22.04.1969
Efri deild: 77. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 1545 í B-deild Alþingistíðinda. (1660)
223. mál, verslun ríkisins með áfengi, tóbak og lyf
Fjmrh. (Magnús Jónsson):
Herra forseti. Það voru aðeins örfá orð til þess að forðast misskilning í sambandi við síðustu ummæli hv. 6. þm. Sunnl. Þessi fyrirgreiðsla hefur nefnilega gefið mjög slæma raun, þannig að ég vil ekki láta það misskiljast. Ég er ekki að lasta mitt ágæta fyrirtæki, Áfengis- og tóbaksverzlunina, en reyndin hefur orðið sú, að viðskipti við hana á þessu sviði hafa reynzt sáralítil, og kaupmenn hafa af einhverjum ástæðum ekki haft áhuga á að skipta við hana, þannig að ég mundi ekki ráðleggja neinum að óska eftir þessari fyrirgreiðslu. Það, að tekizt hefur í bili a.m.k. að rétta fyrirtækið við, á á engan hátt skylt við þá sölu, sem átti sér stað hér í jólamánuðinum eða janúarmánuði, því fer svo víðs fjarri. Það eru allt aðrar ástæður, sem liggja því til grundvallar, þannig að ég mundi af þeirri ástæðu ekki treysta mér til þess að mæla með þessu fyrirtæki, sem ég nú ber ábyrgð á, til þess að bjarga við gjaldþrota fyrirtækjum.