16.05.1969
Neðri deild: 95. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 1531 í B-deild Alþingistíðinda. (1632)

209. mál, kísilgúrverksmiðja við Mývatn

Frsm. minni hl. (Magnús Kjartansson):

Herra forseti. Ég vildi aðeins bæta við örfáum orðum út af þeim ummælum hæstv. fjmrh., að ég væri með kröfur um sérstaka sakamálarannsóknarmenn. Ég hef ekki borið fram neina kröfu um sakamálarannsókn. Ég hef hins vegar gert kröfu um rannsókn, sem leiði í ljós staðreyndir í þessu alvarlega máli. Þarna er um að ræða mistök, sem kostað hafa þjóðina tugi og aftur tugi millj. kr. og hæstv. ráðh. hefur orðið ekki aðeins tvísaga, heldur margsaga gagnvart Alþingi, hvað þetta mál snertir. Í grg. frv. þess, sem hér liggur fyrir, er það sagt berum orðum, að mistökin stafi af því, að við höfum ekki fengið þær vélar, sem við báðum um. Þar er komizt svo að orði, ég hef vitnað í það áður, og ég skal gera það enn, með leyfi hæstv. forseta:

„Um votvinnslukerfið þykir það hins vegar sýnt, að afkastageta þess muni reynast minni en aðilar höfðu ætlazt til. Má rekja það til þurrkara verksmiðjunnar, sem eru ekki eins öflugir og við var búizt, og einnig hafa að jafnaði orðið í þeim nokkur efnistöp við útgufun. Virðist hönnun þurrkaranna ekki hafa verið í samræmi við þær forsendur, sem áætlanir aðilanna voru byggðar á.“

Þarna segir hæstv. ráðh. alþm., að þessum vélum hafi ekki verið skilað eins og um var beðið. Þetta eru þær forsendur, sem liggja fyrir frá hálfu hæstv. ríkisstj. En nú segir hæstv. ráðh. eftir umræður í þinginu, að það séu vísindastörfin, sem ekki hafi reynzt nógu góð, vitneskja okkar hafi ekki verið nógu mikil. Þetta er allt önnur skýring en er í frv. sjálfu. Í þessu felst það að sjálfsögðu, að hæstv. ráðh. veit ekki í hverju mistökin eru fólgin. Þegar við vitum ekki, í hverju slík mistök eru fólgin, verður að rannsaka það. Það er algerlega óhjákvæmilegt. Í iðnn. skýrði Pétur Pétursson frá því, að stjórn Kísiliðjunnar hefði í höndum bréf frá fyrirtækinu Hardings, sem gerði þurrkarana, þar sem fyrirtækið hefði staðhæft, að í þessum þurrkurum yrði ekkert efnistap. Pétur Pétursson sagði, að ríkisstj. hefði þetta í höndum skriflega. Samt staðhæfir hæstv. ráðh., að ekki sé hægt að gera skaðabótakröfu á þetta fyrirtæki, sem hefur ekki staðið við að vinna það verk, sem það hafði heitið skriflega. Mér finnst, að rannsókn verði í fyrsta lagi að leiða í ljós, hvort við eigum ekki skaðabótarétt á hið erlenda fyrirtæki, því að ef við eigum skaðabótarétt getum við væntanlega endurheimt nokkra tugi millj. kr. af þeim fjármunum, sem við höfum tapað, og það er sannarlega ómaksins vert að rannsaka slíkt til hlítar. Ef mistökin eru hins vegar fólgin í því að vísindamenn okkar hafi ekki séð nógu vel það, sem gera þurfti, eða eitthvað annað hefur mistekizt, ef lögfræðingar hafa ekki kunnað að ganga nógu vel frá samningunum, þurfum við einnig að vita þetta. Ekki til þess að hefja sakamálarannsókn á menn, ekki til þess að hengja hvorki smið eða bakara, heldur til þess að við gerum ekki slík mistök aftur. Það er ósköp eðlilegt, að þegar Íslendingar hefja nýjar aðgerðir á sviði, þar sem þá skortir reynslu, geti þeim orðið á alls konar mistök, en þá verða menn að læra af mistökunum, þá verða menn að hafa kraft í sér til þess að kanna það til hlítar, hvar þeim hafi orðið á skyssa til þess að gera hana ekki aftur. Jafnvel þótt slík rannsókn kosti einhverja fjármuni, er ég sannfærður um það, að hún margborgar sig. Þegar ég ræddi þetta við 1. umr. fannst mér hæstv. ráðh. láta í ljós skilning á þessu atriði, en það hefur því miður dregið úr þeim skilningi núna. Það eru mér mikil vonbrigði. Mér finnst, ef hæstv. ráðh. er sannfærður um það, eins og hann segist vera, og ég hef enga ástæðu til þess að draga í efa, að þarna hafi ekki annað gerzt en það, sem hægt er að flokka undir mannlegan breyskleika, þá ætti hann síður en svo að óttast slíka rannsókn.

