14.05.1969
Sameinað þing: 51. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 1821 í B-deild Alþingistíðinda. (2125)
Almennar stjórnmálaumræður
Forsrh. (Bjarni Benediktsson):
Herra forseti. Góðir hlustendur. Ég hygg, að það hafi verið fyrir einum sex — sjö árum, að ég heimsótti erlendan kunningja minn. Hann spurði þá um ástand og horfur á Íslandi og tók upp bréf, sem ég hafði skrifað honum nokkrum mán. áður og þar sagt, að þá um sinn gengi sæmilega, en velgengnin væri völt á meðan hún byggðist á óveiddri síld í sjó og stöðugleika Hannibals Valdimarssonar. Þetta rifja ég upp nú, vegna þess að þarna var vikið að tveim viðfangsefnum, sem öðrum fremur um langa hríð hefur verið við að etja í atvinnu- og stjórnmálum okkar, þ. e. a. s. óvissu atvinnuveganna og rysjótta sambúð verkalýðsfélaga við önnur almannasamtök og ríkisvald. Um margt er deilt en þó ekki um það, að síðustu tvö þrjú árin hafa miklir örðugleikar að okkur steðjað. Mönnum kemur hins vegar ekki saman um, af hverju þessir örðugleikar stafi. Fyrir því verða menn samt að gera sér grein, ef ekki á illa að fara, því að enn eru það sannmæli, — að varðar mest til allra orða að undirstaðan sé réttleg fundin.
Stjórnarandstæðingar halda því staðfastlega fram í áróðri sínum, að orsakanna sé að leita í rangri stjórnarstefnu síðustu tíu árin. Mestur hluti þess áratugs er hins vegar hið örasta framfaratímabil, sem við höfum notið hér á landi. Auðvitað hefur ýmislegt farið öðruvísi á þessu árabili en menn eftir á óska að gert hefði. En orsakanna er annars staðar og lengra að leita en í rangri stefnu, sem valin hafi verið fyrir nær 10 árum. Hreinar útflutningstekjur á árinu 1968 námu hér um bil 45% minna að verðmæti en á árinu 1966. Og þegar litið er til aukins kostnaðar við öflun þeirra vegna fjarlægðar á mið og veiðarfæraslits, er óhætt að segja, að verðmætið sé a. m. k. 50% minna 1968 en 1966. Ástæður þessa eru augljósar. Minni afli, einkum á síldveiðum, lækkað verðlag á flestum afurðum og markaðslokun í Biafra. Við enga þessara orsaka hefðu nein íslenzk stjórnvöld, hver sem verið hefðu, getað ráðið, eins og á stóð. Úr áhrifum verðsveiflnanna hefði nokkuð mátt draga, ef til hefði verið öflugur verðtryggingarsjóður, en honum hefði þurft að hafa verið komið upp alllöngu áður. Um slíkt voru ekki gerðar tillögur hvað þá meira á vinstristjórnarárunum né næstu árin á eftir og enn þá síður þar áður. Hugmyndinni var fyrst lítillega hreyft af sérfræðingum eftir hækkun síldarafurða á vorinu 1965, en fékk þá ekki byr. Enda varð sú litla tilraun til verðjöfnunar, sem þá var gerð, til þess, að síldarflotinn sigldi til heimahafna, svo sem margir muna. Þeirri aðgerð fögnuðu þá mest sumir þeirra, sem síðustu mánuði hafa talað fjálglega um þann skort á framsýni, að ekki skuli fyrir löngu hafa verið gerðar rækilegar ráðstafanir til verðjöfnunar. Nú hafa menn nokkuð lært af reynslunni í þessu, og er þó skylt að játa, að hér er engan veginn um einfalt mál að tala.
Útgerð og sjómennska við strendur Íslands er svo áhættusöm, að skiljanlegt er, að báðir, sjómenn og útgerðarmenn, líti það með nokkurri tortryggni, ef svipta á þá happagróða, þegar að höndum ber, jafnvel þótt sagt sé, að það sé gert til þess að búa betur undir erfið ár. Í þá átt ber þó tvímælalaust að stefna að draga úr áhættum og sveiflum íslenzks atvinnulífs. Þar skiptir mestu að skjóta fleiri stoðum undir efnahaginn. Nauðsyn þess hefur ríkisstj. og stuðningsmenn hennar séð miklu fyrr og betur en hv. stjórnarandstæðingar.
