07.05.1969
Efri deild: 87. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 1153 í B-deild Alþingistíðinda. (1229)

233. mál, bann gegn veiðum með botnvörpu og flotvörpu

Bjarni Guðbjörnsson:

Herra forseti. Frv. það, sem hér liggur fyrir, er öllum hv. dm. orðið vel kunnugt eftir þær umr., sem farið hafa fram hér á þingi og þann undirbúning, sem þetta hefur fengið frá landhelgisnefndinni, sem skipuð var á s.l. hausti. En enda þótt aðdragandinn sé orðinn nokkuð langur, kom þetta frv. ekki fyrr en í lok apríl hér inn í þingið, og nú er það hér á síðustu dögum í Ed., því að það verður að afgreiða það að mér skilst fyrir laugardag, og er þá ekki d. ætlaður langur tími til að fjalla um þetta veigamikla og viðkvæma mál, og verð ég að harma það út af fyrir sig.

Það þarf engum að koma á óvart, þótt það séu skiptar skoðanir um þetta mál, og raunar er frv., eins og það er hér, samkomulagstill. nefndar þeirrar, landhelgisnefndarinnar, sem undanfarið hefur unnið að þessu máli. Það er þó rétt að taka það strax fram, að ég tel, að landhelgisnefndin hafi unnið mikið starf frá því að hún var skipuð, enda þótt ég sé ekki í alla staði ánægður með þær till., sem frá henni hafa komið, og raunar lítið hrifinn af sumum þeirra. Á undanförnum árum hafa þessi mál verið mestu vandræðamál, því miður. Framkvæmd laganna varðandi landhelgisbrotin hefur ekki verið til fyrirmyndar á nokkurn hátt. Það má kannske segja, að þess vegna hafi það þó verið betra, að þm. hafi tekið höndum saman um að vinna að endurbótum í þessum efnum. Það hlýtur hins vegar alltaf að vera mjög hæpin röksemdafærsla að nota lélega framkvæmd laga um þessi frægu landhelgisbrot, þar sem fjöldi skipstjórnarmanna gerðist dag eftir dag brotlegur við lög og reglur, að nota þá lélegu framkvæmd laga sem rök fyrir auknum togveiðiheimildum. Það er tæplega hægt að álykta annað en landhelgisbrot undanfarinna ára hafi verið þess eðlis, að það hafi ekki verið tök á að framfylgja lögum og reglum. Það leiðir þá aftur hugann að því, hvernig tekst til að framfylgja þeim reglum, sem nú verða settar og eru miklu viðameiri en þær, sem áður giltu, og krefjast stóraukinnar gæzlu, ekki aðeins hvað snertir togveiðar, heldur einnig og ekkert síður hvað snertir netaveiðar.

Togveiðar eru tvíeggjaðar. Þær eru drýgsta veiðarfærið til að skapa okkur tiltölulega mikið og gott hráefni og aukið verðmæti, en botnvarpan getur líka verið stórkostlegur skaðvaldur, ef henni er beitt hömlulítið á svæði, þar sem við þurfum að vernda hrygningarsvæði. En netaveiðarnar eru þó enn meiri skaðvaldur. Þegar um er að ræða nælonnet og allt of margar trossur í sjó, er hrein rányrkja á ferðinni. Þess vegna vil ég undirstrika það, eins og fram kemur raunar í grg. landhelgisnefndarinnar, að raunhæft eftirlít með möskvastærð og netafjölda í sjó verði framkvæmt og tryggt, að settar reglur verði virtar. Allt annað mun leiða til algers öngþveitis í þessum málum. En samkv. grg. hefur Landhelgisgæzlan nú engin tök á að framfylgja eftirliti um settar reglur um gerð veiðarfæra, að þær séu virtar, hvað þá þegar Landhelgisgæzlan fær stórum aukið verkefni með rýmkun fiskveiðilandhelginnar. Ég óttast, að þessar auknu togveiðiheimildir, sem þetta frv. gerir ráð fyrir, verði aðeins stundarávinningur og skammvinnur hagnaður þeirra, sem nú telja sig sjá hilla undir velsæld af þessum sökum, því miður. Ef hér er of langt gengið, á þetta eftir að hefna sín í aflaleysi víða um land, og á hverju mun þá fólkinu ætlað að lifa, því fólki, sem hefur framfæri sitt af sjávarafla hringinn í kringum landið, þegar alls staðar er ördeyða?

