25.04.1969
Efri deild: 78. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 1779 í B-deild Alþingistíðinda. (2078)

198. mál, loðdýrarækt

Frsm. meiri hl. (Sveinn Guðmundsson):

Herra forseti. Hv. 2. þm. Austf. hefur nú miðlað okkur miklum fróðleik úr ævisögu sinni og öðru viðkomandi reynslu sinni af mink og minkaeldi. Síðast í ræðu sinni vék hann að því, að mþn., sem skipuð var og hóf starf í desember, hefði ekki lokið störfum sínum. Fyrir n. lá meiri hluta álit nm., sem höfðu lokið sínum störfum, og mér skilst, að þeir af nefndarmönnum, sem ekki hafa skilað sínu áliti, hafi verið mótfallnir þessu frv., sem n. samdi, og við því er ekkert að segja, en ég tel ekki, að þessi n. muni halda þessum störfum sínum áfram. Það er náttúrlega margt, sem þarna kemur til. Hv. þm. óskaði eftir, að fylgismenn frv. létu reynslu sína í ljós hér í þingsalnum. Persónuleg reynsla manna er vissulega misjöfn. Ég man þó eftir því, þegar ég var ungur að alast upp, að það voru mikil loðdýraræktarbú á því svæði og þau voru a. m. k. fyrir sjávarþorpin mikils virði. Það var mikill úrgangur, sem fór til þessara minkabúa, þó að verðið væri ekki hátt þá. Ég hafði gaman af að heyra það, að sá heiðursmaður Þorleifur í Hólum hefði verið mikill minkaræktarmaður, svo og náttúrlega mörgu öðru, sem hv. þm. miðlaði okkur um loðdýrarækt.

Hv. 4. þm. Sunnl. spurði ýmissa spurninga, m. a. hvað yfirdýralæknir hefði sagt um minkaeldið, en þess er getið í grg., að hann hafi verið kallaður til nefndarinnar. Mér skilst, að hann hafi ekki talið ástæðu til þess að vera á móti minkarækt sérstaklega, og þá er náttúrlega litið á málíð út frá pestum og öðrum skaðlegum áhrifum, sem minkurinn kynni að hafa á bústofn landsmanna. Það má líka geta þess, að ég sá einhvers staðar sagt frá fundi á Selfossi núna fyrir mjög stuttu, þar sem einmitt var rætt um loðdýrarækt, og á þeim fundi var dýralæknir Suðurlandskjördæmis eða Arnessýslu fundarstjóri, en hann er mikill áhugamaður um minkaeldi. Sami hv. þm., frsm. minni hl., minntist á í grg., að minkaeldið væri á fallandi fæti á Norðurlöndum. Þarna skýtur náttúrlega skökku við, ef hann les í grg. á bls. 3, því að þar er talið upp, hvernig minkaeldi hefur aukizt, hver framleiðsluaukningin hefur orðið 1960–67 einmitt á Norðurlöndum, og ég sé ástæðu til að lesa upp þessar tölur: 1960 hafa verið framleiddar 2,9 millj. skinna, 1961 3,7 millj., 1962 4,4 millj., 1963 4,8 millj., 1964 5,6 millj., 1965 6,7 millj. skinna, árið 1966 8,3 millj. og árið 1967 9,5 millj. skinna. Samfelld aukning er 15–30% árlega, og eru þá öll Norðurlöndin tekin þarna með. Það er náttúrlega eins með grávörumarkaðinn eins og margan annan markað, sem við verðum að sækja á með okkar útflutningsvörur, en það má minnast á það, að t. d. í Noregi hefur nýlega verið reist stórhýsi í Osló einmitt fyrir skinnauppboð, og ég sé ekki ástæðu til að halda annað en að minkaskinn frá Íslandi gætu komið yfir á þennan markað. Þennan markað sækja Ameríkanar, Þjóðverjar, Frakkar og aðrar þjóðir, sem kaupa þessa vöru. Hv. 4. þm. Sunnl. talaði líka um, að alls staðar vantaði fjármagn. Það er rétt, það vantar alls staðar fjármagn, en ekki er þó meiningin að leggja árar í bát og hefja engar nýjar atvinnugreinar, þó að hér sé mikill fjármagnsskortur. Mér skildist jafnvel á þessum hv. þm., að hann vildi jafnvel banna að setja fjármagn í þessa atvinnugrein. Það er náttúrlega ekki gott að ganga svo langt með að hefta frelsi manna. Þá var fundið að því, að í frv. væri ekki gert ráð fyrir steinsteyptum búrum, heldur aðeins steinsteyptum römmum undir búrin. Það er að sjálfsögðu reglugerðaratriði, hvaða byggingarefni mundi verða notað eða leyft að nota, en minna má á það, að þróun byggingarefna er svo ör, að það eru t. d. til stáltegundir, sem ekki ryðga og eru miklu öruggari heldur en steinsteypa, svo það hlýtur að vera reglugerðaratriði og verða breytilegt eftir því, hver framþróunin verður. Það gladdi mig hins vegar að heyra það hjá hv. 4. þm. Sunnl., að hann mundi fylgja lagafrv. um tilraunabú, þannig að honum er ekki alls varnað, nema síður sé. Hann minntist líka á bréf, sem hv. alþm. hefur borizt frá Hinu íslenzka náttúrufræðifélagi. Ég hef þetta bréf hér undir höndum og plagg, sem því fylgdi, sem er hið furðulegasta, enda óundirskrifað. En í þessu bréfi eru hinar mestu fullyrðingar, sem ekkert eiga skylt við veruleikann. Með þessu plaggi eru einnig látnar fylgja athugasemdir við kostnaðaráætlun Efnahagsstofnunarinnar, sem hv. þm. gerði einnig að umtalsefni. Ef litið er á þessar athugasemdir, kemur strax í ljós, að sá samanburður getur ekki staðizt. Borinn er t. d. saman kostnaður, sem er miðaður við frystan fiskúrgang annars vegar, en nýjan hins vegar. Vitað er þó, að mjög er kostnaðarsamt að frysta minkafóður til útflutnings eins og nú er gert, og verður því eðlilega af þeim ástæðum mun hærra verð á frystu minkafóðri. Ég bar þessar furðulegu athugasemdir undir Efnahagsstofnunina og hef fengið umsögn hennar um þær. Efnahagsstofnunin segir í umsögn sinni m. a., með leyfi hæstv. forseta:

