14.04.1969
Neðri deild: 76. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 993 í B-deild Alþingistíðinda. (1129)

117. mál, Háskóli Íslands

Frsm. minni hl. (Magnús Kjartansson):

Herra forseti. Þetta frv. er að minni hyggju dæmi um það, hvernig hægt er að eyðileggja góðar hugmyndir með því að halda óhönduglega á þeim. Upptök málsins eru þau, að fyrir nokkru vitraðist mönnum sú skemmtilega staðreynd, að hinn óvenjulegi ættfræðiáhugi Íslendinga gæti haft vísindalegt gildi í sambandi við erfðafræðirannsóknir og rannsóknir á arfgengum sjúkdómum. Vegna þess að Íslendingar hafa verið næsta einangrað þjóðfélag lengi vel og vegna þess að hér er vitað meira en í öðrum þjóðfélögum um það, hvernig ættir hafa rakizt, þá er þetta íslenzka þjóðfélag tilvalinn tilraunastaður fyrir rannsóknir á erfðafræði. Af þessum ástæðum var stofnuð sérstök erfðafræðinefnd við Háskóla Íslands til þess að skipuleggja þessi tengsl á milli hinnar íslenzku ættfræði og erfðafræðivísinda nútímans. Þessi erfðafræðinefnd fékk hins vegar engin fjárráð hjá íslenzkum stjórnvöldum. Hún hefur orðið að afla sér fjármuna erlendis frá, og ég hygg, að hún hafi aðallega fengið fé frá Kjarnorkumálastofnun Bandaríkjanna, sem hefur mikinn áhuga á erfðafræðirannsóknum. Hins vegar hefur mönnum að vonum þótt þetta heldur leiðinlegt ástand, að nefndin sinnti svona mikilvægum störfum, án þess að íslendingar legðu nokkra fjármuni til þess, og því kom upp sú hugmynd að breyta embætti æviskrárritara, þegar það losnaði á síðasta ári, og tengja það við erfðafræðinefnd Háskólans; íslenzk stjórnarvöld héldu þannig uppi einum starfsmanni, sem hefði þetta sérstaka verkefni, að tengja saman ættfræðivitneskju Íslendinga og erfðafræðirannsóknir og rannsóknir á arfgengum sjúkdómum.

Þetta var mjög skemmtileg hugmynd, en í meðförunum urðu á vegi alls konar undarlegar torfærur. Þegar til átti að taka, vildi erfðafræðinefnd Háskólans, að stofnuð yrði sérstök háskólastofnun, erfða- og ættfræðistofnun Háskóla Íslands, að í þeirri stofnun yrði erfðafræðin lögð til grundvallar og að yfirmaður stofnunarinnar ætti að vera vísindalega menntaður erfðafræðingur, en stofnunin sjálf yrði tengd læknadeild Háskólans. Vafalaust hefur þetta verið stærra áform en svo, að hæstv. ríkisstj. vildi á það fallast, en henni tókst ekki að ná samkomulagi um aðra skipan þessara mála, og því þróast málið svo, að fyrir Alþ. er lagt í vetur frv. til l. um þá nýskipan, að í heimspekideild Háskóla Íslands skuli stofnað sérstakt prófessorsembætti í ættfræði, og þar með er málið að sjálfsögðu komið á allt annað stig en til var ætlazt í upphafi.

