17.12.1968
Neðri deild: 31. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 164 í B-deild Alþingistíðinda. (155)
116. mál, skólakostnaður
Frsm. meiri hl. (Benedikt Gröndal):
Herra forseti.
Samkv. 1. frá 1967 um skólakostnað var ætlunin að breyta greiðslu á ríkisframlögum til skólabygginga á þann veg, að í stað þess, að ríkið inni greiðslurnar af hendi á 5 árum, skuli það gerast á 2–3 árum. Þegar að því kemur, að þessi lög komi til framkvæmda, hefur komið í ljós í störfum fjvn., að miklir annmarkar eru á því að færa greiðslurnar alla leið úr 5 árum niður í 3 ár. Ef þriggja ára reglan ætti að gilda, mundu framlög til þeirra skóla, sem byrjað er á, þurfa að vera það mikið hærri, að vart mundi verða hægt að byrja á nýjum skólum. Af þessum sökum hefur þótt óhjákvæmilegt að leggja til við Alþ., að það samþykki, að á árinu 1967 skuli framlög til nýrra skólamannvirkja skiptast á fjögurra ára greiðslutímabil. Samkv. 1. gr. frv. er þetta bundið við árið 1967.
Menntmn. hefur athugað þetta mál og ekki orðið sammála um afgreiðslu þess. Meiri hl. mælir með því, að frv. verði samþ. óbreytt.