16.05.1969
Neðri deild: 95. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 1533 í B-deild Alþingistíðinda. (1634)

209. mál, kísilgúrverksmiðja við Mývatn

Sigurður Ingimundarson:

Herra forseti. Með tilvísun til þess, sem fram kom í ræðu minni áðan, að framkvæmdir þessar eru fjármagnaðar með þeim hætti, að þær koma ekki í veg fyrir eða í staðinn fyrir neinar aðrar íslenzkar framkvæmdir eða fjárfestingar, en skapa hins vegar mikla atvinnumöguleika við byggingarframkvæmdir og skapa 240 millj. kr. útflutningsframleiðslu, þá segi ég nei.