11.03.1968
Efri deild: 68. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 1168 í B-deild Alþingistíðinda. (998)
82. mál, tekjustofnar sveitarfélaga
Auður Auðuns:
Herra forseti. Hv. 1. þm. Vesturl. hefur látið að því liggja, að það væri sanngjarnt, að hlutur Reykjavíkur úr jöfnunarsjóði væri nokkru minni en hann er, að það ætti ekki að gilda höfðatölureglan við skiptinguna, en ég get sagt honum það, að það má líka líta á það frá öðrum sjónarhól, að það megi miða skiptingu jöfnunarsjóðsins við það, hvað miklar þarfir sveitarfélaganna eru. Hv. þm. rökstuddi skoðun sína með því, að hér væru mörg fyrirtæki, innflutningsverzlanir og ýmsar aðrar stofnanir — þá væntanlega ríkisstofnanir fyrst og fremst — sem gæfu Reykjavík mikla tekjumöguleika. En við skulum ekki láta okkur detta í hug, að þessar tekjur, sem borgin hefur af slíku, komi upp í hendur borgaryfirvalda bara svona fyrir ekki neitt, því að vitanlega hefur Reykjavíkurborg og verður stöðugt að leggja í stórkostlega mikil útgjöld, einmitt til þess að skapa aðstöðu fyrir þessi fyrirtæki og fyrir þann rekstur, sem hér er.
Ég vildi aðeins segja þessi fáu orð til þess að láta ekki með öllu ómótmælt ummælum hv. þm.