24.03.1969
Efri deild: 62. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 1411 í B-deild Alþingistíðinda. (1537)

188. mál, aflatryggingasjóður sjávarútvegsins

Félmrh. (Eggert G. Þorsteinsson):

Herra forseti. Það má segja, að flutningur þessa frv. sé tvíþættur. Það er í fyrsta lagi lagt til, að framlag ríkissjóðs til aflatryggingasjóðs verði lækkað, þannig að það verði fjórðungur á móti útflutningsgjaldi í stað helmings áður. Í öðru lagi er frv. flutt til staðfestingar samkomulags um greiðslu upp í fæðiskostnað skipverja á bátaflotanum. Skal ég nú víkja með örfáum orðum að hvorum þessara þátta fyrir sig.

Ef ákvæði l. um sjóðinn stæðu óbreytt þannig, að framlag ríkissjóðs yrði áfram helmingur á móti útflutningsgjaldi, hefði framlag ríkissjóðs þurft að hækka um 20 millj. kr. á fjárlögum árið 1969, bæði vegna krónuhækkunar útflutningsgjaldsins af völdum gengisbreytingarinnar, svo og vegna hækkunar frá fyrra ári, þar sem ákvæði l. nr. 5 frá 1968, um ráðstafanir til lækkunar ríkisútgjalda giltu aðeins fyrir árið 1968, en með þeim var ákveðið, að framlag ríkissjóðs skyldi vera þriðjungur á móti útflutningsgjaldi á því ári. Í fjárlögum ársins 1969 er við það miðað, að framlag ríkissjóðs verði óbreytt í krónum frá fjárlögum 1968, en það svarar því sem næst til þess, að mótframlag ríkissjóðs sé 1/4 hluti útflutningsgjaldsins, eins og lagt er til með frv. þessu. Með afgreiðslu fjárlaga fyrir jól, var í raun tekin ákvörðun um minnkun á framlagi ríkissjóðs svo sem frv. gerir ráð fyrir.

Samkvæmt útflutningsspá Efnahagsstofnunarinnar mun gengisbreytingin í nóvember s.l. valda því, að tekjur aflatryggingasjóðs af útflutningsgjaldi aukast um 26 millj. kr. á árinu 1969. Ef frv. þetta verður að l., verður ráðstöfunarfé aflatryggingasjóðs 110 millj. kr. árið 1969. Sé litið á bótagreiðslur úr sjóðnum undanfarin ár, má álykta, að um 110 millj. kr., sem yrðu til ráðstöfunar árið 1969 samkv. framangreindum forsendum, ættu að nægja til þess, að sjóðurinn gæti staðizt með óbreyttum reglum þrátt fyrir þá lagabreytingu, sem frv. felur í sér.

Eins og áður sagði, er frv. einnig flutt til staðfestingar á samkomulagi um greiðslu fæðiskostnaðar skipverja á bátaflotanum. Í samningum þeim, sem gerðir voru í febrúar s.l. á milli sjómanna á bátaflotanum og útvegsmanna, og í miðlunartill., sem lögfestar voru í kjaradeilu útvegsmanna og yfirmanna á bátaflotanum þann 18. febr. s.l., fólst samkomulag það, er frv. er ætlað að lögfesta. Samkvæmt frv. er gert ráð fyrir því, að við aflatryggingasjóð skuli starfa sérstök deild, áhafnadeild, sem greiði hluta af fæðiskostnaði manna á fiskibátum, og verði árlegar tekjur deildarinnar 1% af fob-verði útfluttra sjávarafurða. Skal greiða úr deildinni 100 kr. á úthaldsdag og áhafnarmann vegna áhafna á fiskibátum 151 brúttórúmlest að stærð og stærri, en 85 kr. á úthaldsdag á áhafnarmann vegna áhafna á fiskibátum undir 151 brúttórúmlest að stærð. Greiðslur skulu vera ársfjórðungslegar. Við ákvörðun úthaldsdagafjölda og áhafnarstærðar skal sjóðurinn styðjast við úthaldsskýrslur Fiskifélags Íslands og upplýsingarlögskráningarstjóra.

Svo sem áður er sagt, er frv. þetta flutt til staðfestingar á ákvörðunum, sem þegar hafa að nokkru verið teknar. Í fyrsta lagi fjallar frv. um lækkun ríkissjóðsframlags í samræmi við ákvörðun Alþ. við afgreiðslu fjárlaga fyrir jól, og í öðru lagi er frv. flutt til staðfestingar á fyrrnefndu samkomulagi, sem gert var um greiðslu upp í fæðiskostnað skipverja á bátaflotanum. Nauðsyn ber til, að báðir þessir þættir fái nú afgreiðslu Alþ. hið allra fyrsta, og vildi ég fara fram á það sama og ég gerði við fyrri dagskrárlið hér, um fiskveiðasjóðinn, að n. beggja deilda störfuðu saman að undirbúningi málsins úr n., þannig að með því móti mætti hraða nokkuð afgreiðslu málsins.

Ég legg til, herra forseti, að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. sjútvn.