09.05.1969
Efri deild: 89. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 1170 í B-deild Alþingistíðinda. (1239)
233. mál, bann gegn veiðum með botnvörpu og flotvörpu
Jón Árm. Héðinsson: Herra forseti. Ég vil ekki tefja málið með löngum málflutningi hér, en ég vildi aðeins standa upp og þakka sennilega andstæðingum mínum að sumu leyti a.m.k. fyrir mjög góðan og hófsaman málflutning, því að það er sannarlega allt annar tónn í þeim heldur en í Nd., þar sem menn fóru að munnhöggvast og nota jafnvel ósæmileg eða óþingleg orð. Það sýnir það þó, eins og ég gat í framsöguræðu, að grunntónninn er sá að reyna að leysa málið af alvöru. Það var ekkert óeðlilegt, þó að það kæmu fram mismunandi skoðanir á þessu máli, það væri eins og ég gat um þá, alveg sama hvaða till. kæmu fram, eitthvað af þeirri tillögugerð mundi hafa sætt mótspyrnu einhverra manna. Málið er þannig vaxið. Það hefur alltaf verið og verður það áfram og við því er raunar ekkert að segja. Dæmið er þannig, að það er metið út frá ákveðnum sjónarmiðum, oftast hagsmunasjónarmiðum, hvað væri æskilegast að gera. Menn hafa sumir útveg, sem passar fyrir línu, aðrir útveg fyrir net og hinir fyrir troll, og það er ekki lengra síðan en 1956, ef ég man rétt, að t.d. netaveiði hófst á Breiðafirði. Þá var línuútvegur þar, síðan hafa netin verið allsráðandi, og það er ekki einleikið, hvað netaúthaldið þar hefur eiginlega sett fiskvinnslu þar niður á við, því í gegnum bátagjaldeyriskerfið og síðan núna, þó mikill fiskur berist að landi, þá hafa fiskvinnslustöðvar þar átt í ákaflega miklum erfiðleikum. Mér var kunnugt um það, að þegar ég átti aðild að og var með bát í Sandgerði til 1959, í gegnum vinstristjórnartímabilið, þegar borgað var eftir gæðum fiskjarins, sem var mikilvægt atriði, þá var fiskur á Snæfellsnesi veiddur þar í net allt að 20–30 aurum, jafnvel upp í 50 aurum lægri í verðflokki, vegna þess að það fékkst miklu minna út úr þeim fiski. Það er því ekkert óeðlilegt, þó að nokkrir útvegsmenn þar fari að velta vöngum yfir því, hvort rétt sé stefnt. Það kom greinilega fram, þó þeir séu hræddir við togið, að þeir telja óhóflegar netaveiðar ekki rétt vinnubrögð, það kom greinilega fram á þeim fundi. Hins vegar voru líka uppi raddir um það, að það ætti að fara mjög varlega í togið og reyna að gera meir út á línu. Menn eru hér að læra af reynslunni, og það er vel. Ég þarf varla að fara að ræða um brtt., þær voru felldar í Nd. með allmiklum atkvæðamun, brtt. um Faxaflóann var felld 21:13. tímabilið var fellt 21:11.
Í sambandi við Húnaflóann vil ég aðeins geta þess, að það var sérstakt fyrirkomulag þar varðandi grunnlínurnar. Það var myndað hálfgert hvasst horn, sem togararnir máttu fara að í flóanum, og þessi till., sem hér liggur fyrir til breytingar á Húnaflóalínunni, er í nokkru ósamræmi við aðra staði á landinu, þ.e.a.s. við Selvogsgrunn eða Selvogsbanka og austur við Langanes allt að Héraðsflóa, því þar gildir varðandi ísl. skipin að mestu leyti reglugerðin frá 1958, þó að grunnlínan sé dregin samkvæmt reglugerðinni 1961. Það eru þessir þrír staðir á landinu, sem þar er vikið út frá. Íslendingar hafa talsverðan rétt inn fyrir þá línu, þannig að við vildum hafa samræmi í þessari tillögugerð varðandi þessi þrjú svæði.
Ég tel, að óhjákvæmilegt sé, að þm. geri sér grein fyrir því, eins og reyndar sjómenn og útgerðarmenn gera almennt í dag, að málið var í algerri úlfakreppu, og það var ekki um annað að ræða en leysa málið, hvort þessi lausn var sú eina rétta verður aldrei dæmt um, þar sem önnur lausn kemur ekki upp á teningnum. En raunhæf lausn varð að finnast, framhjá þeirri staðreynd verður ekki gengið. Frv., sem liggur hér fyrir, felur í sér raunhæfar till., og það á mikinn meiri hluta um allt land með sér. Það er alveg gefið mál, annars hefðu komið fram veruleg mótmæli alls staðar, ef svo væri ekki. Ég vil undirstrika það, að Landhelgisgæzlan hefur sagt það, og athugað þessar till. mjög vel áður, að þær væru einfaldari til gæzlu og þægilegri í framkvæmd en verið hefur. Svo við þurfum ekki að óttast það, að það sé ekki einhver vilji fyrir að fylgja l., sem ég vil alvarlega undirstrika, að verður að vera, annars eru öll l. úr böndum, og l. á sjó eiga að vera jafnrétthá og það á að fylgja þeim alveg eins eftir og l. í landi. En ég óttast ekki þann þátt, að það sé ekki hægt að framkvæma l. Það eina, sem mætti segja, vegna þess að hér er um miklu meira af beinum, löngum línum að ræða heldur en var, er að nauðsynlegt væri að hafa hraðskreiðari skip eða jafnvel þyrlu til þess að fljúga eftir línunni, en það er ekki mikið vandamál, það hafa sagt mér þessir sérfræðingar, vegna þess að þeir hafa radar og þeir sigla í ákveðinni fjarlægð eftir korti, og það er ekki erfið framkvæmd, síður en svo.
Ég vil aðeins vænta þess, að frv. fái framgang óbreytt, því það er mjög mikilvægt, annars kann að skapast við þetta mál enn einu sinni vandræðaástand, og ég reikna ekki með því, að það sé vilji nokkurs manns. Hitt er ósköp eðlilegt að vilja koma fram ákveðnum breyt., við því er ekkert að segja, breyt. eru ekki neitt róttækar, en þær fela samt í sér vissa hættu. sem ég vænti, að menn átti sig á, þannig að þeir leggi frv. lið, eins og það liggur fyrir óbreytt.