02.05.1969
Neðri deild: 87. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 1098 í B-deild Alþingistíðinda. (1192)

233. mál, bann gegn veiðum með botnvörpu og flotvörpu

Halldór E. Sigurðsson:

Herra forseti. Í sambandi við þessa umr. get ég nú mjög gjarnan tekið það til mín. sem fram kom í ræðu hv. frsm. hér áðan, að um þetta mál mundi verða talað af lítilli þekkingu. Og ég skal fúslega játa það, að ég hef aldrei stundað sjómennsku og hef í þessu máli sem mörgum fleirum sótt mér eða farið til fanga um þekkingu til þeirra, sem við þurftu að búa og höfðu miklu að deila og gátu þess vegna deilt mér af sinni þekkingu.

Um málið vil ég annars segja það, að ef mitt viðhorf mætti ráða um afgreiðslu málsins, þá er ég mjög neikvæður gagnvart allri togveiði og útfærslu eða innfærslu í landhelginni, eins og hér er lagt til. Hins vegar hefur það verið svo, m.a. fyrir störf þeirrar mþn., sem þetta mál hefur unnið, sem ég vil nú byrja með því að þakka fyrir þá vinnu, sem hún hefur lagt í þetta verk, og ég verð að segja það af þeim kynnum, sem ég hef hér af þingstörfum og undirbúningi mála, að þá hefur verið lögð meiri vinna, svo að séð verður, og meira gert í því að hafa samband við fólkið um afgreiðslu mála hjá landhelgisnefndinni heldur en öðrum slíkum nefndum. Og þetta þakka ég mjög vel. Við þm. Vesturl. sátum fund þann, sem n. hélt vestur í Stykkishólmi. Það leyndi sér ekki, að það voru skiptar skoðanir, en áður en sá fundur var haldinn, var haldinn fundur hér með þeim Breiðfirðingum út af þessu máli í Reykjavík hér fyrir áramótin og þeir beðnir, heimamenn, að reyna að undirbúa málið eins og tök væru til. Á þessum fundi í Stykkishólmi komu fram mörg sjónarmið, og af útvegsmönnum heima fyrir hafði verið reynt að ná samstöðu um málið, og að nokkru leyti hafði það tekizt. Og af hálfu landhelgisnefndarinnar og þeirrar nefndar, sem heima starfaði, var skipzt á sjónarmiðum og málin skýrð.

Ég vil taka það fram, að sá árangur eða sú niðurstaða, sem kemur fram í þessu frv., er að verulegu leyti það, sem var sjónarmið manna á þessum fundi. Þó er það svo, að úr því hefur verið dregið. Það svæði, sem heimamenn breiðfirzkir fóru fram á í Breiðafirði, var verulega stærra heldur en hér er lagt til. Og á fundum, sem haldnir voru hér í Reykjavík með breiðfirzkum útvegsmönnum og sjómönnum í sambandi við páskana, varð niðurstaðan sú, að dregið var úr Breiðafjarðarsvæðinu, og þetta er næst því samkomulagi, sem þar var hægt að ná. Þess vegna er það svo með menn eins og mig og fleiri, að þó að við hefðum sjálfir kosið að ganga skemmra í þessu, höfum við fallið fyrir þeim rökum, sem þessir menn með þekkinguna lögðu okkur til. Við treystum því, að þeir hafi verið það framsýnir, að við stefnum ekki málum í ónýtt efni og sköðum ekki það, sem við viljum í raun og veru vinna, heldur verði það eins og hv. 4. þm. Vestf. tók fram áðan það, sem við erum auðvitað að keppa að, og þarf enginn að lá okkur, að við erum með afstöðu okkar að sveigja okkar tilfinningar og okkar hugsun í þessu í þeirri von, að við séum að skapa byggðarlögum okkar betri aðstöðu til þeirrar lífsafkomu, sem þau byggja á, og það þarf held ég enginn að undrast það, þó að okkar afstaða sé miðuð við það.

