09.12.1968
Neðri deild: 25. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 203 í B-deild Alþingistíðinda. (191)

98. mál, ráðstafanir vegna landbúnaðarins

Eysteinn Jónsson:

Herra forseti. Ég kannast ekki við að hafa veitt hæstv. ráðh. neitt umboð 1 fyrra. Það munu aðrir hafa gert. Sleppum því, hvort traust mitt á honum hafi vaxið síðan í fyrra eða vantraust. Við skulum ekkert ræða það. Honum er vel ljóst um afstöðu mína til hans og ríkisstj. og engin ástæða til þess að vera að blanda því inn í þetta.

Hæstv. ráðh. sagði, að því væri fljótsvarað, hvernig þessum fjármunum hefði verið varið í fyrra. Það hefði verið notað allt í útflutningsuppbætur, til þess að drýgja þær. Í tilefni af því vil ég spyrja hæstv. ráðh., hvort hann vill ekki lýsa því yfir núna, að af þessu fé verði notað það, sem þarf í útflutningsuppbætur, til þess að fullt grundvallarverð fáist fyrir framleiðsluna 1968. Sem sagt, að það verði hliðstæð framkvæmd á þessum málum og í fyrra. Vill hann ekki lýsa því yfir? Ef hann vill lýsa því hér hreinlega yfir, þá tel ég það talsvert þýðingarmikið atriði í málinu.

Mér finnst, að allir ættu þó sannast að segja að geta verið sammála um, að fyrsti réttur í þessu er réttur bændanna til þess að fá fullt útflutningsverð. Það er óhugsandi, að nokkrum ráðh. detti í hug að fara að taka af þessum peningum, sem er í raun og veru verðhækkun á útflutningsbirgðum landbúnaðarins, og verja í annað fyrr en búið væri að sjá um, að fullt útflutningsverð fengist. Eða kannske niðurstaðan ætti að verða sú, að bændur legðu á sig verðjöfnunargjald innanlands, og söfnuðu með því peningum til þess að bæta upp verð á útfluttum vörum, en gengishagnaðurinn á birgðunum, þeirra eigin vörubirgðum, væri samtímis tekinn af þeim og notaður í annað.

Að óreyndu vil ég ekki trúa því, að hæstv. ráðh. hafi þetta í huga, en til þess að þetta geti verið skýrt og ég þurfi ekkert að efast eða neinn annar, þá er hægt að bæta úr með því að lýsa því hér hreinlega yfir, að það verði hafður sá háttur á, að það, sem þarf, verði tekið af þessu fé til þess að tryggja fullar útflutningsuppbætur.

Annars álít ég, að telji menn horfur á því, að þetta fé gæti orðið meira en þarf til þessa, þá sé sjálfsagt, að nánari ákvæði komi í löggjöfina til viðbótar yfirlýsingu ráðherra, ef hún fæst. Þetta er ekkert spursmál um traust eða vantraust á einstökum ráðh. Það nær náttúrlega ekki nokkurri átt, að nokkur einstakur maður fái í sínar hendur heimild til þess að ráðstafa 150 millj., þannig að eingöngu sé bundið við setningu eins og þessa, „í þágu Íandbúnaðarins“. Maður gæti t.d. jafnvel ímyndað sér, ef slíkt væri samþ., að einhverjum dytti í hug að ráðstafa þessum peningum til einhverrar ríkisstofnunar, sem væri eign ríkisins, en hefði með höndum einhverja þjónustu fyrir landbúnaðinn.

Ég vil þá einnig spyrja hæstv. ráðh. að því, hvort honum gæti dottið í hug að taka gengismismun af þessu tagi og láta hann renna til einhverrar ríkisstofnunar, þó að hægt væri að segja, að hún væri þjónustustofnun fyrir landbúnaðinn.

Ég álít, að bændur eigi þessa peninga og þeir eigi að fá þá. Þetta er verðhækkun á þeirra vörubirgðum. Ef það hefði orðið verðfall á þessum vörubirgðum, hefðu bændur orðið að bera það. Það hefði ekki verið hlaupið til og verðfallið greitt.

Ef hæstv. ráðh. vill ekki fallast á að setja um þetta nákvæm ákvæði í l., sem ég vona, að hann vilji athuga með þeirri n., sem fær málið til meðferðar, þá væri það strax í áttina, ef hann vildi gefa þessar yfirlýsingar, sem ég fer fram á.