11.11.1968
Neðri deild: 12. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 25 í B-deild Alþingistíðinda. (19)
52. mál, ráðstafanir vegna nýs gengis
Forsrh. (Bjarni Benediktsson):
Herra forseti. Á undanförnum tveimur árum hefur þjóðarbúskapur Íslendinga orðið fyrir meira og skyndilegra áfalli en nokkru sinni fyrr á þessari öld. Verðlag útflutningsafurða hefur lækkað stórlega og afli brugðizt, einkum á síldveiðum. Verðmæti útflutningsframleiðslunnar hefur af þessum sökum minnkað um allt að 45% milli áranna 1966 og 1968. Þar sem erlendur kostnaður við öflun þessa verðmætis hefur ekki minnkað að sama skapi, hefur innlendur hluti framleiðsluverðmætisins minnkað enn meira, eða um eða yfir 55%. M.ö.o. hrein minnkun gjaldeyristekna af sjávarútvegi nemur svo miklu. Útflutningsframleiðslan á mann mun ekki verða öllu meiri á árinu 1968 en hún var fyrir 12 árum eða árið 1956. Útlit er fyrir, að raunverulegar þjóðartekjur á mann muni á árinu 1968 verða um 15% lægri en á árinu 1966, en þetta jafngildir því, að þær verði ívið lægri en raunverulegar þjóðartekjur á mann voru á árinu 1963. Lífskjör þjóðarinnar, er bezt koma fram í einkaneyzlu hennar, hafa hins vegar breytzt miklu minna. Einkaneyzlan helzt óbreytt á árinu 1967, frá því sem hún var á árinu 1966, en mun á þessu ári minnka um tæp 8% á mann og verða svipuð og hún var á árunum 1964 og 1965. Þetta ósamræmi hefur leitt til þess, að gjaldeyrisforði þjóðarinnar er nú genginn til þurrðar. Vonir manna um, að verðlag og aflabrögð bötnuðu á ný, hafa brugðizt, og verður nú með engu móti komizt hjá mun róttækari ráðstöfunum en áður. Seðlabankinn hefur þess vegna í dag að fengnu samþykki ríkisstj. ákveðið nýtt gengi krónunnar. Gengi íslenzku krónunnar lækkar um 35%, svo að í dollar verða 88 kr. Fréttatilkynningin hljóðar svo:
„Bankastjórn Seðlabankans hefur að höfðu samráði við bankaráð og að fengnu samþykki ríkisstj. ákveðið nýtt stofngengi íslenzkrar krónu, og tekur það gildi frá kl. 9 á morgun, hinn 12. nóvember 1968. Er í dag að vænta staðfestingar stjórnar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á ákvörðun þessari. Hið nýja stofngengi er 88 ísl. kr. hver bandarískur dollar, en það er 35.2% lækkun frá því gengi, sem í gildi hefur verið. Jafnframt hefur verið ákveðið, að kaupgengi hvers dollars skuli vera 87.90 kr. og sölugengi 88.10, en kaup- og sölugengi annarra mynta í samræmi við það. Ráðgert er, að Seðlabankinn birti fyrir opnun bankanna á morgun, þriðjudaginn 12. nóvember, nýja gengisskráningu fyrir allar myntir, er skráðar hafa verið hér á landi að undanförnu, en þangað til slík gengisskráning hefur verið birt, helzt sú stöðvun gjaldeyrisviðskipta, er tilkynnt var af Seðlabankanum í gær.“
Þannig hljóðaði þessi fréttatilkynning frá Seðlabankanum. Grg. hans skal ég ekki lesa.
Frv. það, sem hér er til umr., fjallar um þær tæknilegu ráðstafanir, sem gera þarf í því skyni, að sem minnst truflun verði á viðskiptum. Það eru tilmæli ríkisstj., að frv. hljóti þegar í dag afgreiðslu hins háa Alþ. Skal ég þess vegna mjög stytta mál mitt og einungis gera örstutta grein fyrir þeim helztu ráðstöfunum, sem ríkisstj. telur þörf á í þessu sambandi umfram þær, sem í þessu frv. eru taldar. Von mín er sú, að till. um slíkar viðbótarráðstafanir verði unnt að leggja fyrir Alþ. innan fárra daga, og gefst þá tækifæri til ýtarlegra umr. um öll þessi mál í heild. Eðlilegt er, að hluta þeirra verði útvarpað í samræmi við ákvæði þingskapa, og ættu þær umr. að geta farið fram í fyrri hluta næstu viku, eftir því sem samkomulag næst um.
