12.05.1969
Neðri deild: 93. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 1805 í B-deild Alþingistíðinda. (2099)

198. mál, loðdýrarækt

Birgir Kjaran:

Herra forseti. Það voru nokkur atriði í ræðu hv. 3. þm. Sunnl., sem gefa mér tilefni til að svara í fáum orðum. Hann gat þess, að einustu rökin, sem ég hefði fært fram gegn minkaeldinu, væru þau, að minkaeldi hefði mistekizt hér á landi fyrir aldarfjórðungi síðan, þegar það var reynt. Ég held nú, að a. m. k. þeim þm., sem á mál mitt hlýddu, hljóti að vera það ljóst, að hér er ekki með rétt mál farið, því að ég færði ýmis og mörg önnur rök fyrir þessu máli. Hann gat þess, og áttu víst að teljast stoðir, sem rynnu undir þetta frv., að einhvern tíma í fyrndinni hefði verið gerð tveggja ára misheppnuð tilraun með einhverja tegund þorskveiða, trúlega við Vestmannaeyjar, en það hefði ekki þótt skera úr og síðar hefði betur tekizt til. Ég verð nú að segja alveg eins og er, að mér finnst aldarfjórðungur allmikill reynslutími og ólíkur til að jafna en tveimur árum. Ég fullyrði því, að þessi rök standa enn í gildi, því að mér vitanlega hafa aðstæður ekki breytzt hér á landi, svo að minni hætta sé af minkaeldi eða að minkurinn geti orðið sá skaðvaldur, sem hann hefur reynzt, en áður var.

Þá voru nokkur önnur atriði, sem ég tel, að leiðréttingar þurfi við. Ég gat ekki betur skilið og trúi, að ég hermi rétt, að nefndur þm. taldi, að Ísland væri sérstaklega hagstætt til minkaeldis. Þessu er nú því miður ekki þannig varið, því að Ísland er einmitt að mörgu leyti fremur illa sett og verr sett en önnur lönd, nema kannske hvað fóður dýranna snertir, því að loftslag hér er yfirleitt, a. m. k. í mörgum landshlutum, mjög rakt og rakara heldur en henta þykir, þar sem minkarækt er rekin með góðum árangri, enda hefur þetta glögglega komið í ljós og kom í ljós á sínum tíma, að íslenzku minkaskinnin voru alla tíð gæðarýrari heldur en t. d. þau grænlenzku.

Þm. nefndi, að það ætti að vera skaðlaust að leyfa mönnum að skoða málið o. s. frv. Hér er ekki verið að ræða um að skoða neitt mál. Hér er verið að ræða um að leyfa minkaeldi, en ekkert að íhuga frekar, hvort það sé úr þessu æskilegt að breyta þeirri löggjöf, sem taldi minkaeldi ekki rétt. Og hann sagði, ef ég man rétt, að honum fyndist ekki nema sanngjarnt að leyfa þeim, sem það vildu, að hætta sínum eigin fjármunum í þessa tilraun. Þetta er bara ekki neitt einkamál. Það er ekki aðeins áhætta þessara einstaklinga með þeirra fjárhag og fjármál, heldur er þetta mál, sem snertir landið, sem snertir náttúru landsins og þar af leiðandi snertir þjóðina alla og ekki eingöngu og sízt af öllu fyrst og fremst peningamál eða einkamál nokkurra manna, sem kynnu að vilja leggja í þennan áhætturekstur.

Þá skildist mér og, að hann teldi þessa atvinnugrein vera nokkuð árvissa og kannske öðrum fremur og væri það nú í okkar landi, sem svo mjög er háð kenjum náttúru og sveiflum verðlags, til bóta. Þessu er þó ekki þannig varið. Minkaskinn hafa að vísu stundum í nokkur ár verið verðtraust, en þó er það þannig, að þarna getur skeð verðhrun, og man ég ekki réttara en það, að slíkt eða töluvert verðhrun og tilfinnanlegt þeim, sem þessa verzlun stunda, hafi átt sér stað fyrir fáum árum síðan, mig minnir einhvern tíma eftir 1960, þó að ég kunni ekki alveg með ártalið að fara.

Varðandi hundaæðið, sem ég gat um hér áðan og honum virtist koma ókunnuglega fyrir, þá hef ég minn fróðleik bæði úr erlendum ritum um þetta og sömuleiðis af viðtölum við yfirdýralækni, Pál A. Pálsson, og efast ég ekki um, að hann gæti gefið honum gagnmerkar og góðar upplýsingar um það mál. Hvort þessa sjúkdóms, sem þykir illkynjaður og hvimleiður, hefur orðið vart í öðrum löndum, þar sem þetta hefur verið, þá get ég upplýst það, að svo hefur verið og verið til tjóns, en því að það sé slæmt í þeim löndum, þar sem hundar eru að mestu leyti aðeins hafðir sem kjölturakkar og til skemmtunar, þá held ég, að það sé tvímælalaust hættumeira í landi, þar sem íslenzki hundurinn er verðmætt dýr við búrekstur, þar sem sauðfjárrækt er rekin.

Ég ætla ekki að orðlengja þetta, en vil árétta það, að ég tel, að hér sé á ferðinni mikið alvörumál, þar sem menn megi ekki hugsa um einhverja augnabliks ímyndaða stundarhagsmuni, heldur verði að hugsa um framtíðina og íslenzka náttúru og varðveizlu hennar.