17.05.1969
Neðri deild: 96. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 1590 í B-deild Alþingistíðinda. (1732)
248. mál, vinnumiðlun
Þórarinn Þórarinsson:
Herra forseti. Það líður nú að þinglokum, og það er sjálfsagt að taka tillit til þess og vera ekki mjög langorður, en hér er hins vegar á dagskrá mál, sem ekki verður komizt hjá, að þm. geri að nokkuð rækilegu umtalsefni og vilji fá skýrari svör um, áður en þingi lýkur, heldur en þau, sem nú liggja fyrir.
Ég tel, að það sé vafalaust rétt hjá hv. 5. þm. Vesturl., að hæstv. félmrh. hafi hjartað á réttum stað. En ég held að það sé jafnóumdeilanlegt, að hæstv. ráðh. virðist ekki botna neitt í þeim lögum, sem hann á að framkvæma. Á þeim svörum, sem hann gaf hér áðan í tilefni af þeirri fyrirspurn, sem til hans var beint, þá er alveg augljóst, að hann botnar hvorki upp né niður í því máli, sem spurt var um. Og það virðist líka vera það eina, sem hann gat gert, að lofa nánari athugun á þessu einhvern tíma.
En það er nú svo með þennan hæstv. ráðh., að til viðbótar því, að hann skilur illa þau lög, sem hann á að framkvæma, þá er hann ákaflega svifaseinn í framkvæmd þeirra loforða, sem hann gefur um breytingar á slíkum lögum, jafnvel þó að hæstv. ríkisstj. hafi gefið mjög hátíðleg loforð um það. Eins og fram hefur komið í þessum umræðum, þá gaf hæstv. ríkisstj. loforð um það á s.l. vetri í sambandi við vinnudeilurnar þá að hækka mjög verulega atvinnuleysisbæturnar. Þetta loforð mun hafa verið gefið í marzmánuði á fyrra ári: En árið var næstum liðið á enda, án þess að ráðh. hefði eiginlega hreyft hönd né fót til þess að bæta úr þessu og voru svo gefin út um það brbl. seint og um síðir. Það var nú gefið í skyn af hv. 5. þm. Vesturl. hér í gær, að það mundi hafa staðið á samstarfsflokknum, að þetta yrði framkvæmt. Það, sem hann sagði, varð ekki skilið öðru vísi en þannig, að ráðherrar Sjálfstfl. hefðu beitt sér á móti því í ríkisstj. að staðið yrði við þetta fyrirheit. En mér skildist nú á svari, sem hæstv. dómsmrh. gaf í gær aðspurður, að það hefði ekki neitt staðið á Sjálfstfl., þannig að drátturinn í þessu máli hefur eingöngu stafað af því, að hæstv. félmrh. hefur ekki verið viðbragðsfljótari en raun ber vitni um. En þetta er aukaatriði, sem snertir ekki nema lítillega það mál, sem hér liggur fyrir.
Það mál, sem hér liggur fyrir, er það, hvort námsfólk, sem er atvinnulaust, eigi að njóta atvinnuleysisbóta eða ekki. Það viðurkenna allir, að það er hreint neyðarúrræði að þurfa að fara inn á þá braut og það á að leysa þessi mál með öðrum æskilegri hætti. En ef það er vanrækt og þetta fólk hefur ekki neitt upp á að hlaupa, þá er það þó skömminni til skárra að það fái bætur með þessum hætti heldur en engar. Aðallausn þessara mála á að sjálfsögðu að vera sú, að þessu fólki, námsfólkinu, sé séð fyrir nægilegri atvinnu á þeim tíma, sem það getur stundað hana. Mér skilst, að hæstv. menntmrh., sem að sjálfsögðu er sá ráðh., sem öðrum fremur á að láta þetta mál til sín taka, hafi gefið fyrirheit um það á fundi með menntaskólanemendum á s.l. vetri, að það skyldi séð um það, að námsfólk hefði nægilega atvinnu á þessu sumri. Nú vil ég beina þeirri fyrirspurn til hæstv. menntmrh., hvort þetta sé ekki rétt eftir honum haft? Hvort hann hafi ekki gefið slíkt loforð? Ég vænti þess, að hæstv. menntmrh. svari þessari fyrirspurn. Sé þetta rétt, þá vil ég spyrja hæstv. ráðh. í framhaldi af því, hvað hafi verið