Það var höfuðeinkenni efnahagsþróunarinnar á uppgangsárunum fram til 1966, að hinum mikla tekjuauka, sem í þjóðarbúið barst, var jafnóðum dreift meðal alls almennings honum til lífskjarabóta. Af þessum sökum verður það með engu móti umflúið, að tekjurýrnun þjóðarinnar nú bitni á þeim, sem áður hlutu megnið af aukningunni. Framhjá þessu hefði eigi orðið komizt, hvaða leið sem valin hefði verið. Þetta á jafnt við um gengisbreytingu eins og önnur úrræði. Hún getur ekki orðið atvinnulífinu til þeirrar örvunar, sem nú er öllu öðru fremur þörf á, nema hafður verði hemill á launahækkunum á meðan áhrif hennar eru að koma fram. Till. stjórnarinnar eru því þær, að verðlagsuppbætur verði ekki greiddar umfram þær hækkanir, sem verða hinn 1. desember n.k. vegna verðlagsins 1. nóvember s.l, nema nýtt allsherjarsamkomulag verði gert um slíkar greiðslur á milli launþega og vinnuveitenda. Ætlazt er til þess, að menn hljóti fullar uppbætur fyrir það, sem þegar er orðið, þ. á m. þau áhrif 20% gjaldsins, sem fram voru komin hinn 1. nóvember. Fyrirhuguð breyting er sú, að menn fái ekki sjálfkrafa uppbætur fyrir þær hækkanir, sem héðan í frá verða og fyrst mundu koma til framkvæmda frá 1. marz n. k. samkv. gildandi kaupsamningum, sem segja má upp frá 1. janúar n.k., heldur þurfi nýir samningar til að koma. Ríkisstj. hyggst jafnframt beita sér fyrir, að sem fyrst hefjist viðræður um nýja samningsgerð milli verkalýðs, vinnuveitenda og fulltrúa ríkisvaldsins. Einnig verði efnt til samninga við bændasamtökin í því skyni að reyna að fá neytendur til þess að taka á ný fullan þátt í verðákvörðun á búvörum og til að tryggja. að hún sé ætíð í samræmi við almenna launaþróun í landinu. Í öllum þessum samningum verði höfuðáherzla lögð á að halda verðlagsþróun í skefjum og gera raunhæfar ráðstafanir til þess að koma í veg fyrir atvinnuleysi. Þetta tvennt er svo nátengt, að nú er vonlaust að ná hinu síðartalda nema hið fyrrnefnda takist. En ríkisstj. lýsir sig fúsa til þess í samráði við verkalýðshreyfinguna að beita sér fyrir beinum framkvæmdum til atvinnuaukningar, þar sem þess reynist þörf, eftir því sem fjár reynist unnt að afla í því skyni. Í þessu sambandi hlýtur fjáröflun til nauðsynlegra íbúðabygginga að verða í fremstu röð. Jafnframt mun ríkisstj. fús að athuga, hvort unnt sé að breyta skattalögum og gera aðrar ráðstafanir, sem leiði til tekjujöfnunar meðan núverandi erfiðleikar vara. Ríkisstj. hefur nú þegar ákveðið að beita sér fyrir hækkunum bóta almannatrygginga, sem nema 150 millj. kr., og verði síðan leitað samkomulags um og ákveðið, hverjar bætur verði hækkaðar, enda sé að því stefnt að bæta helzt hag hinna lakast settu. Forsenda þess, að nokkur fyrirgreiðsla af hálfu ríkisvaldsins til sjávarútvegsins komi að gagni, verði viðráðanleg og haggi ekki tekjujafnvægi úr hófi, er, að hún renni fyrst og fremst til sjálfs atvinnurekstrarins. Þetta á jafnt við um uppbætur og gengisbreytingu. Þess vegna verður að tryggja með löggjöf, að a.m.k. sá aukni rekstrarkostnaður, sem leiðir af gengislækkuninni, ásamt útvíkkun stofnsjóðsgjalds til síldarútvegs, sé dreginn frá áður en til hlutaskipta kemur. Jafnframt verður þó ætíð að tryggja, að hlutarsjómenn njóti a.m.k. sambærilegra kauphækkana og í landi verða vegna mikilvægis starfa þeirra og hættunnar, sem þeim fylgir.
