14.04.1969
Efri deild: 73. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 1756 í B-deild Alþingistíðinda. (2067)
198. mál, loðdýrarækt
Frsm. (Sveinn Guðmundsson):
Herra forseti. Frv. til l. um loðdýrarækt, 198. mál Ed., er flutt af meiri hl. allshn. að tilhlutan landbrn. Minni hl., sem ekki stendur að flutningi þessa frv., er hv. 4. þm. Sunnl. og hv. 11. þm. Reykv. Skýra þeir eflaust afstöðu sína undir umr. Frv. þetta er samið af meiri hl. mþn., sem skipuð var 16. des. s. l. til að endurskoða frv. til l. um sama efni, sem borið var fram á síðasta Alþ. og þá vísað til hæstv. ríkisstj. Þeir af nm., sem staðið hafa að samningu þessa frv., eru: Ásberg Sigurðsson, formaður n„ og alþm. Jónas Pétursson og Bragi Sigurjónsson. Minni hl. mþn., sem ekki .stendur að lagafrv., eru Stefán Valgeirsson alþm. og Örnólfur Thorlacius menntaskólakennari.
Í bréfi, sem meiri hl. mþn. hefur ritað landbrn„ kemur fram, að hún hefur kallað til fundar við sig ýmsa forvígismenn með mismunandi sjónarmið og hagsmuni, svo sem dr. Þórð Þorbjarnarson, forstjóra Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins, Pál A. Pálsson yfirdýralækni, Pétur Gunnarsson, forstjóra Rannsóknastofnunar landbúnaðarins og síðasta formann Loðdýraræktarfélags Íslands, svo og veiðistjóra, Svein Einarsson, og fulltrúa frá hraðfrystihúsunum og fulltrúa náttúruverndarráðs. Þá hefur n„ eins og fram kemur í grg., aflað sér mikilla gagna, m. a. erlendis frá, um loðdýrarækt. Minkurinn er svo margræddur hér á hv. Alþ„ að óþarfi er að rekja öll þau lagaákvæði, sem í gildi hafa verið, eða þau lagafrv., sem fram hafa verið borin undanfarin ár. Með l. nr. 32 frá 1951. sem enn eru í gildi, er minkaeldi algerlega bannað. Segir á þá leið í þeim l., að óheimilt sé að reisa ný minkabú, en löglega útbúin búr máttu þó standa í þrjú misseri og steinsteypt búr allt að 5 ár.
Að sjálfsögðu hefur þetta bann við minkaeldi verið sett vegna þess, hversu illa hefur verið búið um minkabúin, minkurinn hefur sloppið úr vörzlu og gert usla. Það er því vel skiljanlegt, hversu erfiðlega hefur gengið að fá breytt þessum l. frá 1951 um loðdýrarækt. Þeir hv. alþm„ sem þekkja öll þau mistök, vilja eflaust fara varlega með leyfi fyrir mink á nýjan leik. Það mun hafa tíðkazt áður, að frv. um loðdýrarækt hafi verið falin landbn. til umsagnar eða fyrirgreiðslu. Svo er einnig með lagafrv., sem liggur fyrir hæstv. Nd. um minkaeldi í Vestmannaeyjum. Hér hefur hins vegar allshn. tekið þetta mál til flutnings. Raunverulega er það eðli málsins samkv. Loðdýrarækt er ekki einvörðungu landbúnaðarmál, þótt framgangur þess geti lyft undir íslenzkan landbúnað meira en margt annað eins og nú hagar til bæði beint og óbeint. Á ég þar t. d. við úrgangsafurðir frá sláturhúsunum, sem nú fara fyrir lítið hjá bændum, en er úrvalsfæða fyrir loðdýr. Þetta mál er ekki síður til hagsbóta íslenzkum sjávarútvegi, sem framleiðir stærstan hluta þeirrar fæðu, sem loðdýrin þarfnast, fiskúrgangs, sem nú er frystur við ærinn kostnað og seldur úr landi til frændþjóða okkar og fæðir þar ekki aðeins minkinn, heldur raunverulega hluta af þessum þjóðum. Dýrmætt hráefni, sem við getum gert okkur meiri mat úr til stórfelldrar gjaldeyrisöflunar, fer fyrir lítið, sem orsakast af mistökum áranna 1930–1951. mistökum, sem þetta lagafrv. girðir fyrir að endurtaki sig.
