17.12.1968
Neðri deild: 31. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 193 í B-deild Alþingistíðinda. (170)

116. mál, skólakostnaður

Þórarinn Þórarinsson:

Herra forseti. Ég skal nú ekki tefja þessar umræður mikið, enda mun það ekki hafa verið ætlunin, að þetta yrðu mjög langar umræður, og hefði ekki orðið það, ef hæstv. ráðh. hefði ekki gefið tilefni til þess og farið að halda langar hólræður um sjálfan sig. En ég ætla yfirleitt ekki að fara að svara því, sem kom fram hjá ráðh., nema að leiðrétta nokkrar missagnir, sem fram komu og mér finnst bera vott um, hvernig hans málflutningur yfirleitt er. Ráðh. sagði, að ég hefði haft þau ummæli, að það væri spor aftur á bak að hækka framlagið til nýrra skóla úr 16 millj. í 33 millj. Ég hafði þessi orð alls ekki um þetta atriði. Mér kom ekki til hugar að segja það, að þetta væri spor aftur á bak. Ég sagði hins vegar og segi það enn, að ég telji það frv., sem hér liggur fyrir, sé spor aftur á bak í skólamálum. Ég tel það spor aftur á bak, þegar framlagið til skólahéraðanna á að greiðast á fjórum árum í staðinn fyrir á þremur árum. Og nú vil ég gera fsp. til hæstv. menntmrh. og jafnvel frekar spyrja hann þá sem hagfræðing heldur en sem menntmrh., því hann kannske er fúsari til að svara réttara á þann hátt. Ef ráðh. tekur lán, telur hann þá hagstæðara að fá það til þriggja ára heldur en fjögurra? Vill hann þá heldur þurfa að borga það á... (Gripið fram í.) Já, ef hann tekur lán, en ef hann veitir lán, hvort vill hann þá heldur gera? Og nú er ríkið raunverulega í þeim sporum að vera lánveitandi. Mundi hann telja það sem lánveitandi betra fyrir sig að fá lánið borgað á fjórum árum eða þremur? Nei, ég held, að það þurfi ekki að velta því lengi fyrir sér, að það sé mun hagstæðara fyrir héruðin að fá þetta framlag greitt á þremur árum en fjórum og það geti í mörgum tilfellum valdið því, að þeir geti miklu frekar hafizt handa en ella, ef sá háttur er á hafður. Og þess vegna er það tvímælalaust og verður ekki um það deilt, að gagnvart skólahéruðunum er þetta frv. spor aftur á bak, en ekki fram á við. Að vísu er svo ákveðið í frv., að þetta eigi að vera til eins árs, en venjan hefur nú verið sú hjá okkur, að þegar eitthvað hefur komizt á, þó að það hafi ekki verið nema til eins árs til að byrja með, þá hefur það orðið nokkuð föst regla.

Ég vík þá að öðru atriði, sem kom fram hjá ráðh., þar sem hann sneri líka út úr mínum orðum. Hann sagði, að ég hefði sagt, að ástaildið í skólamálunum væri jafnvel verra núna en var fyrir áratug síðan, og vildi jafnvel gefa í skyn, að með því hefði ég átt við það, að það hefði ekkert verið gert í þessum málum eða skólabyggingum á undanförnum árum. Það, sem ég sagði, var á þá leið, að miðað við þörfina og menntunarkröfurnar væri ástandið sízt betra nú en fyrir áratug síðan, jafnvel þó að talsvert hefði verið byggt á undanförnum árum. Þetta stafar af því, að hér, eins og annars staðar í heiminum, hafa kröfurnar um aukna menntun aukizt svo mikið og breytzt svo mikið, að þörfin fyrir skólabyggingar hefur aldrei aukizt eins á neinum tíma og einmitt á þessum áratug. Þess vegna held ég mér við það, að ef við miðum við menntunarþörfina, þá eftirspurn, sem er eftir menntun, að þá höfum við tiltölulega minna skólahúsnæði til að bæta úr henni en fyrir 10 árum, þrátt fyrir þá skóla, sem hafa verið byggðir á þessum áratug.