Þá er ráðgert nú sem fyrr, að settar verði reglur um það, að gengishagnaði á hérlendum birgðum útflutningsvara verði varið til hags þeirri atvinnugrein, þar sem gjaldeyrisins hefur verið aflað, en ekki látinn haldast hjá þeim, sem af tilviljun kann að vera eigandi útflutningsvörunnar, þegar gengisbreytingin fer fram. Um þetta þarf að setja sérstök lagaákvæði og m.a. kveða á um ráðstafanir til aðstoðar þeim, sem harðast verða úti af skuldahækkun vegna kaupa á fiskiskipum erlendis. Tekjuhrunið í útflutningnum hefur óhjákvæmilega skapað mikla rekstrarfjárörðugleika, sem enn hljóta að magnast, þegar verðhækkanir af völdum gengislækkunarinnar falla á. Mikið liggur við, að bankarnir og aðrar fjármálastofnanir bregðist við þessum vanda með samhentu átaki. Enginn efi er á, að nánara samstarfs þessara aðila er þörf, og fyrir því vill ríkisstj. beita sér. Slíkt hið sama á sér raunar stað og þó e.t.v. í enn ríkara mæli um fjárfestingarlánastofnanirnar, og er ekki um að villast að samræma þarf störf þeirra betur en verið hefur, svo að fjármagn, sem til ráðstöfunar er, komi að sem beztum notum, enda eru því miður ekki líkur til þess, að í bráð þurfi að hamla á móti of mikilli fjárfestingu, heldur koma í veg fyrir, að hún dragist um of saman. Eins er það ljóst, að gengisbreytingin hlýtur mjög að draga úr innflutningi og annarri gjaldeyriseyðslu, svo sem utanlandsferðum. Ætlunin er og einmitt sú að stuðla einnig með þessum hætti að nauðsynlegum viðskiptajöfnuði. Sennilega verða samdráttaráhrifin svo mikil, að ekki reynist þörf á frekari ráðstöfun til að hamla á móti innflutningi. En ef á annan veg reynist eru fyrir hendi nægar heimildir til þess að stöðva innflutning á þeim vörum, sem helzt má án vera, og svo mun verða gert, ef skynsamlegt þykir. En nýtt innflutningshaftakerfi telur ríkisstj., að muni verða til ills eins.
Innlendur iðnaður mun hljóta stóraukna örvun við gengisbreytinguna. Út af fyrir sig væri því ástæða til að endurskoða verndartolla, sem iðnaðurinn nýtur nú, í því skyni að ekki eflist starfræksla, sem til lengdar mundi verða þjóðinni til þyngsla. Hér er hins vegar um margþætt mál að ræða, sem taka verður til rækilegrar endurskoðunar, og mun svo gert á næstu mánuðum. Ríkisstj. mun hins vegar ekki hika við nauðsynlegar ráðstafanir til að koma í veg fyrir, að haldið verði uppi óeðlilegri samkeppni við lítt verndaðan eða óverndaðan iðnað, sem okkur er nú þörf á vegna atvinnuástandsins, ef gengisbreytingin nægir ekki til þessa. Því miður er þess vart að vænta, að vel fari, nema stöðvun á hækkun kaupgjalds standi um eins árs bil. En eitt af því, sem leita ber eftir í væntanlegri samningsgerð, er að finna leið til þess, að í framtíðinni fylgi laun raunverulegri hækkun þjóðartekna og geti launþegar orðið þeirrar hækkunar aðnjótandi átakalaust. Þá er og tímabært að setja víðtæka löggjöf um verðjöfnunarsjóð fyrir sjávarútveginn.
