17.12.1968
Neðri deild: 31. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 162 í B-deild Alþingistíðinda. (138)

87. mál, námslán og námsstyrkir

Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. Mér eru mjög vel ljósir þeir miklu erfiðleikar, sem steðja að íslenzkum námsmönnum erlendis vegna síðustu gengisbreytingar íslenzku krónunnar. Fjvn. hefur þegar lagt til við Alþ., að ráðstöfunarfé Lánasjóðs íslenzkra námsmanna verði aukið um því sem næst 16 millj. kr. Ríkisstj. mun halda áfram athugunum á því, hvort og með hverjum hætti tiltækilegt er að auka þessa aðstoð við íslenzka námsmenn enn frekar, og ég segi nei.