilbrigðrar skynsemi. Það er það, sem hér hefur átt sér stað, annað ekki. Það er talað um, að það skapi réttaróvissu, ef ekki sé gerð breyting á þessum lögum, en það skapar engu minni réttaróvissu, þótt greinin væri samþykkt eins og hv. 1. minni hl. vill breyta henni. Að vísu er sú breyting til stórra bóta, en hún er þó þannig, að hún er bersýnilega lögfræðingamatur, tilefni til margra hæstaréttarmála og deilna fyrir dómstólunum milli gjaldenda og sveitarstjórna. Þess vegna vil ég fara þá einföldu leið að fella þessa gr. niður með öllu.
4. gr. vil ég einnig fella niður. Þar var sveitarstjórnunum gefið fimm ára aðlögunartímabil um það að koma þessum sérstöku undanþáguákvæðum í samræmi við skattalögin. Þetta finnst mér hafa verið alveg nægur tími, sveitarstjórnirnar eiga enga heimtingu á lengri tíma heldur en þessum. Ég er gersamlega sammála röksemdum frsm. hv. 1. minni hl. í því efni. Mér fannst aðeins á skorta, að hann drægi hina rökréttu ályktun, þá að Alþingi ætti ekkert að vera að eltast við þetta nöldur í hinum ágætu sveitarstjórnum, heldur að gera það, sem alltaf var ætlunin, að láta ein lög gilda um allt land um þetta atriði, láta sömu reglu gilda um undanþágur frá útsvari og tekjuskatti. Hitt er svo allt annað, hvort reglurnar í tekjuskattslögunum, eins og þau eru nú, eru réttar. Þar er ég alveg tilbúinn að setjast við samningaborðið með öðrum hv. þingmönnum um það, hvort ekki kynni að vera ástæða til endurskoðunar, en sannast sagt finnst mér það nú frekar vera hæstv. ríkisstj., sem ætti að taka það mál til athugunar í góðu tómi í sambandi við ýmsar aðrar athuganir á skattalöggjöfinni.