09.12.1968
Neðri deild: 25. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 202 í B-deild Alþingistíðinda. (188)
98. mál, ráðstafanir vegna landbúnaðarins
Landbrh. (Ingólfur Jónsson):
Herra forseti. Frv. þetta er um ráðstafanir vegna landbúnaðarins í sambandi við breytingu á gengi íslenzkrar krónu. Það er gert ráð fyrir því að fá lagaheimild til þess að ráðstafa gengishagnaði, sem kemur fyrir útfluttar landbúnaðarafurðir, sem framleiddar eru fyrir 15. nóv. s.l. Gert er ráð fyrir, að landbrn. ákveði, hvernig þessu fjármagni verði varið. Það er talið, að þessi gengishagnaður geti numið allt að 150 millj. kr.
Það er tekið fram, að þessari fjárhæð verði varið í þágu landbúnaðarins. Frv. um gengishagnað var samþ. af hv. Alþ. fyrir ári síðan og var þar einnig fram tekið, að gengishagnaðinum, sem þá kom til, yrði varið í þágu landbúnaðarins. En þá var aðeins um 45 millj. að ræða, en hér er gert ráð fyrir 150 millj. Það hefur orðið nokkur breyting á í sambandi við útflutning landbúnaðarvara við gengisbreytinguna, þannig að nú munu fást 77–80% á erlendum markaði fyrir sauðfjárafurðir miðað við innanlandsverðið, þegar reiknað er með þeirri hækkun, sem hefur orðið á gærum. Ef til þess kæmi, að ullarverð hækkaði, en það hefur verið um skeið mjög lágt, þá gæti svo farið, að útflutningsverðið næmi allt að 85% á sauðfjárafurðum og er þá orðin allt önnur útkoma á því heldur en áður var meðan aðeins var um 40–45% af verðmætinu að ræða. Aftur á móti er enn mjög óhagstætt að flytja út mjólkurafurðir. Þannig mun ekki fást nema um 40% fyrir ostinn, kasein 49% og nýmjólkurduft 30%, sem ekki verður nú flutt út. Það má gera ráð fyrir því, að það verði mun minna flutt út nú af mjólkurafurðum heldur en s.l. ár vegna minnkandi mjólkurframleiðslu. Það verður hins vegar kannske áhyggjuefni á næstunni, hvernig á að fara að því að sjá þéttbýlissvæðunum fyrir nægilegri neyzlumjólk, en það er annað mál.
Ég sé ekki ástæðu til að fara fleiri orðum um þetta frv. að sinni og legg til, herra forseti, að málinu verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. landbn.