Annars fannst mér undarlegt að heyra hæstv. ráðh. koma hér fram og halda því fram, að hann væri einhvers konar tvískiptur persónuleiki. Hann sagði, að Kísiliðjan hefði heimild til að taka sínar ákvarðanir, hún væri sjálfstætt fyrirtæki. Það væri ekkert óeðlilegt við það, þó að hún væri búin að semja við amerískan aðila um að gera vélbúnað í stækkun verksmiðjunnar, það væri ekkert brot á trúnaði gagnvart Alþingi. En formaður Kísiliðjunnar er hæstv. fjmrh., og hæstv. fjmrh. er trúnaðarmaður Alþingis, og hæstv. fjmrh. veit fjarskalega vel, að það er ekki hægt að ráðast í neina stækkun nema með samþykki Alþingis. Það þýði ekkert að segja okkur, að formaður Kísiliðjunnar, Magnús Jónsson, geti gert eitthvað það, sem hæstv. fjmrh. Magnús Jónsson veit ekkert af eða ber ekki ábyrgð á.

Ég tel, að hæstv. ráðh. hafi með þessu framferði misnotað trúnað, sem honum hefur verið sýndur. (Fjmrh.: Upphaflega var gert ráð fyrir, að Kísiliðjan stækkaði upp í 24 þús. tonn.) Það veit ég ósköp vel. en með því að taka upp samninga við amerískan aðila er sú samningsgerð notuð sem röksemd fyrir því, að það sé ekki hægt að fela þetta verkefni íslenzkum fyrirtækjum, þó að þau bjóði hliðstæð gæði. Þarna er hæstv. ráðh. að setja Alþingi stólinn fyrir dyrnar. Ég er sannfærður um það, að ef slíkt sem þetta hefði komið upp í grannlöndum okkar, Bretlandi eða annars staðar á Norðurlöndum, væri talið, að slíkur ráðh. hefði brotið af sér gagnvart þjóðþinginu. Mér þykir þetta raunar leitt, vegna þess að ég veit, að hæstv. fjmrh. er grandvar maður persónulega. En svona eiga ráðh. ekki að hegða sér.

Hæstv. ráðh. sagði, að við hefðum fengið mikið lánsfé að undanförnu frá Export-Import-bankanum. Það er alveg rétt. En í slíkum lánveitingum er fólgin stefna. Export-Import-bankinn hefur einvörðungu það verkefni að lána fé til framkvæmda, sem unnar eru í Bandaríkjunum. Með því að skipta við þennan banka erum við að skuldbinda okkur til þess að láta bandaríska aðila vinna verk hér á Íslandi. Það er hægt að fá lánsfé hjá fjölmörgum stofnunum öðrum, sem ekki setja slík skilyrði. Það er hægt að fá lánsfé — menn einblína alltaf á Bandaríkin, þegar þá skortir lánsfé og á ég erfitt með að skilja hvers vegna aldrei er leitað fyrir sér t.d. á Norðurlöndum, í Svíþjóð — en í Bandaríkjunum er t.d. Alþjóðabankinn, og Alþjóðabankinn hefur lánað fé til hitaveituframkvæmda á Íslandi, sem unnar hafa verið af íslenzkum aðilum. Hann hefur gert það vegna þess, að þar hafa verið lagðar fram skýrslur, sem sýna, að um er að ræða fjárhagslega traust fyrirtæki, sem á að geta staðið við allar skuldbindingar sínar. Hæstv. fjmrh. staðhæfir nú, að búið sé að kanna það til fullrar hlítar, að þessi Kísilgúrverksmiðja eigi að verða fjárhagslega gott fyrirtæki, þegar búið er að stækka hana upp í fulla stærð. Hann hefur lagt fyrir Alþingi vissar tölur, sem sanni slíkt um arð í samanburði við stofnfé. Var reynt að leggja slíkar áætlanir fyrir Alþjóðabankann og spyrja hann, hvort hann vildi lána okkur fé til þessa? Slíkum lánum hefðu ekki fylgt þau skilyrði, að verkið yrði að vinnast af bandarískum aðilum en ekki íslenzkum.

Þetta er fjarskalega stórt mál. Við verðum að athuga það að atvinnulíf okkar er allt í samhengi og þar verða atvinnuvegirnir að styðja hver annan. Þegar við erum að ráðast í að byggja nýjar verksmiðjur, er það ákaflega mikilvægt atriði, að járniðnaður okkar og verktakar okkar fái öll þau verkefni, sem þeir geta sinnt. Ef þannig er ekki haldið á málum, erum við að brjóta niður íslenzka atvinnuvegi, vegna þess að við teljum okkur vera að byggja upp eitthvað nýtt á öðrum sviðum. En slík stefna er algerlega röng. Það verður að vera samhengi í þessum efnum.