09.05.1969
Neðri deild: 91. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 1383 í B-deild Alþingistíðinda. (1491)

216. mál, lán vegna framkvæmdaáætlunar 1969

Jón Skaftason:

Herra forseti. Ég verð að segja það, að sú ræða, sem hæstv. fjmrh. flutti hér áðan út af þeim brtt., sem hér eru til umr., olli mér verulega miklum vonbrigðum op skýtur að mínu viti mjög skökku við þær vonir, sem þeir hv. alþm., sem viðstaddir voru umr. hér í gær og hlustuðu á hæstv. heilbrmrh. tala, gátu gert sér um framgang þessara mála.

Hæstv. fjmrh. tók það fram, að hann teldi, að brtt. mín o.fl. þm. á þskj. 632 um lántökuheimild að fjárhæð 20 millj. kr. til þess að ráðast í framkvæmdir við Fæðingardeildina, ætti ekki heima í framkvæmdaáætlun. Ég skil hann þannig, að hann eigi ekki beint við það, að það sé formlega rangt hjá okkur flm. að flytja þessar brtt. við framkvæmdaáætlunina, heldur hitt, að hæstv. ríkisstj. hafi ekki hugsað sér, þegar hún samdi þessa framkvæmdaáætlun og hún var lögð fyrir hv. Alþ., að ráðast í þá framkvæmd, sem meiningin er að gera mögulega með þeirri brtt., sem við höfum flutt. En það gildir ekkert sérstakt um framkvæmdaáætlunina umfram önnur stjórnarfrv., Alþ. má breyta þeim, og það er einmitt það, sem við erum að leggja til með okkar brtt., að vegna þeirra brýnu þarfa, sem á því eru að eitthvað sé gert í sambandi við Fæðingardeild Landspítalans, og vegna þess mikla þrýstings, sem hefur verið í þessu máli, og þess velvilja, sem við töldum, að væri til staðar á hv. Alþ. um málið, leggjum við flm. til, að framkvæmdaáætlun sé breytt á þann veg, að lántökuheimildir ríkisstj. á árinu 1969 verði hækkaðar um 20 millj. kr. og sú fjárveiting verði notuð til framkvæmda í þágu Fæðingardeildarinnar. Nú hefur hæstv. fjmrh. algerlega neitað því að verða við þessum óskum okkar, sem að brtt. stöndum, og gengur þar um leið þvert á þann vilja, sem uppi er hjá kvenfólki í landinu í þessu efni. Hæstv. fjmrh. benti á, að það væri tilgangslaust að flytja svona brtt. eða leita heimildar fyrir ríkisstj. til þess að fá slíka lántökuheimild, vegna þess, eins og hann orðaði það, að hæstv. heilbrmrh. hefði gefið þá yfirlýsingu hér í umr. í gær, að framkvæmdir í þessum efnum gætu ekki átt sér stað á þessu ári. Og bar hann þar fyrir sig húsameistara og landlækni. Ég benti á það hins vegar í minni ræðu hér áðan, að það hefði áður gerzt, að hæstv. heilbrmrh. hefði gefið yfirlýsingar hér í hv. Alþ. einmitt um þetta málefni, sem hann síðan við nánari athugun hefur tekið aftur, og á ég þá við það, að þann 26. marz s.l. í umr. um þessi mál lýsti hæstv. heilbrmrh. því yfir, að framkvæmdir gætu ekki hafizt í sambandi við byggingu á Fæðingardeildinni, fyrr en í fyrsta lagi á árinu 1972, en þessari yfirlýsingu (Dómsmrh.: Þetta er rangt.) breytti hann í umr. í gær og taldi, að allar líkur væru á því, að hægt væri að hefjast handa í þessu máli vorið 1970. Hæstv. ráðh. kallar fram í, að þetta sé rangt. Það vill svo vel til, að ég er með tilvitnun úr þeirri ræðu, sem hæstv. ráðh. flutti 26. marz s.l., eins og hún er birt í Morgunblaðinu, og sé hún ekki rétt með farin, á hann við það blað að sakast. En með leyfi hæstv. forseta langar mig til að lesa upp örstutta setningu úr þeirri ræðu; en þar stendur svona í Morgunblaðinu þann 27. marz, haft eftir hæstv. ráðh.: „Verði ekki hægt að veita stórlega auknu fé til byggingarframkvæmda á Landspítalalóðinni, eru ekki miklar horfur á, að unnt verði að hefja nýjar framkvæmdir fyrr en 1972. Hæstv. Alþ. ákvarðar fjárveitingar frá ári til árs og fjárhagsgetan markast að sjálfsögðu af efnum og ástæðum þjóðarinnar eins og hinu, hvaða forgang hv. þm. vilja veita slíkum fjárframlögum umfram önnur.“

Þannig hljóðar í frásögn Morgunblaðsins þessi hluti ræðu hæstv. heilbrmrh., sem hann nú virðist ekki vilja kannast við.

Hæstv. fjmrh. sagði enn fremur áðan, að það væri óskynsamlegt að afla fjárveitinga sem síðan væri beðið með. Ég og fleiri hv. þm. erum þeirrar skoðunar, og þykjumst þar styðjast við nokkuð sterk rök, sem fram hafa komið í umr. um þessi mál, að það sé fjarri því, að það sé gefið mál, að ekki sé hægt að byrja þessar framkvæmdir þegar á þessu ári. Ég las upp hér úr viðtali við dr. Gunnlaug Snædal lækni, sem birtist í Tímanum hinn 16. apríl s.l., og þar er gefið fyllilega í skyn af honum, að það sé hægt að byrja þegar strax á þessu ári. Ég las það upp áðan, hæstv. ráðh. var ekki viðlátinn, en ég er með greinina, ef hann vill, að ég lesi þetta. (Gripið fram í.) Það er svo aftur annað mál, hvort hæstv. ráðh. skipti það nokkru máli, hvaða álit sá læknir, sem sennilega þekkir bezt til þessara mála, vegna þess að hann hefur starfað þarna um mörg ár, hefur á þessu atriði. En mig skiptir það máli og ég tek mjög verulegt tillit til þess, hvað þessi læknir segir um þetta atriði. (Gripið fram í.) Já, meðal annars, hann hefur starfað með húsameistara. Hæstv. ráðh. upplýsti og það kemur fram í viðtalinu við Gunnlaug Snædal, ég man ekki hvort það var árið 1967 eða einhvern tíma um það leyti, að hann var í n. með m.a. húsameistara ríkisins til þess að athuga, hvernig væri bezt að snúa sér í þessum málum og hvenær væri hægt að hefja framkvæmdir í þeim, og ég tel, að hann hafi talsvert fyrir sér og hafi fengið upplýsingar í sambandi við þau nefndarstörf.

En sem sagt, að endingu aðeins þetta: Sú yfirlýsing hæstv. fjmrh. nú, að ekki komi til mála að samþ. brtt. okkar, hefur valdið mér og ábyggilega fleirum miklum vonbrigðum. Ég tel ekki efnisrök fyrir því að segja, að það sé ekki þörf á slíkri heimild, vegna þess að ekki sé hægt að hefja þessar framkvæmdir fyrr en í fyrsta lagi á næsta ári, og ég vísa til þess, sem ég og margir aðrir hafa sagt um þetta atriði.