27.02.1969
Efri deild: 52. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 971 í B-deild Alþingistíðinda. (1076)
97. mál, brunavarnir og brunamál
Frsm. (Jón Þorsteinsson):
Herra forseti. Frv. það til I. um brunavarnir og brunamál, sem hér er til umr., er stjfrv. Þetta frv. var einnig flutt hér á síðasta þingi en náði þá ekki fram að ganga og er nú flutt hér aftur óbreytt. Þessu frv., ef að l. verður, er ætlað að koma í stað l. nr. 37 frá 1948 um brunavarnir og brunamál og svo l. nr. 28 frá 1945 um brunamál í Reykjavík.
Aðalnýjungin, sem felst í þessu frv. miðað við gildandi l., er sú, að setja skal á stofn Brunamálastofnun ríkisins, sem fer með daglegan rekstur brunamála og einnig skal stofnsett embætti brunamálastjóra ríkisins.
Brunavarnaeftirlitinu hefur að dómi kunnugra manna verið mjög áfátt á síðari árum og eiginlega ríkt eins konar bráðabirgðaástand í þeim efnum. Brunabótafélag Íslands hefur séð um þetta eftirlit og kostað það, og sá maður, sem aðallega hefur innt það starf af höndum, hefur gert það í hjáverkum. Bæði Brunabótafélagi Íslands og öðrum, sem hagsmuna hafa að gæta í þessum málum, er það ljóst, að þetta gat ekki gengið til lengdar, hér var áfátt mjög í þessum efnum. Í því sambandi er rétt að benda á það, sem segir í grg. með frv., að samanburður á brunatjónum á Íslandi og í nágrannalöndum leiði það í ljós, að meðaltjón á íbúa sé tvöfalt eða þrefalt hærra en þar, ef miðað er við árin 1962–65, og stórversnar það hlutfall enn, sé árið 1967 tekið með, og ég hygg, að mönnum séu í fersku minni ýmsir alvarlegir brunar, sem urðu á árinu 1968, þannig að sjálfsagt hefði þetta dæmi orðið enn þá óhagstæðara við atburði ársins 1968, ef þeir hefðu verið teknir með.
Önnur nýmæli, sem í frv. felast, eru þau, að gert er ráð fyrir aukinni fræðslustarfsemi um þessi mál, og miklu meira svigrúm er fyrir reglugerðarsetningu, þar sem ýmislegt í þessum málum er sífelldum breyt. undirorpið, sérstaklega tækniatriði í sambandi við brunavarnir og slökkvilið, og nauðsynlegt að gefa út mikið af reglugerðum, en það hefur skort nokkuð heimildir fyrir því í gildandi l. Þessu frv. var vísað til heilbr.- og félmn., og hefur n. haft þetta frv. til meðferðar nú um nokkra hríð. Hún hefur leitað umsagnar ýmissa aðila, og reyndar lágu líka fyrir umsagnir frá því í fyrra, þegar málið lá fyrir Alþ., og á grundvelli þeirra athugana og þeirra umsagna, sem fyrir n. lágu, þá leggur n. til, að þetta frv. verði samþ. með tilteknum breyt. En brtt. frá nefndarinnar hálfu koma fram á þskj. 291, og eru það 4 brtt. Fyrsta till. er við 2. gr., og það er reyndar sú þýðingarmesta af þessum brtt., en í henni felst það, að ráðh. skuli skipa sérstaka stjórn Brunamálastofnunarinnar til 4 ára í senn. Hann skipar án tilnefningar formann hennar og einn mann eftir tilnefningu Sambands ísl. sveitarfélaga og einn eftir tilnefningu Reykjavíkurborgar og tvo menn eftir tilnefningu Sambands ísl. tryggingafélaga. Stjórnin skal hafa eftirlit með rekstri og starfsemi Brunamálastofnunarinnar, og ráðh. ákveður þóknun stjórnarmanna. Þessi brtt. er tekin hér upp eftir ábendingum bæði frá Sambandi ísl. tryggingafélaga, Sambandi ísl. sveitarfélaga og Brunabótafélagi Íslands. Það er rétt, þegar þessi brtt. er skýrð, að minna á það ákvæði frv., sem reyndar er nýmæli, sem er 27. gr. þess, en þar segir, að öll tryggingafélög og aðrir, sent tryggingar annast, skuli greiða Brunamálastofnuninni 1.25% af brúttóiðgjaldatekjum vegna brunatrygginga á fasteignum og lausafé. Og sama gildi um tryggingar, sem innihalda bæði brunatryggingu og annars konar tryggingu. Eftir því sem fróðir menn hafa sagt mér, þá er líklegt, að tekjur Brunamálastofnunarinnar af þessu gjaldi nemi um 2–21/2 millj. kr. árlega, og er reiknað með því, að það muni nokkurn veginn duga til þess að standa undir kostnaði við rekstur þessarar stofnunar, en ef þetta hrekkur ekki til, þá ber að greiða afganginn úr ríkissjóði, og með hliðsjón af því, að það eru tryggingafélögin, sem í reynd greiða kostnaðinn við Brunamálastofnunina, þá þótti sanngjarnt, að þau fengju aðild að stjórn þessarar stofnunar, réttara sagt að sett yrði á laggirnar sérstök stjórn fyrir þessa stofnun með aðild þeirra. Eins og ég áður sagði, þá hefur Brunabótafélag Íslands eitt fram að þessu kostað það brunavarnaeftirlit, sem haldið hefur verið uppi.
Þá er brtt. nr. 2, en hún er við 11. gr. frv. Það er við síðustu málsgr., sem breyt. er gerð, en í brtt. segir: „þeir sem verða fyrir beinu tjóni við störf í þágu brunavarna“, en í frv. er sagt „beinu tjóni við slökkvistörf“, en þetta í þágu brunavarna er talið víðtækara. Hins vegar er greinin þrengd að því leyti til, að þar sem segir, að menn eigi rétt á að fá tjónið bætt úr sveitarsjóði, er í brtt. bætt við: „enda verði tjónið ekki bætt af vátryggingafélagi.“
Þriðja brtt. er við 19. gr. frv. Í þeirri gr. segir: „Félmrn. getur að fengnum till. Brunamálastofnunarinnar veitt mönnum réttindi til að setja upp kynditæki og gera við þau.“ Þessu er breytt þannig, að sagt er: „Félmrn. skal.“ Það er sem sagt kveðið fastara að orði. Og b-liður þessarar brtt. er nýmæli og hljóðar á þá leið, að einungis þau kynditæki megi selja og setja upp, sem viðurkennd hafa verið af Brunamálastofnuninni.
Fjórða brtt., sem líka er smávægileg, er við 24. gr. frv. Í frv. segir, að „í reglugerð má kveða á um flutning, meðferð og varðveizlu sprengiefnis,“ en þessu er breytt þannig, að sagt er „í reglugerð skal kveða á um flutning, meðferð og varðveizlu sprengiefnis.
Ég held, að það sé ekkert áhorfsmál að leggja aukna áherzlu á brunavarnir hér hjá okkur. Það er dýrt, álít ég, að reyna að spara útgjöld til brunavarna, þar sem öflugar og traustar brunavarnir geta komið í veg fyrir mikið tjón, ekki eingöngu tjón á eignum og verðmæti, heldur líka tjón á lífi og limum manna.
Það var, eins og ég áður vísaði til, samhljóða álit heilbr.- og félmn. að leggja það til við deildina, að þetta frv. yrði samþ. með brtt. þeim, sem ég hef hér lýst að framan.