Skemmst er að minnast deilunnar, sem stóð fyrir þremur árum um Búrfellsvirkjun og álbræðslu í Straumsvík. Þetta tvennt fór saman. Úr Búrfellsvirkjun hefði ekki orðið, ef Straumsvíkursamningurinn hefði ekki verið gerður. Gagnstætt óyggjandi rökum og tvímælalausri reynslu t. d. frá Noregi hömuðust hv. stjórnarandstæðingar þá á móti erlendu fjármagni og gera raunar enn, jafnframt því sem þeir á undan og eftir hafa verið síkvartandi undan okkar eigin fjármagnsleysi. Sem betur fer voru andmæli þeirra að engu höfð, enda tryggilega búið um okkar hag í samningunum við hina erlendu aðila. En til dæmis um skammsýnina má geta þess, að jafnvel hinir framsýnustu og bezt viljuðu í þeirra hóp töldu það þá höfuðgalla á samningsgerðinni, að með henni yrði sköpuð of mikil þensla á innlendum vinnumarkaði, svo að hingað þyrfti að flytja erlendan vinnulýð, sem flestum væri óvelkominn. Við bentum þá á, að byrgja yrði brunninn, áður en barnið dytti ofan í. Of seint væri að ráðast í svo umfangsmiklar framkvæmdir sem þessar, eftir að atvinnuleysi skylli á, en við atvinnuleysi yrðum við að vera búnir, á meðan atvinnuvegir okkar væru jafneinhæfir og hingað til hefði verið. Játa skal, að breyting á þessu tekur langan tíma, sennilega kynslóðir, en hún verður aldrei nema hafizt sé handa og í framkvæmdir ráðizt, þótt árangur komi einungis smám saman í ljós. Menn verða að muna að „hugsa ekki í árum, en öldum, að alheimta ei daglaun að kvöldum,“ eins og landnámsmaðurinn Stephan G. Stephansson kvað.
Aðrar þjóðir hafa átt í vanda svipaðrar tegundar og við og þó engan veginn eins mögnuðum. Danir eru gömul landbúnaðarþjóð, og var það lengi hald manna, að auðlegð þeirra kæmi einkum af landbúnaði, enda land þeirra fátækt af náttúruauðlindum öðrum en frjósemi jarðar og iðni íbúanna. Forystumenn Dana töldu þá hins vegar of háða landbúnaði, og fengu þeir þó í lok seinna stríðs ekki nema hér um bil 2/3 af útflutningstekjum sínum frá landbúnaðinum. Nú er það hlutfall komið niður fyrir 40% eða nær þriðjungi þó, og er þó enn markvisst unnið að því að draga úr hlutfallslegri framleiðslu landbúnaðarvara, en efla aðra atvinnuvegi. Svipaða sögu er að segja frá Ísrael. Á fyrstu árum sjálfstæðis síns framleiddu Ísraelsmenn aðallega ávexti, einkum appelsínur og fengu um 2/3 útflutningstekna sinna þannig. Nú hefur hlutfallið lækkað niður fyrir þriðjung. Áreiðanlega líða mörg ár, þangað til við verðum fiskveiðum ekki háðir í ríkara mæli en Danir nú landbúnaði. Má og eitthvað í milli vera. En á meðan við eigum jafnmiklar auðlindir ónotaðar í landinu og raun ber vitni, er það ófyrirgefanleg skammsýni að leggja ekki höfuðáherzlu á hagnýtingu þeirra. Hér er mikið og verðugt verkefni fyrir upprennandi æskulýð Íslands, enda ber honum að feta í fótspor þeirra, sem af djarfhug og drengskap hrinda miklum málum í framkvæmd, en taka ekki mark á nöldri hinna, sem raunar þykjast vera með óhjákvæmilegum breytingum, en hafa allt á hornum sér í hvert skipti, sem til raunhæfra athafna kemur.
