29.04.1969
Efri deild: 80. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 1332 í B-deild Alþingistíðinda. (1430)

63. mál, Verðjöfnunarsjóður fiskiðnaðarins

Frsm. (Jón Árnason):

Herra forseti. Frv. til l. um Verðjöfnunarsjóð fiskiðnaðarins hefur verið til athugunar hjá sjútvn. um nokkurn tíma. N. leitaði umsagnar um málið hjá eftirtöldum aðilum: Landssambandi ísl. útvegsmanna. Sambandi ísl. samvinnufélaga, Sölusambandi ísl. fiskframleiðenda, Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna og Síldarverksmiðjum ríkisins. Eins og fram kemur í nál. sjútvn. um málið á þskj. 572, eru það tveir aðilar, Samband ísl. samvinnufélaga og Sölusamband ísl. fiskframleiðenda, sem gera engar aths. við frv. og mæla með samþykkt þess óbreytts. Landssamband ísl. útvegsmanna mælir einnig með því, að frv. verði samþ., en leggur jafnframt til. að gerðar verði á því nokkrar breytingar. Hefur n. að nokkru leyti haft till. frá Landssambandinu til hliðsjónar við afgreiðslu málsins og tillögugerð. Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna tekur ekki afstöðu til frv. í heild né sérstakra gr. þess, en telur hins vegar, að málið þurfi miklu meiri athugunar við, áður en það sé samþ. Leggur Sölumiðstöðin til. að skipuð sé sérstök n. með aðild fulltrúa fiskiðnaðarins, þeirra sem fengu send frumdrög að reglugerð um starfshætti hugsanlegs verðjöfnunarsjóðs. Stjórn Síldarverksmiðja ríkisins telur einnig, að málið þurfi meiri athugunar við, áður en það sé lögfest. Hún leggur til. að skipuð verði mþn. í málið, sem skili áliti fyrir næsta þing.

Það er hins vegar einróma skoðun sjútvn., að hér sé um mikið nauðsynjamál að ræða, sem ekki megi fresta og hefði reyndar þurft að vera búið að lögfesta slík ákvæði sem hér um ræðir löngu fyrr. Hinar miklu sveiflur annars vegar í sjávaraflanum og hins vegar í verðlagi afurðanna tala sínu máli um nauðsyn þess, að komið verði á meira jafnvægi í rekstrinum. Með I. um Aflatryggingasjóð sjávarútvegsins voru af hálfu þess opinbera gerðar veigamiklar ráðstafanir til að draga úr þeim erfiðleikum, sem skapast. þegar aflabrest ber að höndum. Með því frv., sem hér er til umr., er hins vegar ætlað að skapa meira jafnvægi millí ára um verðlag sjávarútvegsins. Hvort þeim tilgangi verður náð með þessu frv., verður ekkert fullyrt um, en þar verður reynslan að skera úr. Mér finnst þó, að reynsla undanfarinna ára gefi fullkomið tilefni til þess að ætla, að slík sjóðsstofnun sem þessi geti, ef rétt er á haldið, minnkað óheillavænleg áhrif mikilla verðsveiflna og þannig komið á meira jafnvægi í atvinnurekstrinum.

Á þskj. 573 hefur sjútvn. leyft sér að bera fram brtt. við frv., og mun ég nú gera nokkra grein fyrir þeim till. nefndarinnar.

Í fyrsta lagi er till. um orðalagsbreytingu á 2. gr. frv., sem er um skipun sjóðsstjórnarinnar. Er þar kveðið skýrar á um það, á hvern hátt fulltrúar viðkomandi greina fiskiðnaðarins taka sæti í sjóðsstjórninni, þannig að jafnan skuli vera tveir fulltrúar frá þeirri grein, sem rætt er um hverju sinni. Hér er höfð hliðsjón af skipan verðlagsráðs sjávarútvegsins, sem hefur gefizt vel.

Í öðru lagi er till. um breyt. á 3. gr. frv. Er hún um deildaskiptingu sjóðsins. Lagt er til, að frestað verði stofnun hinnar almennu deildar sjóðsins, en tekna í hana var ætlað að afla með hluta af útflutningsgjaldi.

Þá er ákveðið samkv. þessari gr., að þegar skuli stofna deild frystra fiskafurða, en heimilt sé síðar að fjölga deildum, og eru nánari ákvæði þar um í 10. gr. frv. Hins vegar leggur n. til, að deild fyrir síldariðnaðinn verði ekki ákveðin strax.

Í till. n., sem tekur til breytingar á 4. gr. frv., hafa orðið nokkur mistök, þannig að a-liðurinn hefur fallið niður, og þar átti að koma, að b-liðurinn orðist eins og segir þarna í 3. liðnum, að slepptu „stofnfé verðjöfnunarsjóðs skal vera“, þar átti að koma: „Fé samkv. d-lið 2. gr.“ o.s.frv. Ég mun því fyrir hönd n. við þessa umr. málsins taka aftur þessa brtt. til 3. umr., því að það er nauðsynlegt að umorða hana á ný. Það er við 4. gr., 3. liður brtt.

Næst kemur svo till. við 5. gr. frv., en hún tekur til um tekjur sjóðsins. Þar er lagt til, að a-liður falli niður, og þá ekki gert ráð fyrir, að tekna verði aflað með útflutningsgjaldi.

Við 7. gr. er brtt., sem er nokkru víðtækari en tillgr. í frv. M.a. er lagt til, að hliðsjón sé höfð af niðurstöðu verðlagsráðs sjávarútvegsins um afkomu framleiðslunnar, þegar verðgrundvöllurinn er fundinn.

Við 8. gr. er brtt. Þar kemur fram, að talið er rétt, að auk þess að gert er ráð fyrir að hafa verðlag afurðanna til viðmiðunar, þegar bætur eru ákveðnar eða gjöld til sjóðsins, beri einnig að hafa hliðsjón af heildaraflamagni. Við töldum, að það væri nauðsynlegt að bæta þessu við, því að vitanlega skiptir það miklu máli um afkomu fyrirtækjanna, ekki aðeins að verðið haldist hátt, ef hitt vantar, að nægilegt magn fáist til vinnslunnar.

Brtt. við 10. gr. frv. þarfnast ekki skýringar við. Herra forseti. Ég hef þá lokið við að gera grein fyrir till. sjútvn. við frv. til l. um Verðjöfnunarsjóð fiskiðnaðarins og vænti, að þannig breytt verði frv. samþ. og því að lokinni þessari umr. vísað til 3. umr.