12.05.1969
Efri deild: 92. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 1250 í B-deild Alþingistíðinda. (1336)
250. mál, vegalög
Páll Þorsteinsson:
Herra forseti. Frv. þetta um breyt. á vegal. stendur í nánu sambandi við vegáætlun þá, sem nú er unnið að að setja, því að veigamesta ákvæði þessa frv. er það að hækka skuli benzínskatt um 1 kr. á lítrann og fá á þann hátt auknar tekjur til Vegasjóðs. Þetta frv. minnir okkur á það, enn á ný, hvað verðbólgan er viðsjál og hefur margháttaðar afleiðingar í þjóðfélaginu. Nú er svo komið, að enginn atvinnurekstur er lengur óhultur fyrir hinni miklu verðbólgu, og framkvæmdakostnaður vex sí og æ, eftir því sem verðlagið verður hærra, en framkvæmdaþörfin helzt eigi að síður. Þetta frv. minnir okkur enn fremur á það. að í þjóðfélagi, þar sem efnahagsmál eru á þennan veg, þá hefur það mjög takmarkað gildi að gera áætlanir til margra ára, þó að sú skipan, sem vegal. mæla fyrir um. sé í sjálfu sér eðlileg og heilbrigð. En þm. hafa nú með höndum þetta verkefni, að setja vegáætlun til 4 ára, og þá verður það mjög augljóst, að verkefnin í vegagerð eru enn sem fyrr mjög mikil. Það er eftir að leggja að fullu veg umhverfis landið, og landsbrautir víða út um héruðin eru í því horfi, að ekki verður við annað unað en halda áfram með framkvæmdir í þeim efnum. Skattahækkanir eru að sjálfsögðu ekki ákjósanlegar, og það má segja, að þær ýmist miði að því að hækka verðlagið eða koma fram sem afleiðing af hinu háa verðlagi og hinu óstöðuga gengi, þar sem óhjákvæmilegt er að halda áfram framkvæmdum í allverulegum mæli. Nú virðist því svo, þegar þessi mál eru skoðuð í samhengi — þetta frv. og vegáætlunin — og með tilliti til þeirra stóru verkefna, sem óleyst eru í vegaframkvæmdum, að það sé naumast annað fyrir hendi. heldur en val milli tveggja kosta. Annars vegar það að auka tekjur Vegasjóðs verulega, eins og að er stefnt í þessu frv., eða hitt, að framkvæmdir, sérstaklega í landsbrautum og þjóðbrautum, dragist saman, frá því sem verið hefur, og verði engan veginn í því horfi, sem brýn nauðsyn krefur. Ég vil segja, að þegar litið er á málið frá þessum sjónarhól, þá tel ég þann kost skárri að auka tekjur Vegasjóðs, heldur en að fella niður að miklu leyti framkvæmdir í landsbrautum og þjóðbrautum í næstu 4 ár. Ég tel því, að gildar ástæður séu fyrir því. að frv. þetta er fram komið.