14.12.1968
Neðri deild: 29. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 1629 í B-deild Alþingistíðinda. (1752)
112. mál, bann gegn veiðum með botnvörpu og flotvörpu
Eysteinn Jónsson:
Herra forseti. Ég mun ekki verða langorður um þetta mál að þessu sinni, þó að ég hefði haft löngun til að segja hér ýmislegt um landhelgina og afnot Íslendinga af henni. En ég álít, að þar sem hefur komið fram till. frá 1. flm. þessa máls um að vísa málinu til sjútvn., þá sé skynsamlegt, að málið komist úr þessu sem fyrst til n., enda muni henni ekki veita af tímanum til þess að skoða málið, ef það á að vera hægt að afstýra óhöppum eins og nú er komið.
Ég álít, að afnot af landhelginni sé eitt stærsta mál íslenzku þjóðarinnar, þ. e. að finna skynsamlegar reglur fyrir afnotum af landhelginni, og verður þar að taka jöfnum höndum tillit til þess að fríða nægilega mikið af ungfiskinum, þ. e. að koma fiskinum upp, og hins, að sem arðsamastar veiðar geti átt sér stað í landhelginni og með heppilegum veiðarfærum. En það er hægara sagt en gert að koma þessu skynsamlega fyrir, eins og við vitum. Og margar uppástungur hafa komið fram á undanförnum árum, eins og hér hefur verið rakið í umr., en þær hafa þó verið skynsamlegastar að minni hyggju, sem miðað hafa í þá átt að setja niður æðimarga aðila til samstarfs til þess að reyna að komast að niðurstöðu, og það er sorglegt, hvað dregizt hefur að koma slíku samstarfi á. Ég skal þó ekki fara að metast um það í dag, hverjum það er að kenna, að það hefur dregizt og raunar heldur ekki, hverjum það er að kenna, að samstarfi hefur nú verið sundrað um sinn. En ég vil þó segja, að með flutningi þessa frv. og því, sem skeð hefur upp á síðkastið, hafi þessi mál færzt í óvænt efni úr allgóðu horfi, sem þau voru komin í.
Sannleikurinn er sá, að það er mjög nauðsynlegt fyrir þm. að gera sér grein fyrir því, að það var búið að gera eins konar sáttmála um það, hvernig vinna skyldi að þessu vandasama máli. Og þessi sáttmáli, ef má kalla hann því nafni, hefur verið undirbúinn ærið lengi, og það hefur verið mikil fyrirhöfn að koma honum í höfn. En sáttmálinn var þannig — það vitum við allir — að landhelgisnefndin skyldi hafa frið til þess að starfa og menn skyldu leggja sig fram um að starfa með henni. Þm. legðu vinnu í að kynna sér viðhorfin heima fyrir, þræðir skyldu síðan hnýttir saman á vegum landhelgisnefndarinnar í janúar í þeirri einlægu von, að hægt yrði í vetur að koma alveg nýrri skipan á þessi mál. Og stefnan hefur verið sú, að þá yrði að auka eitthvað heimildir til þess að veiða í landhelginni og leysa þannig það ófremdarástand, sem skapazt hefur í þeim efnum. Einnig sýnist ótvírætt og stutt að nokkru leyti af reynslu og a. m. k. sérfræðilegum vitnisburðum, að það muni vera skynsamlegt og óhætt að nota botnvörpuna meira en gert hefur verið á vissum svæðum, en reyna þá heldur að herða friðunina á öðrum svæðum. Raða sjónum niður í reiti, ef svo mætti segja, sem notaðir væru eftir því, sem skynsamlegast þætti, sumpart til friðunar, sumpart til þess að veiða með línu og handfæri eingöngu, sumpart til þess að veiða með netum og sumpart til þess að veiða með botnvörpu og dragnót — og þetta líklega mismunandi eftir árstíma. Á allt þetta hefur verið drepið hér, og enginn vafi er á því, að þetta verður niðurstaðan, en þetta er ekki einfalt mál að raða þessu saman, eins og margir hafa með réttu lagt áherzlu á.
Það er alveg óhætt að gera sér grein fyrir því, að svona vandasamt mál kemst ekki farsællega í höfn, ef allt er sett í uppnám í miðju kafi. Það þýðir ekki að vera með nein ólíkindalæti í þessu og segja, að það sé ekki gengið fram hjá neinum o. s. frv. Það getur verið gaman að velta vöngum með svona orðatiltækjum. En allt eru þetta ólíkindalæti. Við vitum það, að sé farið í að leysa einhvern viðkvæman þátt út úr þessu núna á stundinni, verður öllu meira og minna hleypt í uppnám og mikið af þeirri vinnu, sem búið er að leggja í að fá kyrrð í kringum málið og skynsamlega skoðun á því, reynist hafa verið unnið fyrir gýg. Og enginn veit, hversu langan tíma það tekur að fá aftur þannig ró á hugi manna, að þeir fáist til þess að skoða þetta mál með hæfilegri hugarró.
Í þessu eru hagsmunaárekstrar geysilega miklir bæði milli einstakra manna eftir því, hvernig tæki þeir eiga, og landshluta og byggðarlaga. Menn hafa mjög mismunandi skoðanir á þessum hlutum — einnig þeir, sem ekki eiga beinna hagsmuna að gæta nema þá sem Íslendingar, en það eiga allir í þessu þýðingarmikla máli. Sumir eru mjög uggandi út af ungfiskinum o. s. frv., o. s. frv. Ég vildi líta þannig á, að þetta frv. hafi komið eins og þruma úr heiðskíru lofti eða a. m. k. léttskýjuðu lofti. Það mætti kannske frekar segja það, því að aldrei hefur þetta orðið í þeim rétta skilningi fullkomlega heiðskírt. Ég mundi segja, að það væri nánast það, sem gerzt hefði, og er ákaflega mikið miður farið.