Það eru tvær breytingar, sem landhelgisnefndin leggur til, sem eru á annan veg heldur en við höfðum sem næst náð samkomulagi um. Fyrri breytingin er sú, að í okkar hugsun og okkar till. hér á norðursvæði Breiðafjarðar þá var það okkar till., að það yrði fylgt því, sem segir hér í kortinu á bls. 26 um, að ytra svæðið á norðursvæði Breiðafjarðar sé opið frá 16. sept. til 31. des. fyrir bátastærðina frá 105 upp í 350. Við höfðum aldrei gengið inn á það, að togurunum yrði hleypt inn á þetta svæði, og okkar hugsun og samþykkt var sú, að þetta yrði bundið við stærðarmörkin 350 í hámarki. Hitt er það að fara með veiðarnar alveg upp undir Svörtuloft eða upp að Öndverðarnesinu, þar höfðum við með samkomulagi við okkar útvegsmenn og sjúmenn komizt að þeirri niðurstöðu, að það væri hægt að sætta sig á eina mílu undan nesjunum. Eins og hv. 4. landsk. þm. benti á, er hér um að ræða, að það er gengið hér inn á smábátasvæði eða trillubátasvæði þeirra íbúa sunnan Jökuls á Stapa og Hellnum, sem er þeim mikils virði, og þessar tvær breytingar teljum við mjög æskilegar. Hitt er mín skoðun eftir því sem ég hef tileinkað mér hana frá útvegsmönnum og sjómönnum á Breiðafirði, að ef till. þeirra Vestfirðinganna um að fella út nyrðra svæðið á Breiðafirði yrði samþ., þá sé algerlega vonlaust að opna Breiðafjörð að nokkru, þá verði að loka honum öllum eins og fram kom í ræðu hv. 4. landsk. þm. Það er algerlega vonlaust, að því er þessir menn telja, að halda syðra svæðinu opnu, ef þessu væri lokað. Þess vegna sé ég ekki, að ef það næði fram að ganga að loka nyrðra svæðinu fyrir allri veiði, eins og lagt er til í till. þeirra Vestfirðinga, annað heldur en Breiðafjarðarmálið sé þar með búið. Þetta vildi ég biðja hv. alþm. að hugleiða. Ég skil vel sjónarmið þeirra Vestfirðinga, að það fer í þeim efnum eins og mitt og okkar Breiðfirðinga, sem höfum umboð fyrir Snæfellinga og hér á suðursvæði Breiðafjarðar. að við höfum tekið tillit til till. þeirra, sem þarna búa og bezt þekktu. En ég vil benda á þetta, að í þessu er fólgin sú hætta, að það mundi verða talið óframkvæmanlegt að hafa suðursvæðið opið, ef þessu væri lokað.

Ég hafði gert ráð fyrir því — af því að svo mikil vinna hafði verið lögð í þetta frv. og reynt að ná sem beztri samstöðu, þannig að það væri ekki blandað í þetta sjónarmiði stjórnmálaflokka eða öðru þvíumlíku. heldur fyrst og fremst sjónarmiði þeirra, sem við áttu að búa að það yrði reynt að fylgja þessu máli eftir hér í þinginu með sem mestu samkomulagi og mestri lipurð. Þess vegna kom framsöguræða hv. 10. þm. Reykv. mér mjög á óvart áðan, og mér raunverulega fannst það vera alveg ólíkur þáttur í öllum vinnubrögðum um þetta mál. Ég hefði nú viljað vona, að um þetta mál næðist samstaða hér á hv. Alþ., og teldi, að það skipti verulegu máli, að það hefði verið hægt að ná henni, því að hér er verið að fjalla um mál, sem við erum allir sannfærðir um, að við gerum því aðeins, að við erum að reyna að tryggja afkomu okkar kjósenda, okkar byggðarlaga hver á sínu sviði og landsins í heild. Ég hefði því viljað vona, að það næðist samstaða um það að gera þá breytingu um nyrðra svæðið á Breiðafirði, að ytri línan yrði eingöngu fyrir bátastærðina frá 105–350, eins og kortið sýnir, og innri línan aftur fyrir minni bátana. Þetta hefði ég haldið, að væri skynsamleg leið, og tel, að þær breytingar á ytra svæðinu. sem búið er að gera með því að gera það veiðisvæði allt árið, eigi að nægja þeim. sem stærri eru og geta farið til fanga víðar heldur en heimaflotinn, sem yfirleitt er lítill. Ég hefði því mjög viljað biðja þá hv. alþm., sem í fjvn. sitja, að reyna að leita eftir að fá þessa lausn á málinu, svo að við stefndum því ekki í hættu. Ég hefði mjög viljað mælast til þess við þá menn, sem þar sitja, að það yrði reynt að leita að þessari samkomulagsleið. Þetta er ástæðan til þess, að ég kvaddi mér hljóðs, að ég vildi skýra mitt persónulega viðhorf. Ég vildi láta það koma fram, að ég met mikils störf manna, sem leggja sig verulega í starfið og leita eftir því að ná samstöðu landsmanna, eins og þarna hefur verið leitazt eftir. Ég treysti því, að þeim anda eða þeirri stefnu verði fylgt við afgreiðslu málsins, en ekki farið út í neinn slagorðadans eða héraðameting, eins og kom hér fram, því miður, við framsögu málsins í hv. d. Og ég endurtek, að ég treysti hv. sjútvn. til þess að skoða það enn á ný, hvort ekki er hægt að finna samkomulagsleiðir um málin til þess að við lendum ekki í meiri vandræðum en við erum þó með málið í dag. Og þá bendi ég á Breiðafjarðarsvæðið nyrðra sem eitt af því, sem þyrfti að ná samkomulagi um.