14.04.1969
Efri deild: 73. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 944 í B-deild Alþingistíðinda. (1026)

21. mál, fjallskil o.fl.

Landbrh. (Ingólfur Jónsson):

Herra forseti. Frv. það, sem hér er um að ræða, hefur verið samþ. í hv. Nd., en þó með allmiklum breytingum. Frv. þetta hefur verið lengi í deiglunni. Það var 1958, sem þáv. landbrh. skipaði n. til þess að semja frv. um fjallskil, en það eru í rauninni engin lög núna um fjallskil eða fjallskilamál. Það hefur verið fram að þessu farið eftir réttarbót Eiríks konungs frá 2. júlí 1294 og Jónsbók, landleigubálki, frá svipuðum tíma. Það er þess vegna ekki að ófyrirsynju, þótt nú sé sett ný löggjöf um afréttir og afréttarmál. Formaður þessarar n. var skipaður Ólafur Jóhannesson prófessor. N. vann rækilega að samningu frv. og sendi það til landbrn. Landbrn. sendi frv. til Búnaðarþings til umsagnar. Búnaðarþing hafði ýmislegt við það að athuga og sendi það til landbrn. aftur með ósk um það, að það yrði sent sýslunefndum og sveitarstjórnum til umsagnar. Það var beðið nokkuð lengi eftir umsögnum sveitarstjórna og sýslunefnda, og svör bárust aldrei frá sumum sýslunefndum. En frv. var sent í annað sinn til Búnaðarþings ásamt þeim umsögnum, sem komið höfðu, og Búnaðarþing gerði þá þær ráðstafanir að skipa þriggja manna n. til þess að athuga frv. Og á árinu 1966 barst rn. frv. að nýju frá Búnaðarþingi.

Frv. var enn sett í endurskoðun og gerðar nokkrar breytingar á því og enn sent Búnaðarþingi, sem gerði nokkrar breytingar, og er frv. nú í þeim búningi, sem Búnaðarþing taldi hentugastan. Þrátt fyrir þessa eldskírn, sem frv. hefur fengið, kom það í ljós, eftir að það kom inn í Alþingi, að ýmsir oddvitar og sveitarstjórnarmenn settu sig í samband við landbn. Nd. og óskuðu eftir enn nokkrum breytingum á frv., og gerði landbn. Nd. brtt. í samræmi við þessar óskir, sem eru í 23 liðum á þskj. 377, og voru þessar brtt. allar samþ. shlj. og frv. afgr. frá hv. Nd. shlj.

Það verður að ætla, að frv. í þeim búningi, sem það nú er, hafi fengið mjög góða athugun, og það er enginn vafi á því, að landbn. Nd. hefur lagt mikla vinnu í það að fara gegnum frv. og bera það saman við óskir þeirra manna, sem frv. eiga helzt að njóta. Ég hef grun um það, að ýmsir a.m.k. úr landbn. þessarar hv. d. hafi haft samband við landbn. Nd. um þetta mál og landbn. þessarar hv. d. sé nú þegar orðin nokkuð kunnug málinu. Gefur það vonir um, að frv. þurfi ekki eins langan tíma í þessari d. til athugunar eins og í Nd., en þar hefur það verið síðan snemma á þessu þingi í athugun.

Ég fer ekki að lýsa þessum brtt., sem samþ. voru. Þær eru á þskj. 377. Ég tel ekki heldur ástæðu til þess að fara að kryfja þetta frv. til mergjar, sem er allmikill lagabálkur í 10 köflum, fjallar um stjórn fjallskilamála, um afréttir og notkun þeirra, um ítölu, um aðgang afréttarpenings o.fl., um göngur og réttir, um hreinsun heimalanda eftir réttir, um meðferð ómerkinga og óskilafjár, um mörk og markaskrár og ýmis ákvæði. Ég geri ráð fyrir því, að hv. alþm. telji, að frv. ásamt grg., sem því fylgja, umsögnum Búnaðarþings og ýmissa nefnda, sem um þetta hafa fjallað, skýri sig nægilega, án þess að þessi framsaga verði höfð ýtarlegri.

Herra forseti. Ég legg til, að málinu verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. landbn.