Það má vera, að mitt sjónarmið mótist nokkuð af því, að gengi þetta frv. fram óbreytt eins og það liggur fyrir, bætist það við, að þetta yrði ákaflega þungt högg fyrir Austurland, sem ég ásamt öðrum er umboðsmaður fyrir. Þetta mundi snerta Austfirðina þannig, að það yrði óbærilegt áfall fyrir þá, ef sá háttur yrði upp tekinn að hleypa togveiðiflotanum inn á netaveiðisvæðin við suðausturströndina, en Austfirðingar stunda mestmegnis netaveiðar á vetrum a. m. k. enn sem komið er. En hvernig það yrði í framtíðinni, ef komið yrði nýrri skipan á þessi mál, er aftur á móti ekki gott að segja. En eins og stendur, eru þeir búnir á netaveiðar, og verður að líta á málið frá því sjónarmiði.
Hv. 1. flm. málsins minntist á, að það hefði verið reynt að sníða frv. þannig, að mestu deilusvæðin væru skilin eftir. En ég vil benda á það mjög greinilega eftir því, sem ég get, að því er alls ekki þannig farið, vegna þess, að svæðið t. d. frá Kötlutanga og austur að Stokksnesi hlýtur alltaf að verða mjög mikið deilusvæði einmitt að þessu leyti — ekki sízt, ef málið er leyst að öðru leyti á jafnþröngum grundvelli og gert er ráð fyrir í þessari bráðabirgðalausn.
Ég mundi vilja taka undir það með hv. þm. Reykn., Jóni Skaftasyni, að skynsamlegast væri og það, sem þyrfti að reyna að leggja áherzlu á, að fá samkomulag um að láta þetta mál bíða, en landhelgisnefndin herti sig, eins og hún hafði gert ráð fyrir, og menn drifu sig í að reyna að hafa tilbúnar heildartill. í þessu máli, þegar Alþ. kæmi saman aftur, sem á víst að verða 7. febrúar eða ekki síðar, í þeirri von, að hægt yrði þá að hafa tilbúna lausn, sem nægilegur meiri hl. væri fyrir og þar sem tekið væri tillit til þess minni hl., sem skapaðist eftir því, sem unnt er.
Eins og hér hefur komið fram, kemur þetta, sem hér er lagt fram, svo herfilega fyrir, þar sem þm. voru búnir að gera ráð fyrir því að hafa fundi sumir hverjir í byggðarlögum sínum í jólafríinu og í janúarmánuði til þess að reyna að samræma sjónarmiðin og eyða margs konar misskilningi og ágreiningi — skulum við segja, — sem er fyrir hendi í þessu máli. En ef þetta mál yrði barið fram, ég tala nú ekki um, eins og það liggur fyrir, er öllu þessu stefnt í hættu og allt sett fullkomlega í uppnám a. m. k. á vissum landssvæðum, og er ómögulegt að sjá fyrir afleiðingarnar af því, enda gæti það orðið skaðlegast fyrir þá, sem mestan áhuga hafa á því að fá nýskipan í þessu, eins og hér hefur verið bent á í umr. áður.
Sé óhugsandi, að þetta verði gert, sýnist mér, að sjútvn. yrði að leggja sig fram um að breyta málinu þannig, að það yrði skaplegra en það er nú, og í því sambandi er mér efst í huga, að það yrðu að verða verulegar breytingar á málinu, að því er varðar möguleika til togveiða fyrir Suðurlandinu, og yrði að taka tillit til sjónarmiða Austfirðinga að þessu leyti, sem hér voru mjög greinilega sett fram af hv. þm. Austf., Lúðvík Jósefssyni. Þarf ég ekki að endurtaka það, sem hann sagði um þetta mál. En brtt. sú, sem komið hefur fram í málinu frá flm., breytir engu, eins og kom fram hjá hv. þm. Reykn., vegna þess að í henni er ekkert annað en það, sem áður var í frv. Hún tryggir ekkert í þessu tilliti, og gallinn á þessu öllu saman er sá, að hætt er við því, að jafnvel þó að hægt væri að finna einhverjar breytingar, sem gerðu þetta eitthvað bærilegra fyrir Austurland, gæti vel svo farið, að annar ágreiningur yrði einnig um þetta þannig vaxinn, að það stórskaðaði málið samt að berja frv. fram.
En fáist ekki viðunandi breytingar á þessu frv. og náist ekki samkomulag um það — og það vil ég, að sé algjörlega ljóst — þá eigum við þm. af Austurlandi engan annan kost en að gera allt, sem í okkar valdi stendur til þess að hindra framgang málsins.
Ég tel ekki hyggilegt eða ástæðu til að vera að ræða þetta ítarlegar núna við þessa umr. Ég tel bezt úr því, sem komið er, að till. hv. 1. flm. um, að málið fari til sjútvn., fái framgang nú í dag sem fyrst og n. geti tekið þetta vandasama mál til skoðunar, og ég vil alls ekki gefa upp vonina um, að n. takist að finna í þessu efni viðunandi vinnubrögð. En takist það ekki í sjútvn., tel ég, að það muni ekki heppnast, og tel henni því allmikinn vanda á höndum.