17.12.1968
Neðri deild: 32. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 213 í B-deild Alþingistíðinda. (205)

98. mál, ráðstafanir vegna landbúnaðarins

Benedikt Gröndal:

Herra forseti. Fyrirvari minn var um það, hvernig staðið yrði að ákvörðun um, hvað gert yrði við það fé, sem frv. fjallar um. Ég hef verið fullvissaður um, að hæstv. landbrh. hafi fallizt á, að um málið verði fjallað í ríkisstj. í heild. Eftir að ég hef fengið þá fullvissu, styð ég þetta frv. óbreytt.