25.02.1969
Neðri deild: 56. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 1437 í B-deild Alþingistíðinda. (1581)
138. mál, Vestfjarðaáætlun og Norðurlandsáætlun
Fjmrh. (Magnús Jónsson):
Herra forseti. Frv. þetta er flutt til staðfestingar á brbl., sem gefin voru út 31. des. s.l. Nú kann hv. þdm. að finnast það einkennilegt, að það hafi þurft að grípa til þess að gefa út brbl., rétt eftir að þingfundum lauk og áður en þing kæmi saman aftur að loknu jólaleyfi. En orsök þess er sú, að mál þetta bar að með nokkuð bráðum hætti. Það hefur áður verið frá því skýrt, að leitað hafi verið eftir lánum hjá Viðreisnarsjóðnum varðandi hugsanlega Norðurlandsáætlun og framhaldslántaka vegna Vestfjarðaáætlunar hafði einnig verið boðuð, en það er framhald af þeim viðskiptum, sem verið hafa við Viðreisnarsjóðinn varðandi þá áætlun.
En ástæðan til þess, að málið bar svo brátt að, var sú, að Viðreisnarsjóðurinn ákvað að bjóða út lán í janúarmánuði, og það varð að ákveða það þá þegar, og ekki aðeins ákveða það, heldur að taka lánið fyrir janúarlok, ef við ætluðum að njóta þess að fá umbeðið lán.
Það lán, sem hér er um að ræða, samsvarar 10 millj. þýzkra marka, og skiptist í tvennt, 2 millj. marka og 8 millj. marka: 2 millj. marka vegna Vestfjarðaáætlunar og 8 millj. marka, eða um 180 millj. kr., vegna Norðurlandsáætlunar.
Hér er um lokalántöku að ræða vegna samgönguáætlunar Vestfjarða, og ætti með þessu fjármagni að vera auðið að ljúka henni. Að vísu vantar þar nokkuð á, en það eru svo litlar fjárhæðir, sem um er að ræða — milli 10 og 20 millj. kr., sem þar á vantar — að það verður að gera ráð fyrir, að þess verði aflað með öðrum hætti. Vestfjarðaáætlun hefur oft áður verið hér til umr. Síðast þegar hún var rædd hér á þingi skýrði ég frá því, að ég teldi sjálfsagt, að samgönguáætlun Vestfjarða yrði birt hv. þm., og ég hef gert ráðstafanir til þess, að hún verði birt með þeim hætti, að í senn verði gerð grein fyrir þeirri áætlun, eins og hún var í upphafi, og síðan verði gerð grein fyrir framkvæmdum á henni, hverjum einstökum þætti hennar. Og ég vænti þess, að innan tíðar geti þessi skýrsla orðið lögð fyrir hv. alþm.
Um Norðurlandsáætlun er það að segja, að henni er enn ekki lokið. Nú er unnið að atvinnumálakafla hennar, og hann er á lokastigi, þannig að viðræður um hann eru ýmist hafnar eða eru að hefjast við þá aðila, sem samkv. upphaflegu samkomulagi um þá áætlun var gert ráð fyrir, að rætt yrði við, sem voru annars vegar samtök sveitarfélaga og einstök sveitarfélög á Norðurlandssvæðinu og hins vegar samtök verkalýðsfélaga á þessu svæði. Eftir eru nokkrir þættir þeirrar áætlunar, bæði samgöngumálakafli og menntamálakafli, sem enn er ekki fullráðið, hvort verða sérþættir eða verða þættir í heildaráætlunum, sem unnið er að varðandi samgöngumál annars vegar og hins vegar menntamál. En lántaka sú, sem hér er gert ráð fyrir, mun fyrst og fremst verða hagnýtt í sambandi við atvinnumálaþátt þessarar áætlunar.
Endanleg ákvörðun hefur ekki verið tekin um það, hvernig eða hver ráðstafi þessu fé eða til hvaða einstakra þátta það renni, en gera má ráð fyrir, að það verði Atvinnujöfnunarsjóður, vegna þess að lögum samkv, er ákveðið, að sá sjóður skuli standa að gerð byggðaáætlana, eftir því sem hann telur þörf á, og annist þá jafnframt framkvæmdirnar.
Um Norðurlandsáætlunina er það að segja, að undirbúningur hennar var hafinn, áður en Atvinnujöfnunarsjóður tók til starfa, og það var með sérstöku samkomulagi milli ríkisstjórnar og verkalýðssamtaka í sambandi við kjarasamninga verkalýðsfélaga á Norðurlandi, sem hafizt var handa um gerð þeirrar áætlunar. Og Efnahagsstofnunin hefur unnið að henni síðan.
Varðandi Vestfjarðaáætlun og ráðstöfun á því fjármagni, sem hér er um að ræða, er það að segja, að því verður ráðstafað með sama hætti og gert hefur verið undanfarin ár til hinna einstöku þátta, sem þar er unnið að og er eftir að vinna að, og það að sjálfsögðu er til reiðu hv. nefnd, sem fær þetta til meðferðar, að gera sér grein fyrir því í einstökum atriðum, hvernig því fé verður varið.
Lánsfé Norðurlandsáætlunar verður ekki ráðstafað fyrr en ákvarðanir hafa verið teknar í sambandi við. hvaða þættir það verða, sem það fé sérstaklega verður látið renna til.
Ég sé ekki ástæðu til, herra forseti, nema sérstakt tilefni gefist til, að fara um málið fleiri orðum. Frv. fékk einróma samþ. hv. Ed., og leyfi ég mér að vænta þess, að um það geti einnig orðið samstaða hér í hv. Nd.