Staðreyndin er, að nú verðum við að taka afleiðingum þess, að afkoma okkar er enn allt of óviss og sveiflukennd. Þegar leið á árið 1968, varð ljóst, að í stað hins öra tekjuauka fram til 1966 mundu tekjurnar aftur stórminnka og verða mun minni en á hinu erfiða ári 1967. Sú gagnrýni heyrist öðru hverju, að ríkisstj. hafi of seint brugðizt við þessum vanda. Þeir, sem svo tala, hafa ekki til hlítar áttað sig á, hvers eðlis vandinn er. Hann er einmitt sá, hversu erfitt og ómögulegt er að sjá hann fyrir hverju einstöku sinni. Aflabrestur er ekki vitaður fyrr en í lok vertíðar. Menn kunna að geta sér til um verðlagsþróun, en hún er síbreytileg og ótal erlendum og að verulegu leyti ófyrirsjáanlegum atvikum háð. Enginn vissi fyrir gang borgarastyrjaldarinnar í Nígeríu og þar af leiðandi langvinna lokun skreiðarmarkaðs í Biafra. Ráðstafanir gegn öllu þessu andstreymi hefðu verið út í hött og engan skilning hlotið, ef þær hefðu verið gerðar fyrr en menn höfðu sjálfir séð það og reynt.
Bezta sönnun þess er, hversu ýmsum hefur jafnvel eftir á reynzt erfitt að átta sig á hinu sanna samhengi og nauðsyn róttækra gagnráðstafana. Enn tala margir viti bornir menn um, að allt of mikið sé gert fyrir sjávarútveg. Þeir átta sig ekki á, hver úrslitaáhrif hann hefur á afkomu allra annarra atvinnugreina og kaupgetu almennings. Afkoma sjávarútvegs ræður ekki sízt langmestu um gjaldeyrismagnið, sem við höfum yfir að ráða, af því að ríflega 90% útflutningsteknanna koma frá honum. Aldagömul reynsla segir einnig, að ef skortur verður á vöru hækkar hún í verði, svo sem við höfum hvað eftir annað neyðzt til að viðurkenna með hækkun á verði erlends gjaldeyris einmitt vegna minnkandi gjaldeyrisöflunar sjávarútvegsins. Þess vegna er það forsenda fyrir tryggingu á verðmæti okkar eigin gjaldeyris að efla þær atvinnugreinar, sem hans afla.
Endirinn varð sá, að þjóðartekjur á mann reyndust hér um bil 17% minni á árinu 1968 en 1966. Fram hjá þessum vandræðum varð ekki komizt með tali um, að áður hafi óhæfileg eyðsla átt sér stað. Auðvitað hefur margt farið í súginn, en á uppgangsárunum eyddi þjóðin sem betur fer hvergi nærri því, sem hún aflaði, heldur stórbætti efnahag sinn. Sakazt er um, að of mikið hafi verið lagt í tæki til síldveiða, en t. d. ekki hugsað um endurnýjun togaraflotans, svo sem hv. síðasti ræðumaður gerði. Einkennilegt er, að slíkt er mest haft á orði af þeim, sem á sínum tíma ávítuðu stjórnvöld fyrir að styðja uppbyggingu síldveiða ekki nógu mikið og gáfust sumir sjálfir upp á togaraútgerð, a. m. k. um sinn, og/eða gerðu sitt til að torvelda hana. Lofsvert er, að nú er aftur að vakna áhugi á aukningu togaraútgerðar, en í þessum efnum hlýtur og framtak einstaklinga, þar með talið félaga, mestu að ráða. Verkefni ríkisins er að stuðla að því, að almenn fjárhagsleg skilyrði skapist fyrir slíkri útgerð, þ. á m. nauðsynlegar veiðiheimildir og hefur í þeim efnum á undanförnum árum staðið meira á öðrum en viðleitni stjórnarinnar, sem hefur átt takmörkuðum skilningi að mæta hjá öðrum aðilum, er hér koma við sögu.
