14.12.1968
Neðri deild: 29. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 1634 í B-deild Alþingistíðinda. (1755)
112. mál, bann gegn veiðum með botnvörpu og flotvörpu
Dómsmrh. (Jóhann Hafstein):
Herra forseti. Ég skal á engan hátt blanda mér í þær deilur, sem hér hafa verið uppi um frv. það, sem hér er til umr., en ég vil aðeins út af orðum þeim, sem hér féllu í ræðu hv. 5. þm. Vestf. um það, að hann teldi, að við þyrftum hér að hafa alla gát á gagnvart umheiminum um það, hvað við ákvörðuðum í máli sem þessu, segja það, að í þeim efnum tel ég ekkert að óttast. Það fer ekki milli mála, að fiskveiðilandhelgin er eign okkar Íslendinga. Við höfum aldrei dregið neina dul á það gagnvart öðrum, bæði á vettvangi Sameinuðu þjóðanna, á Genfarráðstefnum og annars staðar, að við mundum hagnýta þessa landhelgi sjálfir, en jafnframt höfum við tekið fram, að við mundum gera það á grundvelli þeirra l., sem gilt hafa hér frá 1948 um vísindalega verndun fiskimiða landgrunnsins. Þau l. eru stutt, en þar segir m. a., með leyfi hæstv. forseta:
„Sjútvmrn. skal með reglugerð ákvarða takmörk verndarsvæða við strendur landsins innan endimarka landgrunnsins, þar sem allar veiðar skuli háðar íslenzkum reglum og eftirliti, enda verði friðun á landgrunninu á engan hátt rýrð frá því, sem verið hefur. Rn. skal einnig ákvarða allar þær reglur, sem nauðsynlegar eru til verndar fiskimiðunum á ofangreindum svæðum. Ráðstafanir þessar skulu gerðar að fengnum till. Fiskifélags Íslands og Atvinnudeildar Háskóla Íslands.“ — Nú mundi það vera Hafrannsóknastofnunin.
„Reglugerðin skal endurskoðuð eftir því, sem vísindalegar rannsóknir gefa tilefni til.“
Í þessu felst, að við skuldbindum okkur til þess að fara eftir vísindalegu mati um nauðsyn verndar á fiskimiðum og þar með, að við munum hagnýta okkar eigin landhelgi með þeim fyrirvara, að hér sé hvorki um ofveiði eða rányrkju að ræða.
Loks vil ég segja það, að mér er það ljóst, að ég ber sem dómsmrh. ábyrgð á framkvæmd fiskveiðilöggjafarinnar eftir 1. des. s. l., en ég ber einnig ábyrgð á framkvæmd eða framkvæmdaleysi á vissum sviðum á þessari sömu löggjöf fyrir 1. des. Ég hef verið mjög sakaður af ýmsum um aðgerðarleysi í framkvæmd þessarar löggjafar, eins og kunnugt er, að því er lýtur að veiði íslenzku fiskibátanna. Mér er alveg ljóst, að ég ligg þar undir ámæli. Hvort ég hef í þeim efnum eitthvað mér til málsbóta, fer auðvitað eftir mati og verður áreiðanlega metið með ýmsu móti. Ég vil, að það fari ekki milli mála, að landhelgisgæzlan mun framkvæma, eftir því sem hún hefur aðstöðu til, hverja þá fiskveiðilöggjöf, sem á hverjum tíma er í gildi frá Alþ. Íslendinga.