18.12.1968
Efri deild: 31. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 147 í B-deild Alþingistíðinda. (108)

125. mál, kjarasamningar opinberra starfsmanna

Fjmrh. (Magnús Jónsson):

Herra forseti. Ég verð í rauninni að biðjast afsökunar á því, að þetta frv. kemur svo seint fyrir Alþ. og með þeim hætti, að það er óskað eftir skjótri afgreiðslu þess áður en þinghlé nú hefst, en það stafar eingöngu af því, að til síðustu stundar var vonast til, að ekki þyrfti að reka eftir þeirri lagabreyt., sem hér er um að ræða. Með 1. nr. 33 frá 1967 bráðabirgðabreyt. á lögum um kjarasamninga opinberra starfsmanna var lögfest samkomulag milli fjmrh. annars vegar og Bandalags starfsmanna ríkis og bæja hins vegar um það, að fram skyldi fara heildarathugun á skipun starfsmanna í launaflokka og ætti þeirri athugun að vera lokið eigi síðar en í árslok 1968. Yrði þeirri athugun ekki lokið þá eða ekki orðið samkomulag um þá athugun, skyldi málið sjálfkrafa ganga til kjaradóms. Að þessu máli hefir verið unnið síðan, en það hefur komið í ljós, að þetta starfsmat hefur reynzt miklu umfangsmeira og erfiðara heldur en gert hafði verið ráð fyrir. Það er hins vegar komið að síðustu stundu, en mun ekki reynast auðið að ljúka því nú fyrir árslok. Úr því að það ekki tekst, þá mundi að óbreyttum 1. málið ganga sjálfkrafa til kjaradóms, sem báðir aðilar telja mjög óheppilegt að verði, nema ef á reyni að ekki takist samkomulag.

Það sem því hér er farið fram á, er ekki nein efnisbreyting á því, sem áður hefur verið ákveðið, heldur eingöngu að fá framlengingu á þessum fresti, þannig að fresturinn verði til janúarloka, í stað þess að hann í l. eins og þau eru í dag, verði til desemberloka og kjaradómur fái því málið ekki til meðferðar fyrr en eftir þann tíma og skuli þá hafa lokið sínum úrskurði 1. marz 1969 í stað 1. febr. 1969. Ég vænti þess, að málið sé það einfalt, og þar sem liggur fyrir, að þetta er flutt með samþykki beggja málsaðila, þá megi vænta þess, að hv. þd. geti fallizt á að afgreiða það, án þess að það þurfi sérstaklega að fara til n. Ég mun að sjálfsögðu ekki mótmæla því, ef það koma fram um það óskir, en það eru ekki till. um., að málið skuli fara í n., þar sem þetta er svo einfalt formsatriði eingöngu, sem hér er um að ræða, og með algjöru samþykki málsaðila. Ég leyfi mér því að leggja til, herra forseti, að málinu verði vísað til 2. umr.