09.05.1969
Neðri deild: 91. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 1245 í B-deild Alþingistíðinda. (1328)
250. mál, vegalög
Frsm. (Sigurður Bjarnason):
Herra forseti. Samgmn. hv. þd. varð sammála um að mæla með samþykkt frv. þess til breytinga á vegal., sem hér liggur fyrir til 2. umr. Byggjast meðmæli n. á grundvelli þess samkomulags, sem upplýst er, að náðst hefur milli fulltrúa allra þingflokka í fjvn. í fyrsta lagi um hækkun innflutningsgjalds af benzíni og í öðru lagi um, að ríkissjóður taki að sér greiðslur vaxta og afborgana af skuldum þjóðbrauta og landsbrauta á árunum 1970–1972.
N. flytur þá brtt. við frv., að 5. gr. þess verði felld niður. En í þeirri gr. er gert ráð fyrir, að afnumið verði undanþáguákvæði vegal. um greiðslu þungaskatts af skólabifreiðum. Telur samgmn. hins vegar sanngjarnt. að skólabifreiðar njóti þessarar undanþágu áfram. enda þótt segja megi, að óeðlilegt sé, að tekjur Vegasjóðs séu rýrðar með slíku undanþáguákvæði.
Aðalbreytingin, sem felst í þessu frv., er sú, að lagt er til, að innflutningsgjald af benzíni hækki um 1 kr. á lítra og verði kr. 4.67 á hvern benzínlítra. Er þá gert ráð fyrir, að tekjuaukning Vegasjóðs frá 1. júní 1969 til ársloka 1972 verði 260.6 millj. kr. Er hér um að ræða bráðnauðsynlega tekjuöflun til Vegasjóðs. Ef að þessu ráði hefði ekki verið horfið, hefði óhjákvæmilega dregið stórlega úr vegaframkvæmdum víðs vegar um land, en slík ráðstöfun væri í engu samræmi við hina brýnu þörf, sem að kallar í vegamálum í öllum landshlutum. Samkomulagið, sem tekizt hefur um, að ríkissjóður taki að sér greiðslu vaxta og afborgana af skuldum þjóðbrauta og landsbrauta á árunum 1970–1972, felur einnig í sér verulega bót frá því, sem gert var ráð fyrir í till. þeirri til vegáætlunar, sem Alþ. mun afgreiða einhvern næstu daga. Bætt vegasamband milli landshluta og innan þeirra er sameiginlegt hagsmunamál strjálbýlis og þéttbýlis. Vegirnir eru fyrir þjóðina alla, hvar sem þeir eru lagðir. Þá felst sú breyting í 1. gr. þessa frv.. að felldir eru úr tölu landsbrauta rúmlega 223 km. Af þeirri km-tölu er skylt að taka upp í sýsluvegi 209.8 km. Er því hér um að ræða verulega lengingu sýsluvega.
Í 2. gr. frv. felst sú breyting, að sýslunefndir eru skyldaðar til að taka upp í samþykkt um sýsluvegasjóði vegi að öllum býlum, sem ekki hafa beint samband við þjóðvegi, en auk þess, að öllum kirkjustöðum, félagsheimilum, opinberum skólum og heilsuhælum. Einnig er sýslunefnd heimilt að taka í tölu sýsluvega vegi að fullgerðum orkuverum, eyðibýlum, fjallskilaréttum og bryggjum. Loks er heimilað í sýsluvegaáætlun að veita fé til fjallvega. sem nauðsynlegir teljast vegna nýtingar afrétta og beitilanda.
Áformað mun að veita sýsluvegasjóðum nokkurn aukinn stuðning í vegáætlun til þess að sinna auknum verkefnum. Í þessu sambandi er rétt, að það komi fram, að til þessa munu litlar eða nær engar fjárveitingar hafa verið veittar á vegáætlun til hinna svokölluðu hliðarvega að samkomustöðum og öðrum þeim stöðum, sem nú tilheyra þessum flokki vega. Má jafnvel gera ráð fyrir, að aðstaða þeirra batni, er þeir hafa verið teknir upp í sýsluvegatölu.
Í 3. gr. frv. felst sú breyting, að við skiptingu á ríkisframlagi til sýsluvega skuli aðeins taka tillit til lengdar þeirra sýsluvega, sem sýslunefndir eru skyldar að veita fé til.
Að svo mæltu leyfi ég mér, herra forseti, að ítreka. að samgmn. mælir með samþykkt þessa frv. með fyrrgreindri breytingu.