17.12.1968
Neðri deild: 31. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 189 í B-deild Alþingistíðinda. (166)

116. mál, skólakostnaður

Frsm. minni hl. (Sigurvin Einarsson):

Herra forseti. Ég ætla nú ekki að eyða meiri tíma í að ræða stærðfræði hæstv. ráðh. Ég efast um, að margir skilji hana hér inni. Ég lagði fyrir hann ósköp einfalda spurningu: Hvort hann fengi sömu fjárveitingu út á næsta ári, hvort sem það væri deilt með 4 eða 3 samkv. skólakostnaðarlögunum? Hann svaraði hreinlega játandi.

Hv. 6. þm. Reykv. hefur þó sýnt fram á það, að þarna munar æðimörgum milljónum, en ef þetta er svona hjá hæstv. ráðh., að það er alveg sama, þá er líka sama. hvort þetta frv. er samþ. eða fellt. Þá getur það ekki breytt neinu. Ég skal ekki fara fleiri orðum um þetta atriði.

En það var annað, sem kom fram í ræðu hans hér áðan. Mér þykir alveg merkilegt á þessum takmarkaða tíma, sem þingið hefur núna fyrir jólin, hvað hæstv. ráðh. getur leikið sér að því að vaða elginn um hluti, sem koma ekkert þessu máli við, eins og t.d. að vera að lesa upp nokkurs konar lífshlaup sitt í kennslu- og menntamálum. Það var ekki til umræðu. En hann var ekkert að spara tímann, og þá þarf ég víst ekki að spara hann heldur. En það, sem ég vildi sérstaklega minnast hér á, er það, hvað hann undirstrikaði það rækilega, að skólahúsnæðisskortur í sveitunum væri engin sök hins opinbera, hans eða ríkisstj. Nei, heldur allt á ábyrgð sveitarfélaganna í landinu. Ef nokkurs staðar vantar skólahús, er það á ábyrgð þeirra. Ég held, að þetta þættu nú tíðindi, ef fólk almennt um landið heyrði þetta. Ég ætla að minna hæstv. ráðh. á eina grein, 9. gr. í skólakostnaðarlögunum, sem enn er í gildi, með leyfi hæstv. forseta:

„Eigi má hefja framkvæmdir (skólabyggingarframkvæmdir), fyrr en fé hefur verið veitt í fjárlögum og fyrir liggur skriflegt samþykki menntmrh.“

Það er stranglega bannað með lögum, að nokkur byggi skóla í landinu, fyrr en í fyrsta lagi búið er að veita fé til hans á fjárlögum og í öðru lagi, að hæstv. ráðh. er búinn að samþykkja það. Og svo segir hann nú, að það sé á ábyrgð sveitarfélaganna, ef ekki eru byggðir skólar í landinu. Og meira að segja, í þessari lagagrein stendur: „Ef hafnar eru framkvæmdir án samþykkis rn., verður stofnkostnaður ríkissjóði óviðkomandi.“ Efnislega er þetta: Þið skuluð fá að borga sjálfir, þið sveitarstjórnarmenn, sem vogið ykkur að fara að byggja skóla, án þess að ég samþykki hann og Alþ. sé búið að samþykkja fjárveitingu til hans. Þetta er ekki í góðu samræmi við það, sem hv. ráðh. sagði áðan: Allt á ábyrgð sveitarfélaganna, ef þar vantar skólahús. Svona málflutningi ætla ég að leyfa mér að mótmæla harðlega. Það er ekki á ábyrgð sveitarfélaganna. Það er á ábyrgð ríkisstj., Alþ. og fyrst og fremst menntmrh., ef skortir skólahúsnæði í landinu, hvar sem er, líka hér í Reykjavík. Það eru komin svo ströng fyrirmæli í lög um þetta, að það getur enginn hreyft sig, nema stjórnarvöldin leyfi þeim það. Eða ætli það liggi ekki beiðnir fyrir Alþ. um fjárveitingar til ýmissa skóla. Ég er hræddur um það. Alþ. þarf ekkert að gera annað en neita um fjárveitinguna. Þá verður ekki byggt. Og þetta hefur verið gert. Ég vil minna hæstv. ráðh. á einn skóla, sem með harðri baráttu fékkst loksins inn í lög. Það er menntaskóli á Ísafirði. Hvar er hann? Ég man ekki betur en Vestfirðingar sendu þessum hæstv. ráðh. áskorun um að stofna til menntaskóla á Ísafirði. Áskoranir, sem voru frá um 2000 kjósendum á Vestfjörðum úr öllum flokkum. Þá fyrst fékkst ákvæði sett í lög um þennan menntaskóla. En hann er lágur í loftinu enn þá. Málamyndafjárveitingar, sem ekkert hafa að segja, hafa verið á nokkrum fjárlögum. En að það megi byrja á skólanum, er mér ekki kunnugt um. Svona er það víðs vegar.

Þá sagði hæstv. ráðh., að heimavistarhúsnæði heimavistarskólanna kæmi ekkert ríkisstj. við. Það vantaði reyndar húsnæði þar, en hver á að kosta heimavistirnar í heimavistarskólunum? Ríkissjóður á að kosta þær að fullu. Hefur þá verið sinnt öllum beiðnum um slíkar byggingar? Hafa fjárveitingar fengizt fyrir öllum þeim beiðnum? Hefur hæstv. ráðh. skrifað upp á leyfi til að hefjast handa? Nei. Þó að hæstv. ráðh. víti mig og mína líka fyrir það að hafa verið of harðir í dómum um sig og sínar framkvæmdir, gerir það ekki svo mikið til, við þolum vítur, en ég þoli illa, að sveitarfélögin í landinu fái þann dóm, sem hæstv. ráðh. kvað upp hér áðan, vitandi, hvað stendur í lögunum um þessi atriði.

Mér er kunnugt um nemendur, börn og unglinga, sem fá sáralitla kennslu og unglingar enga, í sveitum, af því að ríkisvaldið og Alþ. hefur ekki fengizt til að samþykkja fjárveitingu til byggingar skóla í viðkomandi héraði. Og ég skal nefna hérað, t.d. Reykhólasveit. Það hefur verið beðið um fjárveitingar í skóla á Reykhólum. Þar fá unglingarnir, sem eru búnir í barnaskólanum, enga kennslu, af því það fæst ekki fé, hefur ekki fengizt ennþá til þess að byggja þarna unglingaskóla til að fullnægja nokkrum sveitum. Ég þekki unglinga þarna, sem verða að sitja heima í vetur, komast hvergi að, ekki í neinum skólanna, sem til eru. Er þetta á ábyrgð sveitarstjórnanna þar? Ég held, að hæstv. ráðh. hljóti að finna það, hvað sem hann kann að segja, að þessi dómur um sveitarstjórnirnar í landinu var óréttmætur, svo að ekki sé meira sagt. Og ég vona, að hann leiðrétti þetta, bókstaflega leiðrétti þetta. Þær eiga ekki skilið þennan dóm.