Þá vildi ráðh. mótmæla því, sem ég sagði, að engin heildarathugun hefði farið fram á skólakerfinu. Hann minntist á það, að það hefði verið sett löggjöf um ýmsa sérskóla. Það er rétt, en það bætir ekki úr þessari þörf að endurskoða og snertir ekki þá nauðsyn að endurskoða heildarskólakerfið eða grundvallarlögin sjálf, og síðan, þegar það hefur verið gert, þá verður að nýju að endurskoða sérskólalöggjöfina með tilliti til þeirra breytinga, sem kunna að verða gerðar á sjálfum grundvallarlögunum. Þess vegna eru þær breytingar, sem hafa verið gerðar á sérskólalögunum á undanförnum þingum, sennilega meira og minna út í loftið, vegna þess að það veit enginn um, hvernig þær kunna að henta með tilliti til þeirrar heildarendurskoðunar og breytingar, sem verður gerð á grundvallarlögunum sjálfum, en á því þarf að vera að sjálfsögðu fullkomið samræmi. Þess vegna er það, sem hefur verið gert í þessum efnum seinustu árin, meira og minna kák, vegna þess að það hefði þurft að endurskoða þessi mál öll í einu og öll í heild, en ekki taka vissa þætti út úr, án þess að nokkur athugun færi fram á því, að það væri til samræmis við þá heildarbreytingu, sem síðar væri talið nauðsynlegt að gera á sjálfum grundvallarlögunum.

Svo að við víkjum aftur að þessu frv., þá langar mig til að lesa hér upp úr blaði Alþfl. á Akureyri lítið sýnishorn af því, hvernig ástandið er í skólamálunum aðeins í einu héraði landsins og hvað vöntunin á skólahúsnæði er mikil þar. Það, sem ég les, er úr forystugrein, sem birtist í Alþýðumanninum 3. okt. s.l. Þar segir svo, með leyfi hæstv. forseta, um þörfina fyrir nýja skóla í Norðurlandskjördæmi eystra einu saman:

„Byggja þarf gagnfræðaskóla á Húsavík. Laugaskóla og Húsmæðraskólann á Laugum skortir aukið húsnæði; algert neyðarástand er í skólahúsnæðismálum Fljótsdæla og Kinnunga og Aðaldæla, Reykhverfinga og Tjörnesinga skortir skólabyggingu. Reisa þarf skóla að Hrafnagili, miðskóla eða héraðsskóla. Stækkun Þelamerkurskóla er aðkallandi. Mið- og gagnfræðaskólann á Dalvík og Ólafsfirði vantar húsnæði, og hér á Akureyri er sár þörf fyrir nýjan gagnfræðaskóla og nýjan barnaskóla, auk þess sem mikið skortir á að ljúka iðnskólabyggingu.“

Hér lýkur þessari tilvitnun í Alþýðumanninn. Þetta er aðeins sýnishorn af því, hvernig ástatt er í einu héraði. Svipað ástand er um allt land, og það er sízt skárra hér í fjölbýlinu. Ég held þess vegna, að þegar ástandið í þessum málum er eins og hér er lýst, þá sé ekki hægt fyrir hæstv. ráðh., eftir að vera búinn að vera menntmrh. í 12 ár, að koma hér upp í ræðustólinn og vera með gorgeir út af því, hvað ástandið sé gott í þessum efnum og hvað hafi mikið verið gert, og fullyrða, að við getum verið hæstánægðir með það, hvernig ástatt er í þessum efnum. Ég held, að þessi lýsing í hans eigin blaði, einmitt rétt eftir að ráðh. hafði verið á ferð, í þessu kjördæmi, sýni það, hvað þörfin er mikil í þessum efnum. Og það er hart til þess að vita, að flokkur ráðh., sem hefur oft verið framfarasinnaður í félags- og menntamálum, og ráðh. sjálfur, sem var fyrir eina tíð mjög félagslyndur og umbótasinnaður maður, þeir skuli vera búnir að dragast svo aftur úr í þessum efnum, að sá hluti samstarfsflokksins, sem hefur verið talinn einna íhaldssamastur, Heimdallur og Samband ungra sjálfstæðismanna, er orðinn miklu frjálslyndari og róttækari í þessum efnum heldur en Alþfl. og menntmrh., eins og ég vitnaði í hér í minni fyrri ræðu. Ég held, að það ætti að gefa hæstv. ráðh. fullt tilefni til þess að íhuga afstöðu sína í þessum málum fullkomlega að nýju, gerast hógværari í þessum málum, leggja gorgeirinn til hliðar, en gerast í þess stað athafnasamari. Því að það er nú yfirleitt einkenni á þeim mönnum, sem eru athafnamenn og koma einhverju í verk, að þeir telja ekki þörf á að vera með svo mikinn gorgeir í því sambandi og tala hógværlega um það. Hinir aftur á móti tala á líkan hátt og hæstv. ráðh. hefur gert hér í ræðum sínum.