gert til þess að standa við þetta loforð, hvaða undirbúningur sé hafinn til að tryggja námsfólki atvinnu, sem fyrirsjáanlegt er nú að muni enga atvinnu hafa í sumar, nema sérstakar ráðstafanir séu gerðar? Ég hef þrátt fyrir allt haft sæmilegt álit að ýmsu leyti á hæstv. menntmrh. Ég hef það vegna okkar gamla kunningsskapar. Ég veit að vísu að hann er nokkuð gjarn á að snúast í málum, en ég vil samt vænta þess, að hann hafi ekki snúizt í þessu máli. Og mér finnst það frekar ólíkt honum, því að ég þykist þekkja hæstv. ráðh. það vel, að hann muni vilja gera sitt til þess að námsfólk sé ekki atvinnulaust í stórum stíl. Þess vegna beini ég nú þeirri fyrirspurn til hans og tel að það sé nauðsynlegt fyrir okkur þm. að fá það upplýst áður en við förum heim, hvað ríkisstj. ætlar að gera í þessum efnum, hvaða undirbúningur hafi farið fram í framhaldi af því loforði, sem hæstv. ráðh. gaf menntaskólanemendum og það upplýsist þá jafnframt, hvort það sé búið að gera það, sem við hv. þm. mundum telja nægilegt í þeim efnum.
Það væri að sjálfsögðu eðlilegra, ég skal játa það, að þeirra þessari fsp. til hæstv. félmrh., en það er nú búið að gera það árangurslaust nokkuð oft, bæði við umræður um sérstaka fsp., sem fram fór hér í þinginu, og eins í sambandi við spurningar, sem hafa verið bornar fram við þessar umr. og það hefur ekkert svar fengizt hjá honum. Þess vegna vænti ég þess, að hæstv. menntmrh. verði við þeirri áskorun að svara fyrirspurnum mínum: Í fyrsta lagi hvort það sé ekki rétt, að hann hafi gefið umrætt loforð á fundi menntaskólanemenda. Og í öðru lagi, hvaða undirbúning hann hafi haft uppi síðan til þess að staðið yrði við þetta loforð.
Ég sakna þess nokkuð, að hæstv. forsrh., sem er allþaulsætinn við umræður hér í deildinni, skuli ekki vera hér nú, því þetta mál, sem hér um ræðir, snertir hann nokkuð. Hæstv. forsrh. hefur nefnilega tekið að sér það verkefni að vera formaður í sérstakri atvinnumálanefnd, sem hefur það höfuðhlutverk að tryggja næga atvinnu í landinu og þá ekki síður skólafólks heldur en annarra. Hæstv. forsrh. hefur hér á Alþ. og við ýmis önnur tækifæri haldið mjög hjartnæmar ræður um það, að það sé ákaflega mikilvægt fyrir námsfólk ekki síður en þm. að vera ekki slitið úr tengslum við atvinnulífið í landinu og geta þess vegna haft vinnu, sæmilega vinnu í sínum námsleyfum, sem treysti bönd þess við atvinnuvegina í landinu. Ég hlýt að telja það eðlilegt í framhaldi af þessu og vegna þessara skoðana hæstv. ráðh., að í atvinnumálanefnd ríkisins sé þá eitt af því, sem þar hefur verið tekið til athugunar, hvernig eigi að tryggja námsfólki atvinnu á komandi sumri. Þess vegna hefði ég viljað beina þeirri spurningu til hæstv. forsrh., hvað um þetta hafi verið rætt í atvinnumálanefnd ríkisins og hvort hún teldi, að þetta væri ekki málefni, sem varðaði hana alveg sérstaklega. Ef hæstv. forsrh. er ekki hérna viðstaddur, þá mun vera hér annar ráðh., sem á einnig sæti í atvinnumálanefnd ríkisins — eða er það ekki rétt hjá mér, að hæstv. dómsmrh. eigi sæti í henni? Það væri þess vegna æskilegt, ef hæstv. forsrh. getur ekki verið viðstaddur, að hann vildi vera svo góður að hlaupa í skrápana og svara þessari fsp. fyrir hann.
Nú, þó að tíminn styttist óðum, þá væri nú freistandi að tala meira um þetta, en þar sem búið er að óska eftir svörum frá hæstv. ráðh. við allmörgum fsp. þá ætla ég að láta þetta nægja þangað til að ráðh. hafa svarað.