Frv. það, sem hér er lagt fram, gerir ráð fyrir að leyfa loðdýrarækt og þar með minkabú gegn ákveðnum skilyrðum, sem nú eru miklu strangari en áður var, meðan slík framleiðsla var leyfð lögum samkv. Frv. gerir ráð fyrir, að þeir, sem hafi í hyggju að stofnsetja loðdýrabú eða loðdýragarða, sendi um það umsókn til landbrn. Skulu fylgja með ítarlegar tæknilegar upplýsingar og umsögn viðkomandi sveitar- eða bæjarstjórnar. Veiðistjóri skal láta uppi álit sitt á umsókninni og taka út búið samkv. þessu lagafrv. en búið á að hafa þrefalda vörn, vírnetsbúr, dýrheldan skála með steyptum undirstöðuramma og dýrhelda ytri girðingu. Auk þess er til skilið, að forstöðumenn loðdýrabúa séu kunnáttumenn með minnst eins árs reynslu í hirðingu, fóðrun og meðferð dýranna.
Í ítarlegri grg„ sem prentuð er með frv., er skýrt frá þróun minkaræktar í heiminum, einnig markaðs- og sölumálum. Þar kemur fram, að Norðurlöndin eru stærstu framleiðendur minkaskinna með 9½ millj. skinna eða 40% af heimsframleiðslunni. Kemur einnig fram, að 1967 hafa tekjur Norðurlandanna hvers um sig af sölu loðskinna numið 2000–3000 millj. ísl. kr., og allt hefur þetta skeð á árunum frá 1930, þegar við einnig höfðum loðdýrarækt hér á landi. Er nú svo komið, að ekkert Norðurlandanna er aflögufært með minkafóður nema Norðmenn og að sjálfsögðu við Íslendingar. Nú eru flutt út 8–10 þús. tonn af frystum fiskúrgangi til fóðurs loðdýra, en eins og fram kemur í áætlun Efnahagsstofnunarinnar, sem prentuð er einnig hér með frv., er fiskmeti 75% af fóðurþörf minksins. Með minkarækt skapast þannig mikill og góður markaður, ekki aðeins fyrir fiskúrgang, heldur sláturúrgang og nokkuð af undanrennu. Ég skal ekki gylla hinn beina hagnað, sem af loðdýrarækt kann að fást. En það má fullyrða, að með henni skapast dýrmætur markaður fyrir úrgangsfisk og sláturúrgang, sem nú er lítt nýttur. Er áætlað, að framleiða megi hér 2–3 millj. skinna með því hráefni, sem nú fellur til í landinu. Ef líta mætti á þetta mál með þvílíkri bjartsýni, stæðum við jafnfætis hverju hinna Norðurlandanna sem væri og hefðum skapað útflutningsverðmæti allt að 3000 millj. kr. á ári. Og mér er nær að halda, að hefði ekki tilraun okkar um minkaeldi á árunum 1930–1951 farið svo gersamlega út um þúfur, værum við nú þegar hálfdrættingar á móti hverju hinna Norðurlandanna. Að frændur okkar standa fremst allra þjóða á þessu sviði gæti líka komið okkur til góða. Einmitt nú, þegar rætt er um aukna samvinnu við þessi lönd, gætum við eflaust fengið í okkar hendur dýrmæta reynslu þessara þjóða, sem mundi skapa okkur möguleika til þess að forðast dýr mistök í byrjun nú á nýjan leik.
Einnig má benda á það, að Kanadamenn standa þjóða fremst í þessari atvinnugrein, þó að þeir hafi hins vegar ekki aukið minkarækt sína undanfarin ár vegna þess, hversu fóðurkostnaður hjá þeim er nú orðinn hár og fóður takmarkað. En benda má á það, að formaður Loðdýraræktarsambands Kanada er einmitt Vestur-Íslendingur og giftur vestur-íslenzkri konu, bæði fædd að vísu í Kanada, en miklir Íslandsvinir. Hefur þessi landi okkar, Jóhann Sigurðsson, eldlegan áhuga fyrir að miðla okkur löndum sínum af sinni kunnáttu og telur, að hér sé stórmál á ferðum og líkir því við stofnun Eimskipafélags Íslands á sínum tíma. Úr þessari átt gæti okkur því borizt dýrmæt hjálp og stuðningur í þessu máli.
