08.05.1969
Neðri deild: 90. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 1243 í B-deild Alþingistíðinda. (1324)

250. mál, vegalög

Landbrh. (Ingólfur Jónsson):

Herra forseti. Já, það var góðæri 1958. Það var þá, sem togararnir sigldu á Nýfundnalandsmið og fylltu sig á tveimur til þremur sólarhringum. Og sjaldan eða aldrei hafa aflabrögðin verið meiri heldur en þá. Þetta er alveg rétt. En hvers vegna fór vinstri stjórnin frá? Var það vegna góðæris? Eða var það vegna þess, að þeir vildu ekki lengur vera í ráðherrastólunum? Það er nú svona, 1958, það eru ekki nema 11 ár síðan, og áreiðanlega hafa ýmsir gleymt því, hvernig ástand þjóðmálanna var þá og ekki gert sér grein fyrir því, hvers vegna vinstri stjórnin fór frá. En það vita flestir, sem um þetta hugsa, að það var nú ekki vegna þess, að ástand þjóðmálanna væri í blóma, en vegna þess að það eru nú ekki eldhúsdagsumr. núna. við erum að ræða um vegamál, og ég vil nú ekki tefja þetta mál, sem á eftir að fara fimm umr. gegnum þingið, þegar þessari er lokið, þá vil ég aðeins segja það, að í árslok 1958 var útgerðin stöðvuð, þá var atvinnulífið fellt í dróma, þá voru skuldirnar við útlönd orðnar það miklar, að við fengum ekki gjaldeyri fyrir brýnustu nauðsynjum.