Um sjálft það frv., sem hér liggur fyrir, þarf ekkí að fara mörgum orðum. Það er mjög í samræmi við það, sem lögfest hefur verið við fyrri gengisbreytingar. Þó er rétt að vekja athygli á því, að nokkur ný ákvæði eru nú, vegna þess að 20% gjaldið, sem lögfest var með brbl. í haust, er fellt inn í gengisbreytinguna, ef svo má segja, og því er eðlilegt, að nú séu ráðstafanir, sem gera þarf af þessu tilefni, allar teknar með einni löggjöf, en ekki verði héðan í frá sett sérlöggjöf um innflutningsgjaldið, en löggjöfin, sem á þarf að halda í framtíðinni varðandi það gjald, verði felld inn í þetta lagafrv. Flest eru ákvæðin tæknileg og beinast að því, að viðskipti geti hafizt ótrufluð aftur á morgun, og liggur mikið við, að svo geti tekizt. Það hefur þegar verið haft samráð við hv. stjórnarandstæðinga og þeir tekið liðlega í það að greiða fyrir framgangi þessa frv. á skömmum tíma, en að sjálfsögðu áskilja þeir sér rétt til umr. um málin í heild nægilega ýtarlega, þegar þar að kemur, eins og ég vék áður að í ræðu minni.
Það er ástæða til þess að vekja athygli á breytingum, sem gerðar eru á 2. gr. frv., frá því sem hefur verið í hliðstæðum l. áður. Það er ákveðið enn eins og fyrr sem almenn regla, að ekki megi hækka verð á birgðum, vörum, sem hér eru og búið er að greiða með því gengi, sem hingað til hefur verið í gildi. En jafnframt eru sett inn sams konar ákvæði eins og voru í l. um 20% gjaldið til þess að kveða á um, hvaða áhrif sjálf gengisbreytingin hafi á álagningarreglurnar í því skyni, að ekki þurfi að verða töf á afgreiðslum af þessum sökum. Jafnframt eru svo gerð sérákvæði um þá flokka, sem hafa verið í allra lægstri álagningu, einfaldlega vegna þess að vandræði hafa verið vaxandi við það að útvega þá nauðsynjavöru til landsins með þeim álagningarreglum, sem hingað til hafa gilt og mundu koma enn harðar niður nú eftir gengisbreytinguna, ef þessi sérákvæði væru ekki sett.
Önnur ákvæði hygg ég vera í samræmi við það, sem menn þekkja frá fyrri tíð, og sé ég ekki ástæðu til þess að fjölyrða um þau. Eins og kunnugt er, báru þær umr. um lausn vandamálanna, sem fram hafa farið á milli stjórnmálaflokkanna, ekki þann árangur, að heildarsamkomulag fengist. Að sjálfsögðu mun hver flokkur gera grein fyrir sinni afstöðu til mála og þar með til þessara umr., eftir því sem hann telur ástæðu til. En ég vil vænta þess, að þó að ekki næðist samkomulag um heildarlausn, geti orðið samkomulag um einstaka þætti vandamálanna, og stjórnin mun eftir föngum leggja sig fram um, að slíkt samkomulag geti náðst sem allra víðtækast.
Ég skal ekki frekar en ég hef gert fjölyrða um málið né rekja ástæður þeirra örðugleika, sem við nú eigum við að etja. Til þess gefst ærið færi síðar. Óhagganleg staðreynd er, að við höfum nú orðið fyrir meira áfalli í efnahagsmálum heldur en áður á þessari öld, heldur en á þeim árum, sem núlifandi menn muna, hygg ég óhætt að segja, og Íslendingar hafa búið við nútímaþjóðfélag. Það má bregðast við þessum vanda með ýmsum hætti. Við skulum játa, að í dag erum við í vörn gegn bráðri neyð, en ég vonast til þess, að við berum allir gæfu til þess að halda þannig á málum, að vörn verði snúið upp í sókn til þjóðarheilla.