02.05.1969
Neðri deild: 87. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 1199 í B-deild Alþingistíðinda. (1266)

222. mál, ríkisreikningurinn 1967

Benedikt Gröndal:

Herra forseti. Við 1. umr. um þetta mál í þessari hæstv. d. komu nokkuð til tals athugasemdir, sem endurskoðendur hafa gert við reikningsfærslur Ríkisútvarpsins, þar er raunverulega um að ræða deilur um bókhaldsfyrirkomulag, en af þessu voru dregnar ýmsar ályktanir, sem ég fyrtist við og vildi ekki láta standa ómótmælt. Í tilefni að þessu máli hefur Ríkisútvarpið gert stutta grg., sem mér finnst nauðsynlegt að komi hér fram, og vil ég leyfa mér að lesa þessa grg. með leyfi hæstv. forseta:

„Í tilefni af athugasemdum yfirskoðunarmanna ríkisreiknings við ársreikninga Ríkisútvarpsins fyrir árið 1967 leyfir stofnunin sér hér með að gefa hinu háa Alþ. eftirfarandi skýringar.

1. Með skattskýrslueyðublöðum fyrir árið 1966 voru send sérstök eyðublöð frá Ríkisútvarpinu til könnunar á útvarps- og sjónvarpsviðtækjaeign landsmanna. Úr svörum var unnið á árinu 1967. Kom í ljós, að allmargar þús. manna höfðu haft hljóðvarps- og sjónvarpsafnot, án þess að stofnunin hefði um það vitað. Reikningar til þessara nýju viðskiptamanna Ríkisútvarpsins voru svo sendir út síðari hluta árs 1967. Við ákvörðun á þeim tíma, sem krafa var gerð fyrir vangreiddum afnotagjöldum, var viðhöfð sú regla að gera mönnum að greiða 3 ár aftur í tímann, ef ekki var önnur vitneskja fyrir hendi. Var fyrir fram vitað, að frá þessari kröfu yrði að falla í mörgum tilfellum að einhverju leyti, enda hefur sú raunin orðið. Í árslok 1967 námu ógreidd afnotagjöld hljóðvarpsins fyrir það ár 5 518 435 kr. Með hliðsjón af því, hversu vafasamar hinar áður umtöluðu kröfur voru samkvæmt framansögðu, var ekki talið fært að telja þær nærri allar til tekna ársins. Var sú aðferð viðhöfð að færa 3/4 af þessari upphæð, eða 4 138 826 kr., í fyrningarsjóð afnotagjalda. Í árslok 1968 er enn óinnheimt af brúttótekjum ársins 1967 4 448 054 kr. eða hærri upphæð en færð var í fyrningarsjóð. Má af því sjá að enn hefur umrædd og umdeild ráðstöfun Ríkisútvarpsins ekki reynzt á röngum forsendum byggð. Þess má að lokum geta í þessu sambandi, að að sjálfsögðu kemur það fram síðar sem tekjur, ef og þegar að því kemur, að eftirstöðvar útistandandi afnotagjalda frá árinu 1967 fara niður fyrir þá upphæð, sem færð var í fyrningarsjóð, þ.e. hinar margumtöluðu kr. 4 millj. 138 þús. 826.

2. Sömu meginforsendur og hér voru raktar lágu til grundvallar áætlun Ríkisútvarpsins á tekjum af afnotagjöldum fyrir sjónvarpsdeild. Var þar bæði ágreiningur um tíma á sama hátt og hjá hljóðvarpi, en til viðbótar hafa útsendar kröfur oft á tíðum reynzt meira og minna vafasamar vegna skorts á fullnægjandi sjónvarpsskilyrðum á ýmsum svæðum, þar sem dreifikerfið var í uppbyggingu, og var þetta fyrir fram vitað. Verður þetta eigi rakið hér tölulega, en niðurstöður eru í meginatriðum hinar sömu og í hljóðvarpsdeild.

3. Í 2. málsgr. 16. gr. 1. nr. 52 13. maí 1966, um ríkisbókhald, gerð ríkisreiknings og fjárlaga, segir svo: „Beinir skattar skulu færðir á álagningarárinu með frádrætti fyrir vanhöldum framkomnum eða áætluðum við reikningslokun.“ Ákvæði þetta var haft í huga, þegar reikningi ársins 1967 var lokað á þann hátt, sem gert var.

F.h. Ríkisútvarpsins

Gunnar Vagnsson.“

Herra forseti. Ég tel rétt, að þessar skýringar komi hér fram. Eins og ég sagði við 1. umr., þá vil ég ekki blanda mér inn í deilur um bókfærsluatriði, og vænti þess, að það náist samkomulag um það, hvernig þau eiga að vera, en ég get ekki látið ómótmælt ýmsum ályktunum, sem dregnar voru af því, hvers vegna Ríkisútvarpið hefði hagað reikningum sínum á þennan hátt, og tel ég því rétt, að þessi skýrsla komi hér fram.