Það kann að vera, að nú í 2–3 ár verði hægt að skrapa svo mikið á þessum svæðum, að sæmileg afkoma verði, en hætt er við, að reynslan geti kennt eitthvað annað. Og ég er hræddur um, að þegar einu sinni er búið að koma þessum veiðiheimildum á, verði erfitt að taka þær af aftur. Ég hef enga fyrirfram fordóma gegn togveiðiheimildum eða gegn botnvörpunni, alls ekki, og ég skal fyrstur manna viðurkenna, ef þessi beygur minn gegn auknum veiðiheimildum er ástæðulaus. En óttinn við ofveiði er fyrir hendi, og má benda á fjölmörg dæmi, sem styrkja þann illa grun. Barátta Íslendinga fyrir stækkun fiskveiðilandhelginnar hefur ávallt haft þann megintilgang að tryggja okkur einum sem víðáttumest veiðisvæði umhverfis landið, jafn-. framt því að við réðum sjálfir á hvern hátt við vildum hagnýta okkur fiskveiðilögsöguna. Við höfum alltaf haldið því fram, að með aukinni friðun þeirra svæða, sem talizt geta uppeldisstöðvar ungfisks, værum við að stuðla að aukinni fiskigengd, ekki aðeins innan fiskveiðimarkanna, heldur einnig utan þeirra og þá jafnt fyrir allar þjóðir, sem sækja hingað á norðlægar slóðir. Það má benda á mörg dæmi þessu til sönnunar, ég læt það eiga sig að þessu sinni, en víða um land má benda á, að aukin friðun og vernd fiskimiða hefur veitt aukinn afla.

Hér í þessari hv. d. er nýbúið að samþykkja bann við dragnótaveiði innan tiltekinnar línu í Faxaflóa. Ég fæ ekki séð annað en það stangist gersamlega á við 3. gr. þessara l., þar sem heimildirnar í 2. gr. um aukna heimild til togveiða taka einnig til dragnótaveiða. Og minnist ég á þetta hér, til þess að það mætti þó koma til athugunar í þeirri hv. n., sem fær þetta til meðferðar. Í þessu frv. er sem sagt gert ráð fyrir því, að auknar togveiðiheimildir nái töluvert inn fyrir þá línu, sem þar var dregin í frv. um bann við dragnótaveiði. Í þessu finnst mér ósamræmi og væntanlega ætti að vera hægt að ræða slíkt frekar í n.

Það hefur alltaf verið lögð megináherzla á það í öllum umr. um stækkun landhelginnar að friða Faxaflóa fyrir togveiðum og það væri lífsnauðsynlegt vegna hinna þýðingarmiklu uppeldisstöðva. Hér virðist þeirri röksemd skotið undan, og ætti það þó sízt við, að við sjálfir gengjum þar á undan eða hefðum forgöngu um það. Með þessu frv. er stefnt að stórauknum veiðiheimildum innan fiskveiðimarkanna. Það tel ég, eins og ég hef lítillega drepið á, mjög vafasaman ávinning nema þá kannske um stundarsakir. Hitt hefði ég heldur kosið að færa fiskveiðilögsöguna út, auka og stækka þau svæði, sem við í framtíðinni hljótum að nytja og skipuleggja fyrir okkur. Það minnist enginn á slíkt nú. Ég er ekki með þessum orðum að ætlast til þess, að n., sem vann að þessu frv., hefði komið hér með eitthvert slíkt frv. Ég minni aðeins á það vegna þess, að nú virðist þagað þunnu hljóði um öll slík mál, eins og þar væri einhver kolsvartur óyfirstíganlegur veggur fram undan, og kannske er það. Kannske hefur myndazt einhver slíkur veggur við síðustu samninga við Breta, ég veit það ekki.

