16.05.1969
Efri deild: 97. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 1423 í B-deild Alþingistíðinda. (1559)

188. mál, aflatryggingasjóður sjávarútvegsins

Frsm. (Jón Árnason):

Herra forseti. Ég skal ekki lengja umr. mikið. Ég vil aðeins taka það fram, að ég tók þá afstöðu í n., eins og kom fram hjá hv. frsm. sjútvn., að vera með því, að þessi breyting yrði tekin inn í frv. Og ég tel, að hér sé aðeins um réttlætismál að ræða. Það kemur fram, að innheimta á 1% útflutningsgjald af sjávarafurðum bátanna. Og þess vegna eru það alveg eins þessir menn, landmennirnir, sem leggja fé af mörkum til þess að standa undir kostnaðinum við fæðispeningana, og það væri bara verið að mismuna mönnum á bátunum með því að taka af öllum, en láta bara suma fá það. Þetta er ekkert annað en kaupuppbót, sem þarna er um að ræða, aukin hlunnindi, og ég tel það rétt, að það komi í hlut allra skipverjanna, en ekki nokkurra. Hitt er líka rétt, sem hv. síðasti ræðumaður sagði, að það hefði kannski átt að ganga lengra. En þá er aftur annað sjónarmið, sem kemur þar til greina, að smærri bátarnir, undir 12 lestum, hafa ekki jafnsamfellt úthald og stærri bátarnir, og þess vegna hefði verið meiri vandi á höndum að fylgjast með því. Maður veit, að það er slitróttara úthald hjá minni bátunum en er hjá stærri bátunum, sem haldið er úti yfir vertíðina, og þess vegna má segja, að það sé ekki að öllu leyti sambærilegt, og að það sé miðað við 12 smálestir, eins og í frv. felst, það tel ég að sé rétt. Mér finnst, að hér sé aðeins um réttlætismál að ræða gagnvart landmönnunum á fiskibátunum. Þetta kemur eingöngu við á línubátunum, því að það eru einu bátarnir, sem eru með tvískiptan mannskap, helminginn á sjó og helminginn í landi, og þar sem þeir eru skattlagðir allir jafnt, er ekki óeðlilegt, að þeir hafi sömu hlunnindi allir jafnt.