„Það er greinilega skýrt frá því, að í athuguninni er miðað við, að fiskmeti og sláturúrgangur sé nýtt, ekki fryst, en þau einingarverð, sem koma fram í athugasemdunum, eru miðuð við, að fóðrið sé fryst og flutt út, og eru einingarverðin því ekki sambærileg,“ og síðar í sama bréfi Efnahagsstofnunarinnar, sem dags. er 22. apríl, segir: „Auk þess er miklu af innyflum og blóði hreinlega hent, en þar sem það væri samningsatriði á milli minkabús og sláturhúsa, hvert verð yrði á nýjum sláturúrgangi og þess eru engin nýleg fordæmi hér á landi, þá er erfitt að segja nákvæmlega, hver kostnaðurinn yrði á hvert kíló, en líklegt, að dreifingarkostnaður framangreindra sláturafurða sé allt að helmingur smásöluverðsins, og sé einnig tekið tillit til þess magns, sem hent er, er ekki fjarri lagi, að minkabú gæti fengið sláturúrgang á 5 kr. kg.“

Þá fullyrðir náttúruverndarnefnd í bréfi sínu, að hefði verið farið að þeirra ráðum í byrjun, þá væri enginn villiminkur nú á Íslandi. Þetta er að sjálfsögðu engin speki. Þótt minkurinn syndi 3 km. á klst., þá hefði hann líklega aldrei haft þol til að synda til landsins af sjálfsdáðum. Staðreyndin er, að við höfum illu heilli villiminkinn og verðum að hugsa út frá því, en ekki hlaupa til baka, aftur til ársins 1929 og stinga þar hausnum í sandinn eins og strúturinn. En það stendur fleira í þessu furðulega bréfi. Eitt er það, að þessir náttúrumenn upplýsa, að minkur, sem sleppur úr búri, aðlagi sig seint og illa hinni frjálsu náttúru. Þetta er rétt, og þannig leitar minkurinn ætíð aftur til búrsins, a. m. k. fyrstu 3 sólarhringana eftir að hann sleppur. Er því talið nær öruggt að hann náist, ef minkabúrin hafa gildrur við minkagarðana, þegar minkurinn leitar aftur til heimkynna sinna.

Þá telur náttúruverndarn. í bréfi sínu, að það muni draga úr áhuga fyrir að halda villiminknum í skefjum, verði minkarækt leyfð á ný hér á landi. Hér væri einnig rökrétt að snúa við dæminu. Gera má ráð fyrir, að minkarækt mundi skapa aðhald og leiða til þess, að fylgzt yrði mun betur með villiminknum en verið hefur, og má geta þess, að talið er, að villiminkurinn, sem nú verður að telja íslenzkan, hafi vegna þeirrar veðráttu, sem hann hefur átt við að búa um 30 ára skeið, breytt um háralag, að þelið sé nú þéttara heldur en á ræktuðum mink, þannig að náist þessi minkur eða yrðlingar og séu aldir upp í minkabúum, þá megi fá af þeim verðmeiri skinn en af venjulegum öldum mink. Ef þetta yrði reyndin, þá yrði það beint hagsmunamál þeirra, sem ættu minkabú, að ná sem flestum villtum yrðlingum og yrðu þá gerðir út sérstakir leiðangrar af forsvarsmönnum minkagarðanna. Mundi þá dæmið algerlega snúast við, leyfð minkarækt yrði til þess að útrýma villimink á Íslandi.