28.11.1968
Neðri deild: 20. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 156 í B-deild Alþingistíðinda. (129)

87. mál, námslán og námsstyrkir

Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. Ég kveð mér ekki hljóðs vegna þess, að ég undrist það nokkurn skapaðan hlut, að hv. síðasti ræðumaður, þm. Alþb., vanþakki það, sem gert er fyrir íslenzka námsmenn bæði heima og erlendis. Ég hefði aldrei látið mér detta annað í hug en úr þeirri átt kæmi vanþakklæti fyrir hvað eina, sem gert er, enda yrði mér engin ánægja að þakklæti úr þeirri átt. Ég kveð mér aðeins hljóðs til þess að taka það fram eða benda á það, að hann fór algerlega rangt með grundvallarstaðreyndir varðandi þetta mál, þ.e.a.s. um það, hvern þátt lánin og styrkirnir eiga í því að greiða námskostnað námsmannanna. Hann sagði, að lánin næmu 30% af námskostnaðinum. Ég tók það skýrt fram í ræðu minni, og það hélt ég, að allir, sem þessum málum eru eitthvað kunnugir eða vilja kynnast, geri sér ljóst eða eigi að vita, að lánin eru 30–80% — 30% á fyrsta ári og upp í 80% á 6. ári — af svo kölluðum umframkostnaði námsmannanna, þ.e.a.s. þeim námskostnaði, sem þeir greiða ekki með framtöldum vinnutekjum. Og hér í Háskólanum hafa lánin numið 25–80% af námskostnaðinum. Ég hef ekki handbærar upplýsingar um það, hvert meðaltalið sé. Það er auðvelt að útvega þær, en ég átti ekki von á því, að hér mundu slíkar fjarstæður bornar á borð, að ég þyrfti á þeim upplýsingum að halda við þessar umr. En augljóst er, að þegar þær reglur, sem námsmennirnir sjálfir hafa sett sér — þessar reglur eru settar af stjórn Lánasjóðsins, ekki af rn., og að því er ég bezt veit með samróma atkv. þar, þó að þær hafi verið nokkuð umdeildar í hópi stúdenta — þá gefur alveg auga leið, að þegar lánin eru 30–80% hjá erlendum stúdentum af kostnaðinum og 25–80% af kostnaðinum hjá stúdentum við Háskóla Íslands, þá er meðaltal einhvers staðar þarna á milli, en auðvitað ekki 30%, eins og hv. þm. hélt fram.

Sú staðhæfing hans, að gengislækkunin bitni á 2/3 hluta kostnaðarins, er því algerlega út í bláinn. Hann endurtók staðhæfingu, sem oft hefur verið við höfð af hans flokksmönnum undanfarið, að lífskjörin muni skerðast á næsta ári vegna gengisbreytingarinnar um 15–20%, og bar vísa menn fyrir því, vísir menn telja, að þetta sé svona. Enginn vís maður hefur látið sér þetta um munn fara. Það eru einungis áróðursmenn Alþb., sem svona hafa talað. Ef vitna á í vísa menn um þetta efni, þá hafa þeir sagt, áætlað, að lífskjaraskerðingin mundi á næsta ári verða einhvers staðar á milli 10 og 12%, og hér ber greinilega á milli þess, sem áróðursmenn Alþb. segja, og þess, sem hann kallaði vísa menn.

Það er enn fremur rangt hjá honum, að það, sem hér er verið að gera, sé aðeins það að hækka gengið, hækka lánin og styrkina sem svarar gengislækkuninni. Ég tók það skýrt fram í ræðu minni áðan, að það er gert meira. Lánasjóðurinn fær 1.7 millj. kr. til viðbótar þessu öllu saman til þess að rétta hlut þeirra, sem eru á 1. og 2. ári og fá minnstan prósenthluta af sínum námskostnaði greiddan með lánum eða styrkjum. Stjórnin tjáði mér að vísu, að hún vildi ekki binda sig við það að nota alla þessa upphæð 1.7 millj., til þessara manna. Það gæti verið, að hún teldi æskilegra að rétta öðrum en mönnum á 1. og 2. ári hjálparhönd með þessu fé, sem hún var mjög glöð yfir að fá og þakklát fyrir. Og það er henni auðvitað að sjálfsögðu frjálst. Og þá vil ég taka það fram enn, sem ég gat um áðan, að þessar breytingar eru gerðar í samráði við stjórn Lánasjóðsins, og mér er óhætt að segja það, að í þeim hópi ríkti almenn ánægja með þessar ráðstafanir. Ég segi auðvitað ekki, að stjórn Lánasjóðsins hefði ekki viljað fá enn þá meira fé. Hún hefði auðvitað viljað fá sem allra, allra mest fé. En þar eru ábyrgir menn, sem gera sér grein fyrir því, að ekki er hægt að verða við öllum óskum, bókstaflega öllum óskum. Og ég endurtek það, að í stjórn Lánasjóðsins var engin rödd, sem ekki taldi þetta vera sanngjarna, skynsamlega og réttláta lausn á miklum vanda, því að sannarlega er það mikið átak að auka þessa stofnun, auka starfsgetu hennar um 17 millj. kr. í einu lagi, eins og nú hefur verið gert, og það er sannarlega mikið, að stofnun fyrir námsmenn í landinu, 600 námsmenn erlendis og 700–800 námsmenn hér við Háskóla Íslands, skuli fá til ráðstöfunar í lánum og styrkjum hvorki meira né minna en 62 millj. kr. á næsta ári. Það hefði þótt saga til næsta bæjar fyrir nokkrum árum, ef það væri vitað, að slíkar fjárhæðir rynnu til þess að styrkja og lána námsmönnum á einu ári.

Að síðustu svo örfá orð varðandi Seðlabankann og vöxt hans. Það er rétt, að starfsmenn Seðlabankans munu vera eitthvað örlítið á 2. hundrað, en þess verður að geta, að Seðlabankanum hefur verið falinn fjöldi nýrra verkefna á undanförnum árum, og hann tók með sér frá Landsbankanum ýmis þeirra verkefna, sem eru hvað frekust á starfskrafta, t.d. ófaglærða starfskrafta stúlkna. Verulegur hluti þessa starfsmannafjölda eru stúlkur, sem annast seðlatalningu og mynttalningu, mjög einfalt starf, en samt sem áður mjög tímafrekt, svo að það er auðvitað að gera algerlega rangan samanburð að bera saman þessa rúmlega 100 starfsmenn Seðlabankans og t.d. starfsmenn stjórnarráðsins. Starfsmenn stjórnarráðsins eru, ef ég svo mætti segja, hákvalifiseraðir starfsmenn bókstaflega allir, en starfsmenn Seðlabankans vinna margir hverjir mjög einföld og stöðluð verk. Ég nefni sem dæmi um það t.d. þessa seðlatalningu og myntvörzlu. En fjmrn. hefur falið Seðlabankanum myntútgáfu, sem áður var í höndum fjmrn. Ef teknir eru sambærilegir starfsmenn í Seðlabankanum við starfsmenn ráðuneytanna, þ.e.a.s. menn með háskólapróf eða mikla starfsreynslu, þá er tala þeirra ekki nema hluti af þessari tölu, sem hv. þm. nefndi.