05.05.1969
Efri deild: 85. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 964 í B-deild Alþingistíðinda. (1067)

189. mál, eyðing refa og minka

Frsm. (Steinþór Gestsson):

Herra forseti. Það frv., sem hér liggur fyrir til 2. umr., hefur landbn. haft til athugunar. Áður hefur það fengið afgreiðslu í Nd. Eins og nál. landbn. á þskj. 616 ber með sér, hefur n. orðið sammála um að mæla með því, að frv. verði samþ. Einn nm., Karl Guðjónsson, var fjarverandi, þegar málið var afgreitt í n., en einstakir nm. áskildu sér rétt til þess að flytja eða fylgja brtt., sem fram kynnu að koma.

Efni þessa frv. er í stórum dráttum það, að það eitrunarbann, sem gilt hefur undanfarandi 5 ár, verði enn framlengt um 5 ár, þannig að bannað verði að eitra fyrir refi og minka á næsta 5 ára tímabili. Um þetta hafa að sjálfsögðu verið skiptar skoðanir manna á meðal. Dýraleitarmenn hafa ekki verið á einu máli um það, hversu mikla þýðingu eitrun fyrir refi hefði, en öllum er það vitanlegt, að meðferð jafnhættulegs eiturefnis og stryknin er, — það er ekki fáandi hverjum sem er, þar sem það hefur í för með sér stóra hættu á því að verða að grandi fleiri lifandi dýrum en þeim, sem ætlað er að farast á eitrinu. Sérstaklega hefur athygli manna beinzt að arnarstofninum í landinu, og ýmsir vilja halda því fram, að sú fækkun, sem á honum hefur orðið núna á undanförnum áratugum, stafi að nokkru leyti af notkun eiturefna fyrir refi og minka. Hvað sem um þá fullyrðingu má segja, er þetta að sjálfsögðu hætta, sem er fyrir hendi, og þar sem ég ætla, að mönnum sé það yfirleitt áhugamál að viðhalda þeim stofni, arnarstofninum, sem fyrir er í landinu, þá ætla ég, að menn vilji ekki eiga mikið á hættu um það, að hann kunni að líða algerlega undir lok af þeim sökum, að hann komist í það eitur, sem borið er út fyrir refi og minka. Meiri hl. landbn. hefur því ekki viljað ganga inn á það eða ljá máls á því að flytja um það till., að þessi aðferð til eyðingar á refum og minkum yrði tekin upp að nýju, en hins vegar fallizt á það, eins og ég gat um áðan, að eiturbannið yrði framlengt næstu 5 árin.

Ég gat um það áðan, að grenjaleitarmenn væru ekki á einu máli um það, hversu nauðsynlegt það væri að hafa þessa heimild til eitrunar. Ég hygg, að það hafi verið upplýst af veiðistjóranum, að jafnvel á þessu 5 ára tímabili síðan eitrun var hætt, hafi refum fækkað að verulegu marki í landinu. Hins vegar er það vitað mál, að til eru þau svæði, sem er miklum örðugleikum bundið að vinna refi á og gæti þess vegna verið mikið hagræði í því að fá að eitra, en eins og ég tók fram áðan, þá er það margra manna mál og mín skoðun, að það sé of hættulegur leikur til þess að ganga inn á það að fara að þeirra áliti, sem telja það vera hættulaust. Hins vegar höfum við talið, að hættulaust væri að veita veiðistjóra og sérstökum trúnaðarmönnum hans heimild til þess að eitra fyrir yrðlinga inni í grenjum, því að það er vitað mál, og vill oft bera við, að það er erfitt að ná yrðlingum úr grenjum, og það má ekki fara frá grenjum með yrðlingum inni í, og þess vegna hefur af þessu orðið ærinn kostnaður og erfiðleikar fyrir þá, sem þessa grenjavinnslu hafa stundað. Hins vegar á ekki neinum fugli að vera hætta búin af því eitri, sem borið er inn í grenin, og því höfum við talið eðlilegt að verða við þessari beiðni. Till. landbn. eru þær, að frv. verði samþ. í því formi, sem það barst hv. Ed. frá Nd.

Ég vil leyfa mér að leggja það til við d.; að hún samþykki frv. eins og það liggur fyrir.