Með frv., eins og það var lagt hér fram, þá er verið að gera gömlu íslenzku greinina ættfræði að háskólagrein, og í frv., eins og það liggur fyrir, eru ekki nein ákvæði um það, að þessi prófessor í ættfræði eigi að starfa í nokkrum tengslum við erfðafræðinefnd Háskólans. Að vísu mun ráð fyrir því gert, að svo verði, en það er ekki frá því gengið í þessu frv., og mér hefur skilizt, að í a.m.k. sumum stofnunum Háskólans séu uppi þvílík sambúðarvandamál, að það er ekki hægt að reikna með því sem sjálfsögðum hlut, að slík samvinna takist, ef ekki er gengið frá því í lögum. Þess vegna fannst mér þetta frv., þegar það var lagt fram, um stofnun prófessorsembættis í ættfræði við heimspekideild vera ákaflega undarlegt, enda kom það í ljós, þegar menntmn. sendi frv. til umsagnar, að þá lýsir heimspekideild Háskólans einróma yfir því, að hún sé algerlega andvíg þessu frv., og hún mælir eindregið gegn því, að það nái fram að ganga, og hliðstæð yfirlýsing var einnig send n. frá sagnfræðikennurum Háskólans. Þessi erindi bæði eru prentuð með nál. meiri hl. menntmn. Enn fremur barst alþm. erindi frá stúdentaráði Háskóla Íslands, þar sem einnig er mælt eindregið gegn því, að frv. nái fram að ganga í núverandi mynd.

Þessi andstaða heimspekideildar hefur orðið til þess, að meiri hl. menntmn. leggur nú til, að þetta prófessorsembætti í ættfræði verði sett á stofn við lagadeild Háskólans, og nú fara hlutirnir fyrst að verða einkennilegir. Þetta er rökstutt með því, að sá maður, sem nefndur er í sambandi við þetta embætti, Einar Bjarnason, er lögfræðingur að menntun, en ég fæ ekki séð, að það komi málinu nokkurn skapaðan hlut við, eða ber þetta svo að skilja, að ef hann hefði verið verkfræðingur — það eru til ágætir ættfræðingar í hópi verkfræðinga — hefði verið stofnað ættfræðiprófessorsembætti við verkfræðideild Háskólans, eða hefði það verið gert við guðfræðideildina, ef hann hefði verið guðfræðingur? Þessi skipan sýnir, að þetta mál er komið í algert óefni, er orðið vandræðamál, orðið skoplegt mál og engum til ánægju, hvorki Alþ. né hæstv. ríkisstj. og sízt af öllu þeim ágæta manni, sem talað er um, að sé verið að heiðra með þessum tillöguflutningi.

Þetta umtal um að stofna prófessorsembætti hefur að sjálfsögðu leitt til þess, að háskólaaðilar hafa bent á fjölmörg önnur atriði, sem séu miklu brýnni en að stofna slíkt prófessorsembætti. Þeir benda á mörg embætti önnur, sem ættu að verða á undan. En mér virðist ástandið í Háskóla Íslands vera þannig, að það muni varla vera bætandi á embætti í þeirri stofnun, því að þeir starfsmenn, sem þegar eru þar, hafa ákaflega takmarkaða aðstöðu til nokkurra starfa, og sumir þeirra hafa ekki einu sinni stól til að sitja á í stofnuninni.

Mér finnst, að hæstv. ríkisstj. ætti að íhuga þetta mál betur, áður en hún reynir að hrinda því hér í gegnum Alþ. Ég held hún ætti að taka málið upp á þeim grundvelli, sem það var hugsað á í upphafi. Ég segi fyrir mig, að ég mundi vera hlynntur því, að embætti æviskrárritara yrði tengt við erfðafræðinefnd Háskólans, og ég hefði sízt af öllu nokkuð á móti því, að sá embættismaður, sem til þess starfa færi, fengi launahækkun, þannig að hann fengi sams konar laun og prófessorar og starfsaðstöðu eins og prófessorar, en að það yrði frá því gengið, að hann hefði þetta verkefni, að starfa með erfðafræðinefnd Háskólans. Ef menn vilja binda þetta starf við nafn Einars Bjarnasonar, þá hef ég ekki heldur neitt á móti því, enda þótt ég telji það óþarft með öllu, vegna þess að verðleikar hans eru slíkir, að ég efast ekkert um, að hann hefði fengið það starf, ef hann hefði sótt um það. En ég held, að við getum ekki leyst þetta mál á neinn annan hátt en þennan, því að það, sem lagt er hér til af meiri hl. menntmn., væntanlega með samráði við hæstv. ríkisstj., er hreinn óskapnaður, sem Alþ. má ekki gera sig sekt um.