Ég skal svo láta þessu lokið, nema ég vil að síðustu minnast á eitt atriði, sem mér finnst vera mjög glöggt dæmi um þær aðferðir í málflutningi, sem hæstv. ráðh. hefur beitt í þessum umr. Hann fór að rifja upp athafnir eða starf Jónasar Jónssonar í skólamálunum. Og hann reyndi að beita allri sinni söguþekkingu og niðurstaðan varð sú, að hann mundi ekki eftir nema einu einasta verki, sem Jónas Jónsson hafði gert sem menntmrh., og það var það, að hann hafði um eitt skeið takmarkað aðgang að Menntaskólanum í Reykjavík. Það er alveg rétt hjá hæstv. ráðh., að það mátti deila um þetta atriði, , en ástandið var í landinu þá þannig, að við höfðum ekki mjög mikla þörf, ekki svipað því, sem nú er, fyrir háskólalærða menn og aðalrökin, sem beitt var gegn menntaskóla á Akureyri, voru þau, að stúdentar í landinu væru þegar orðnir of margir. Á þeim grundvelli var tillaga um það að setja á stofn nýjan menntaskóla á Akureyri hvað eftir annað felld hér á Alþ. Þess vegna var það, þegar Jónas Jónsson ákvað að stofna nýjan menntaskóla á Akureyri, að hann setti jafnframt til að mæta þessum áróðri, sem að sumu leyti kannske átti rétt á sér, hann setti nokkrar takmarkanir á aðgöngu að Menntaskólanum í Reykjavík. En þrátt fyrir það var hér um aukningu á stúdentsmenntun að ræða í heild, vegna þess að Menntaskólinn á Akureyri tók á móti miklu meiri stúdentafjölgun heldur en þeirri, sem samdrættinum nam við Menntaskólann í Reykjavík vegna þeirra takmarkana, sem þar voru settar, þannig að í heild urðu þessar ráðstafanir til þess, að möguleikar fyrir stúdentamenntun jukust. En það, sem mér finnst hins vegar einkennilegt og glöggt dæmi um þær aðferðir, sem hæstv. menntmrh. beitir í málflutningi sínum, er það, að þegar hann fer að minnast á störf Jónasar Jónssonar sem menntmrh., man hann ekki eftir nema þessu eina einasta tilviki, sem má segja, að kunni að hafa orkað eitthvað tvímælis, en horfði þó allt öðruvísi við þá heldur en það gerir nú. Hann man ekkert eftir þeirri miklu forystu, sem Jónas Jónsson hafði í menntamálunum,á öðrum sviðum og gerir það tvímælalaust að verkum, að hann verður jafnan talinn athafnasamasti og merkasti menntmrh., sem við höfum haft. En því gleymir hæstv. menntmrh. Hann tekur aðeins það eina, sem hann heldur, að geti verið til áfellis, en sleppir öllu hinu. Þannig er yfirleitt allur hans málflutningur í þessu máli. Hann dregur það fram, sem hann álítur hagstætt fyrir sig, sleppir öllu öðru og gefur þess vegna jafnvillandi mynd af ástandinu eins og þar segir í frásögn hans af því, hvernig Jónas Jónsson hafi reynzt sem menntmrh.