Í umr. í Nd. var nokkuð hnýtt í þm. Vestfjarða — ég skal ekki fara að taka sérstaklega upp hanzkann fyrir þá, þeir eru einfærir um það — út af till. um heimildir á Breiðafirði og í Húnaflóa. Ég áskil mér rétt til þess við síðari umr. að taka, ef tilefni gefst til, taka þessar brtt. upp og flytja þær, svoleiðis að ég skal ekki frekar orðlengja um þetta núna. En ég vil aðeins minna á, að þegar veiðisvæðum var lokað með útfærslunni 1958, var það vitað mál, að enginn landshluti bar jafnlítið úr býtum sem Vestfirðir. Þar voru engir flóar, sem voru til friðunar, nema þá Breiðafjörður og Húnaflói, engar eyjar úti fyrir, sem grunnlínupunktar væru ákveðnir eftir, heldur var bókstaflega aukin ásókn á Vestfjarðamiðin, þar sem hundruð erlendra skipa leituðu á miðin að nýju. Það var, eins og einhver orðaði það þá, bókstaflega rekið í túnið hjá Vestfirðingum. Þeirra landhelgisstækkun var tiltölulega langminnst, minni en víðast hvar annars staðar, og af þessum ástæðum hafa Vestfirðingar alltaf staðið á móti auknum togveiðiheimildum innan fiskveiðitakmarkanna. Vestfirðingar eru hér aðeins að verja sína lífshagsmuni, og það er reynsla þeirra sjálfra, sem þarna endurspeglast í andstöðu þeirra gegn auknum togveiðiheimildum. Við erum sannfærðir um, að enda þótt fiskveiðilögsagan verði ekki færð út nú um sinn, hljóti óhjákvæmilega að verða að herða róðurinn fyrir takmarkaðri útfærslu með friðun tiltekinna veiðisvæða fyrir Vestfjörðum, og á það vil ég leggja áherzlu nú við þessar umr. Vestfirðingar hafa á undanförnum árum verið allra manna þrautseigastir í sambandi við línuveiðarnar. Á þeim veiðum hefur sú atvinnuuppbygging, sem þar hefur átt sér stað, verið byggð, og ég vil segja, á því hefur atvinnuöryggi það, sem víðast hefur verið á Vestfjörðum, verið byggt. Nú um sinn kann það kannske að vera hagkvæmara að stunda togveiðar vegna þess, hvernig að línuveiðum hefur verið búið, hvernig tilkostnaður hefur vaxið, en þrátt fyrir þá staðreynd, að Vestfirðingar eru andvígir auknum togveiðiheimildum, þá stóðu þm. Vestfjarða saman um það að vera meðmæltir opnun tveggja hólfa, tveggja nýrra hólfa fyrir Vestfjörðum. Á fundi þeim, sem stundum hefur verið vitnað til og haldinn var á Ísafirði, var mjög mikil andstaða gegn auknum veiðiheimildum innan fiskveiðitakmarkanna. En hins vegar komu fram raddir frá þeim mönnum, sem hugðust stunda togveiðar, um að opna bæri ný tiltekin hólf. Á þessar raddir höfum við viljað hlusta líka. Þess vegna kom okkur það dálítið spánskt fyrir, þegar við tjáðum okkur fúsa til þess að vera meðmæltir opnun þessara tveggja hólfa, að ekki var hlustað á óskir okkar í sambandi við Húnaflóa og Breiðafjörð, eins og við bentum á í bréfi, sem við sendum landhelgisnefndinni. Við gengum til móts við landhelgisnefndina þrátt fyrir andstöðu heima og vorum að vona, að óskir okkar um hina staðina yrðu teknar til greina til samkomulags, en eins og ég segi, það urðu mér nokkur vonbrigði, að n. skyldi ekki geta gengið þar til móts við óskir okkar.

Ég hef rakið lítillega þetta mál, en þar sem ég á væntanlega tækifæri til þess að fjalla um þetta í n., þá get ég sparað mér langar umr. um þetta. Ég geri mér það ljóst, að hér er um mjög viðkvæmt deilumál að ræða og ekki geti allir orðið sammála eða samferða. Þetta frv. á að gilda í takmarkaðan tíma. Það er gert ráð fyrir því, að það gildi til ársloka 1971. Ég hefði nú talið, að það væri nógu langur tími, að það gilti til ársloka 1970, að það væri 11/2 ár, sem þessi tilraun mætti taka. Það hlýtur að vera hægt að fá á því 11/2 ári næga vitneskju, ekki sízt þegar byggt er á þeirri vitneskju, sem menn hafa aflað sér á undanförnum árum, því að þeir eru ekki í fyrsta skipti að byrja að veiða á þessum svæðum, sem nú eru opnuð. Ég vil aðeins undirstrika það, sem ég gat um hér áðan, að það er gagnslaust að samþykkja nýjar reglur nema unnt sé að tryggja framgang þeirra og raunhæft eftirlit verði þann takmarkaða tíma, sem þessum lögum er ætlað að gilda. Allt annað mun leiða til algers öngþveitis í þessum málum, og þá er verr farið en heima setið.