12.05.1969
Neðri deild: 93. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 1408 í B-deild Alþingistíðinda. (1526)

159. mál, kjarasamningar opinberra starfsmanna

Matthías Á. Mathiesen:

Herra forseti. Það hefur dregizt að ljúka 3. umr. um þetta mál, og var það vegna óskar, sem fram kom frá mér. Það lá fyrir erindi og liggur fyrir fjhn. þessarar hv. d. um breytingu á þessu lagafrv. Erindið er frá Sambandi ísl. sveitarfélaga og varðar málefni þess, svo og starfsmenn sveitarfélaganna. Nm. voru sammála um það, að málið eða málaleitun sú, sem hér var um að ræða, yrði ekki tekin til athugunar öðruvísi en samkomulag væri á milli sveitarfélaganna og starfsmanna þeirra, eins og meðferð þessa máls frá upphafi hefur verið, þ.e.a.s. um kjarasamninga opinberra starfsmanna. Það hefur ekki enn borizt til n. niðurstaða af þeim umr., sem átt hafa sér stað á milli þessara aðila. Ef svo væri, mundi vera hægt að koma að þeim breytingum, sem þeir urðu sammála um, við umr. um málið í Ed., en til þess að tefja ekki fyrir framgangi málsins er rétt, að málinu verði lokið í þessari hv. þd.