Öllum, sem skyn bera á þessi mál, ber saman um, að Ísland sé vel fallið til minkaræktar hvað loftslag snertir. Minkurinn virðist þarfnast kaldra heimkynna og minkarækt í heitari heimshlutum hefur ekki tekizt. Í umræðum, sem fram hafa farið undanfarin ár, þegar hliðstæð frv. hafa verið rædd hér á hv. Alþ., hefur það aðallega verið fundið að þeim lagafrv., að ekki væru í þeim nægilega ítarleg ákvæði um öryggi, ekkert, sem sannaði fjárhagsgrundvöll undir slíkum rekstri, engar kröfur um sérþekkingu og að síðustu, að forðazt væri að nefna mink á nafn, heldur aðeins talað um loðdýrarækt. Úr þessu hafa höfundar þessa frv. greinilega bætt, nema helzt, ef minkurinn er ekki nægilega oft nefndur í þessu frv. Gild rök þeirra, sem banna vilja minkaeldi, eru fyrst og fremst þau, að ætíð sé hætta á, að minkurinn sleppi úr búrum sinum, og þá sé voðinn vís. Ljóst er, að illa hefur verið búið um þessi mál, þegar minkaeldi hófst hér um 1930. Löggjafinn hafði ekki sett nægilega strangar reglur um minkabú, eftirliti hefur verið áfátt, trassaskapar og vankunnáttu hefur gætt hjá mörgum þeirra, sem ábyrgð hafa átt að bera. Þannig hefur þetta því miður oft gengið fyrir sig hér á landi, þegar farið hefur verið af stað með nýjungar, en af reynslunni og árekstrunum öðlast menn þekkingu og vita þá betur, hvað er að varast næst.
Þetta finnst mér eiga hér við. Við höfum rekið okkur áþreifanlega á og vitum nú, hvað er að varast. Þetta lagafrv. er einmitt byggt á þeirri dýrkeyptu reynslu og þótt okkur verði á skyssa, þurfum við ekki og höfum ekki ráð á að vera fullir fordóma að eilífu. Ekki er úr vegi að kynna hér að nýju umsögn veiðistjóra, Sveins Einarssonar, um minkarækt, er hann skrifaði landbn. Nd., þegar minkur var til umr. hér á hv. Alþ., en þar segir m. a., með leyfi hæstv. forseta:
„Það hefur greinilega komið fram, bæði í ræðu og riti manna um þetta mál. að þeir telja aðalhættuna, ef minkaeldið verði tekið upp að nýju, vera í því fólgna, að minkur sleppi að meira eða minna leyti úr búrum sínum og auki þannig villiminkastofninn í landinu. Um þetta atriði er ég þeirrar skoðunar nú eins og áður, að þessi hætta hljóti að vera hverfandi, ef fyllsta öryggis er gætt með gerð búranna og allan aðbúnað og í því efni stuðzt við reynslu nágrannaþjóða okkar á Norðurlöndum. Danir hafa ströng ákvæði um gerð minkabúa, og virðist allt benda til að lítil brögð séu að því, að minkur sleppi úr haldi hjá þeim. Og nýlega hófu þeir minkaeldi í Grænlandi og einnig fyrir nokkrum árum í Færeyjum, en í báðum þessum löndum voru engir villiminkar fyrir áður.“
Þetta var umsögn veiðistjóra frá árinu 1965. Fyrir hv. Nd. leggur nú frv. um minkaeldi í Vestmannaeyjum, flutt af hv. 3. þm. Sunnl. og hv. 10 þm. Reykv. Álit landbn. Nd. er þegar komið fram á þskj. 428, og er þar lagt til, að því frv. verði vísað frá með rökst. dagskrá á þeim forsendum, að frv. það, sem hér er mælt fyrir, sé væntanlegt inn í þingið.
Þar sem frv. þetta er flutt af þm., er ekki gerð till. um að vísa málinu til n. að nýju að þessari umr. lokinni, en hins vegar munu flm. taka að sjálfsögðu til athugunar einstakar ábendingar frá hv. þm., komi þeir með brtt. Að svo mæltu óska ég, að frv. verði vísað til 2. umr. að þessari umr. lokinni.