17.05.1969
Neðri deild: 96. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 1589 í B-deild Alþingistíðinda. (1731)

248. mál, vinnumiðlun

Magnús Kjartansson:

Herra forseti. Ég spurði hæstv. félmrh. áðan, hvort ekki hefði orðið einhver breyting á viðhorfi hans og áformum síðan hann gaf svar í Sþ. fyrr í vetur um það, hvað ríkisstj. hygðist gera til þess að tryggja skólafólki atvinnu. Hæstv. ráðh. virðist eitthvað hafa misskilið spurningu mína, því að hann kom með sömu ræðuna í höndum og hann flutti þá og sagðist ekki sjá ástæðu til þess að lesa hana aftur. En væntanlega felst það í því svari, að hann hafi ekkert hugleitt málið áfram og afstaða ríkisstj. sé hin sama og áður, að hún hafi engar ráðagerðir um framkvæmdir til þess að tryggja skólafólki atvinnu. Þetta er mjög mikið alvörumál. Ég minni á það, sem ég sagði hér áðan, að um þetta atriði liggur fyrir tiltekið loforð frá hæstv. ríkisstj. frá því í marz í fyrra, að hún mundi gera ráðstafanir til þess að tryggja skólafólki atvinnu. Fyrir liggja loforð frá hæstv. menntmrh. eins og rifjað var upp hér áðan, en mér er kunnugt um það, að hæstv. menntmrh. hafði sömu loforð uppi í viðræðum við fulltrúa menntaskólanema, sem töluðu við hann í sambandi við þinghald sitt í vor. Þessi hæstv. menntmrh. hefur verið ákaflega óspar á loforð. Hann hefur lýst því í þessari deild, að hann hefði mikinn áhuga á því að koma menntaskólafrv. í gegnum Alþ. á þessum vetri, eins og kunnugt er, og allir vita, hvernig það hefur reynzt, og slíkt hið sama er að segja um þau fögru orð, sem hann viðhafði við menntaskólanema.

Þetta er ekki aðeins, eins og hæstv. félmrh. var að tala um áðan, málefni fólks, sem væri að stunda nám, meginverkefnið væri að tryggja atvinnu handa þeim, sem ynnu allan ársins hring, eins og hæstv. ráðh. komst að orði. Það er sem betur fer enginn slíkur munur á skólafólki og alþýðufólki hér á Íslandi. Sem betur fer hefur þróunin verið þannig á undanförnum árum, að fólk í framhaldsskólum kemur frá þjóðinni, eins og hún leggur sig, og þarna er ekki um að ræða neinn forréttindahóp í þjóðfélaginu, heldur hluta af þjóðinni eins og hún er. Þegar þetta fólk er atvinnulaust, snertir það heimili þeirra, það snertir heimili þúsunda manna á Íslandi. Það skerðir afkomu heimilanna, og svo þrengir það getu þessa fólks til að halda námi áfram. Ef hér verður almennt atvinnuleysi í sumar hjá skólafólki, atvinnuleysi, sem nær kannski til 4–5 þús. manna eins og allar horfur eru á núna, mun það gerbreyta menntaþróuninni hér á landi. Af því leiðir það, að á nýjan leik verða það forréttindi efnamanna að stunda framhaldsnám á Íslandi. Þetta er fullkomið alvörumál og þetta er mál, sem félmrh., sem kemur úr Alþfl., ætti að hugleiða alveg sérstaklega, ekki sízt, þar sem almennt er viðurkennt, að hann hefur hjartað á réttum stað. Ég tel. að þetta sé þvílíkt stórmál, að það sé mikill ábyrgðarhluti að senda þingið heim vitandi það, að ekkert verði gert á þessum sviðum. Ég held, að með því móti verði viðskilnaður hæstv. ríkisstj. við Alþ. enn þá hraklegri en horfur voru á, að hann yrði þó.