06.05.1969
Efri deild: 86. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 1557 í B-deild Alþingistíðinda. (1670)
223. mál, verslun ríkisins með áfengi, tóbak og lyf
Frsm. (Ólafur Björnsson):
Herra forseti. Ég ætla aðeins með örfáum orðum að gera grein fyrir brtt., sem fjhn. hefur flutt á þskj. 651. Ég gat þess í framsöguræðu minni við 2. umr., að n. hefði, eftir að hún gekk frá nál. sínu, borizt bréf frá Apótekarafélagi Íslands, þar sem óskað var smávægilegra breytinga við 2. málsgr. 9. gr. frv. og mundi það vera til athugunar hjá n. á milli umræðna. Niðurstaðan hefur svo orðið sú, að við flytjum þá brtt., sem hér liggur fyrir á þskj. 651.
Það er um 2 breytingar að ræða Önnur er sú í samræmi við ósk Apótekarafélagsins, að á eftir: „ríki og ríkisstofnanir“ í 2. málsgr. 9. gr. kemur: þó ekki til endursölu einstaklingum. En þetta er til að fyrirbyggja, að sá skilningur yrði í þetta lagður, að einstökum ríkisstofnunum væri heimilt að dreifa lyfjum meðal starfsfólks síns í smásölu, en slíkt er auðvitað ekki tilgangurinn, og til þess að taka fyrir alla mistúlkun í þessu efni, þótti okkur að athuguðu máli rétt að taka tillit til óska Lyfsalafélagsins í þessu efni.
Önnur breytingin er sú, sem gerð hefur verið samkvæmt ósk forstöðumanna Lyfjaverzlunar ríkisins að fellt er niður, að Lyfjaverzlun ríkisins sé skylt að útvega sáraumbúðir o.s.frv., þeim aðilum, sem upp eru taldir, öðrum heldur en lyfjaverzlunum. Forstöðumennirnir töldu, að það gæti leitt til árekstra og skapað Lyfjaverzluninni vanda, ef það væri beinlínis sagt í lögunum, að henni væri skylt að útvega lyfjaverzlunum það, sem hér er um að ræða, enda sé það ekki í núgildandi lögum. Og þó að þessi breyting verði gerð, muni það engu breyta um starfsemi Lyfjaverzlunarinnar frá því sem nú er, að hún muni áfram hafa með höndum útvegun þess, sem hér er um að ræða, til þessara aðila, en forstöðumennirnir töldu óeðlilegt, að þetta væri bein skylda samkvæmt lögum, og höfum við í n. að athuguðu máli komizt að þeirri niðurstöðu, að rétt mundi að taka tillit til þessa.