09.05.1969
Neðri deild: 91. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 1564 í B-deild Alþingistíðinda. (1683)

223. mál, verslun ríkisins með áfengi, tóbak og lyf

Fjmrh. (Magnús Jónsson):

Herra forseti. Frv. það, sem hér liggur fyrir, er í rauninni heildarlöggjöf um Áfengis- og tóbaksverzlun og Lyfjaverzlun ríkisins, en til þessa hafa gilt um sölu áfengis, tóbaks og lyfja ferns konar lagaákvæði. Það eru í fyrsta lagi lög um einkasölu á áfengi með síðari breytingum, sem á þeim hafa verið gerðar; lög um einkasölu ríkisins á tóbaki einnig með síðari lagabreytingum; lög um einkasölu á eldspýtum og vindlingapappír, og loks lög, sem sett voru um sameiningu rekstrar Áfengisverzlunar ríkisins og Tóbakseinkasölu ríkisins. Það þótti hentugt að setja um þetta ein lög, sem efnislega eru ekki mikið breytt frá þeim lögum, sem gilda um þessi fyrirtæki hvert fyrir sig, að öðru leyti en því, að ákvæðin um lyfjaverzlunina eru allmiklu fyllri heldur en áður hefur verið, og stafar það af því, að ákvæði þar að lútandi í núgildandi lögum eru mjög ófullkomin.

Það efnisatriði, sem í lögunum felst að öðru leyti og er breyting frá því skipulagi sem nú er, er það, að lagt er til að undanþiggja einkasöluákvæðum ilmvötn, hárvötn, bökunardropa, andlitsvötn og kjarnadropa til iðnaðar. Allt með þeim skilyrðum, að hér sé um að ræða vörur, sem ekki sé hægt að gera drykkjarhæfar og sem sagt, að ekki sé um að ræða neinn spíritusinnflutning af því tagi, sem hægt sé að gera drykkjarhæfan. Einkaréttarákvæði áfengisverzlunarinnar nær til allra slíkra vörutegunda. Það hefur hins vegar komið í ljós í mörgum tilfellum, að þetta er bæði óhentugt og í rauninni ákaflega óeðlilegt, að einkasala með þessar vörur séu í höndum Áfengis- og tóbakseinkasölu ríkisins, svo sem iðnaðarkjörnum og bökunardropum, andlitsvötnum, hárvötnum og ilmvötnum, en það byggist á því, að í þessum vörum er nokkuð af spíritus. En hins vegar hefur þetta oft valdið miklum vandræðum, vegna þess að í stórum stíl eru vörur þessar fluttar inn með öðrum vörum, t.d. í snyrtivörukössum þar sem í eru sápur og ýmsar aðrar snyrtivörur. Það hefur því valdið margvíslegum óþægindum, að þetta ákvæði skuli vera í gildi, en hefur að sjálfsögðu enga grundvallarþýðingu varðandi rekstur Áfengis- og tóbaksverzlunar ríkisins þó að hún losi sig við þessar vörur.

Álagning á þessar vörur er mjög há með einkasölugjaldi, sem á þær er lagt, og mundu þær lækka mikið í verði og fljótt á litið yrði um að ræða nokkurt tekjutap hjá Áfengisverzlun ríkisins, sem ég efa þó stórlega að yrði mikið tekjutap, af þeirri einföldu ástæðu, að t.d. innflutningur á ilmvötnum, andlitsvötnum og hárvötnum með löglegum hætti er svo ótrúlega lítill. að það er augljóst að það kemur þar ekki fram nema lítill hluti af því sem notað er í landinu. Þannig að verðlækkun á þessum vörum, sem að vísu verða áfram í hæsta tollaflokki, yrði að mati þeirra manna, sem um það hafa hugsað, líklega til þess að auka löglegan innflutning vörunnar og þar með ekki að hafa áhrif á tekjur ríkissjóðs að þessu leyti. Þetta hefur komið fram, eins og hv. þdm. vita um ýmsa aðra vöruflokka, sem breytt hefur verið tollaákvæðum á og sem eru áberandi smyglvörur eins og áreiðanlegt er með þessar vörutegundir.

Um þetta var enginn ágreiningur í hv. Ed. Nefndin, sem um það fjallaði, var sammála um það að mæla með þessari efnislegu breytingu á frv. og að þessi heildarlög yrðu sett. En í Ed. urðu hins vegar allmiklar umræður um tóbaksmál almennt og um ráðstafanir til þess að draga úr tóbaksnotkun, og þar voru samþ. tvenns konar breytingar á frv. eins og það upphaflega var framlagt. Önnur þeirra var sú, að það skyldi skylt að merkja alla vindlingapakka, sem væru til sölu hjá Tóbaks- og áfengisverzluninni með aðvörun um það, að hér væri um hættulega vöru að ræða. Ég skal náttúrlega játa sem rekstrarstjóri þessa fyrirtækis, að þá er það kannske ekki mjög skynsamlegt að hafa til sölu vöru, sem er stórhættuleg til neyzlu. En ég hins vegar sé enga ástæðu til þess að hafa á móti þessari breytingu. Þessi sala með áfengi og tóbak er ekki eingöngu hugsuð til þess — þó að hún sé mikill tekjustofn — að gefa ríkinu tekjur, heldur þykir eðlilegt, að á þessu sé einkasala, á meðan það er selt í landinu, og hygg ég, að enginn ágreiningur hafi verið um það á meðal hv. þm. En sums staðar, m.a. í Bandaríkjunum, hefur verið lögboðið að setja þessi aðvörunarmerki á vindlingapakka. Þetta mun að vísu valda Áfengisverzluninni töluverðum viðbótarkostnaði. En látum það gott heita. Það er ekkert nema gott um það að segja, ef þetta getur haft einhver áhrif í þá átt að draga úr sígarettureykingum.

Hin brtt., sem samþ. var, var þess eðlis, að það skyldi leitazt við að miða verðlagningu á tóbaki við það sjónarmið, að það yrði sem hæstur álagningarmunur eða verðmunur á smávindlum og sígarettum eða vindlingum. Með það í huga, að því er mér skilst, eftir því sem læknavísindin segja, ef þau hafa þá komizt að nokkurri niðurstöðu um það, að það sé þó skárra eða minna hættulegt skulum við segja að reykja smávindla en vindlinga. Á því mun þessi brtt. vera byggð.

Þetta eru þær breytingar, sem gerðar eru á frv. í hv. Ed. og ég vildi vekja athygli þessarar hv. þd. á. Að öðru leyti sé ég ekki ástæðu til þess að ræða málið. Það er, eins og ég áðan sagði, eina efnisatriði þess að fella niður einkasöluákvæði um þessar tilteknu vörutegundir, sem ég gat um, og að öðru leyti að sameina þessi lagaákvæði öll í eina löggjöf. Ég vonast til. að hér í þessari hv. d. geti orðið samstaða um málið, svipað og varð í Ed., og að hv. d. geti fallizt á að reyna að hraða meðferð þess, þannig að það geti orðið að lögum á þessu þingi. Málið er mjög einfalt í sniðum og á ekki að þurfa nákvæmrar rannsóknar við. Ég legg til. herra forseti, að að lokinni þessari umræðu verði frv. vísað til 2. umr. og hv. fjhn.