17.04.1969
Neðri deild: 78. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 1024 í B-deild Alþingistíðinda. (1148)

117. mál, Háskóli Íslands

Forsrh. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Ég skal ekki blanda mér mikið í þessar umr., sem nánast sagt eru skoplegar að sumu leyti. En ég vildi láta undrun mína uppi hér yfir því, að það skuli sagt á Alþ. Íslendinga, að ættfræði teljist ekki meðal vísinda. Ég hygg, að það séu einmitt þau vísindi, sem Íslendingar hafi iðkað mest frá því, að byggð hófst hér, og talið sér einna mest og helzt til gildis, að þeir hafi kunnað skil á ætt sinni betur heldur en allar aðrar þjóðir. Það má endalaust deila um það, hvað teljist vísindi eftir einhverri ákveðinni skilgreiningu. Ég las eftir ungan heimspeking viðtal fyrir skömmu í blaði, þar sem hann taldi meginhluta hinnar gömlu heimspeki langt fyrir utan öll vísindi. Þannig koma ætíð nýjar kenningar upp, en fróðleikur um ættfræði hefur ætíð verið stolt Íslendinga og þau fræði, sem þeir hafa kunnað bezt. Og það verður ekki af skafið, að af öllum Íslendingum hefur Einar Bjarnason komizt lengst í því að beita vísindalegum aðferðum við ættfræði, og alveg tvímælalaust er hann bezt að sér í þeim efnum allra manna hér á landi nú, og þó ekki væri annað, þá hygg ég, að það sé illa varið — ég segi það eins og það er, ég hygg, að það sé illa varið tíma þessa mjög fjölfróða manns í ættfræði, að hann verji sínum starfskröftum til endurskoðunar ríkisreikninga, sem margir menn geta unnið að. Ég tek fram, að það á ekkert skylt við að losa það embætti öðrum til handa, heldur tel ég það illa farið, að þessi maður, sem er gæddur sérstökum fróðleik og gáfum í þessum efnum, skuli ekki fá notið þeirra sjálfum sér og þjóðinni allri og ættarvísindum á Íslandi til gagns.

Það er engin nýjung, að það sé verið að stofna háskólaembætti bundið við einstakan mann, það var gert t.d. á sínum tíma um svo merkan mann sem dr. Guðmund Finnbogason. Þá voru ámóta harðar umr. hér á þingi, fyrir einum rúmum 50 árum, um þörf á því embætti. Því var haldið fram, að vinnuvísindi, sem starf hans var tengt við, væru engin vísindi og væri hégóminn einber. Ég hygg, að það hafi verið Háskólanum til hróss, að Guðmundur Finnbogason starfaði við hann, og það hafi einmitt sýnt framsýni þm. þá, að þeir stofnuðu embætti, sem í þessari grein var bundið við þann eina Íslending, sem þá hafði kynnt sér þau efni, sem segja má, að mikill hluti framfara nú á dögum byggist á, að kunna að beita vinnuaflinu betur heldur en áður var gert. Það mætti segja, að sumar af kenningum Guðmundar Finnbogasonar hafi kannske reynzt barnalegar miðað við það, sem síðar hefur orðið. En hann var á réttri braut, og Alþ. var á réttri braut með stofnun þessa embættis, bundið við þann ákveðna mann, vegna þess að þá höfðu ekki aðrir skilyrði til þess að inna það verk af höndum, auk þess sem menn vildu sýna þeim manni sérstaka virðingu og sæmd, sem hana átti skilið, alveg á sama hátt eins og ég tel, að Einar Bjarnason eigi, — hann er að vísu gamall kunningi minn, en ég er enginn upphafsmaður þessa máls.

En ég get ekki orða bundizt, þegar verið er að gera lítið úr ættfræði og gera málið skoplegt, þeim fræðum, sem Íslendingar hafa stundað sér mest til ánægju og almenningur kann betur skil á hér heldur en nokkurs staðar annars staðar, og um er að ræða tvímælalaust þann mann, sem bezt er að sér í þeim fræðum nú, og sennilega þann, sem bezt hefur verið að sér frá upphafi á Íslandi, e.t.v. að föður hans heitnum einum undanteknum.