Á meðan síldaraflinn var mestur, síldarævintýrið stóð, ef menn vilja svo orða það, leituðu flestir dugmestu sjómennirnir þangað, einmitt af því að uppgripin voru þar mest. Við þetta varð ekki ráðið, og hefði ekki verið vit í að reyna að ráða við það. Þar um breytir engu, þó að uppgripin yrðu ekki varanleg. Þau færðu engu að síður óhemju fjármuni á land og skildu eftir mikil varanleg verðmæti, sem ella hefðu ekki fengizt.
Þjóðarheildin varð þeirra verðmæta aðnjótandi í stórbættum lífskjörum. Á sama hátt og hún varð það þá árum saman, verður hún nú að laga lifnaðarhætti sína eftir hinum minnkuðu tekjum. Sú er óhjákvæmileg afleiðing þess að byggja afkomuna svo mjög á svipulum sjávarafla.
Hv. stjórnarandstæðingar og þá einkum framsóknarmenn tala eins og hægt hefði verið að bjarga öllu við með hliðarráðstöfunum, sem við engan hefðu illa komið. A. m. k. öðru hverju segjast þeir sumir vilja greiða fullar vísitöluuppbætur eða verðtryggingu launa og fara þar oft fram úr kröfum verkalýðsfélaganna sjálfra, samtímis því sem þeir taka undir ýtrustu kröfur opinberra starfsmanna. Framsóknarmenn telja verðlag á búvörum bænda of lágt, og illa við þá gert að flestu leyti. Þeir börðust á móti breytingu sjómannasamninga í samræmi við gengisbreytinguna. Þeir þykjast harma það, hversu sparifjáreigendur séu illa leiknir, samtímis því sem þeir segja lækkun útlánsvaxta margra meina bót. Þeir vita þó ofurvel, að lækkun útlánsvaxta hlyti að leiða til lægri innlánsvaxta, og þá fyrst yrðu sparifjáreigendur verulega hart leiknir, án þess að nokkra úrslitaþýðingu hefði fyrir atvinnuvegina. Enda eru vextir hér alls ekki miklu hærri en víðast annars staðar, eins og oft er látið, heldur eru þeir í samræmi við það, sem allvíða tíðkast. Almennir útlánsvextir banka í Danmörku eru eftir síðustu vaxtahækkun þar í landi um 11%, en 9–10% hér á landi. Þar sem einhverrar óánægju verður vart, reyna framsóknarmenn að magna hana og ýta undir allar kröfur um aukin útgjöld alveg án hliðsjónar af því, hvort þær verði að gagni eða ekki. Og nú segja framsóknarmenn kaupmenn vera allt of hart leikna, þá stétt, sem Framsókn hefur frá upphafi ofsótt. Hætt er og við, að bæði kaupmenn og aðrir, sem Framsókn biðlar nú til mundu til frambúðar fá hjá henni kalda vist, ef hún væri á ný komin í valdasess.
Skýringin á öllu orðagjálfri og brölti Framsóknar nú er sú, að framámenn hennar telja sig borna til ríkis hér í landi. Þeir gleyma því ekki, að fyrstu 40 árin af hálfrar aldar tilveru flokksins var hann langlengst við stjórn. Þeim finnst það hvort tveggja brjóta á móti guðlegri forsjón og þeirra eigin hjartfólgnustu vonum og fyrirætlunum að verulegt hlé hefur orðið á valdaferli þeirra. Þeir svífast þess vegna fás til þess að ryðjast til valda á ný. Þeir lofa öllum öllu í þeirri veru, að sjálfir ráði þeir efndunum.
Náköld er Hemra,
því Niflheimi frá
nöpur sprettur á.
Ert kaldara undir rifjum
er konungsmönnum hjá,
sagði Grímur Thomsen af kynnum sínum við þá dönsku valdabraskara, sem hann hafði alllengi unnið með fyrir rúmum 100 árum. Hugarfar íslenzku valdabraskaranna er hið sama og þeirra dönsku fyrirrennara og lærimeistara. Einn hinn puntulegasti í þessum hóp vildi fyrir þremur árum láta dæma þingræðið eftir því, hvort Framsókn kæmist skjótlega til valda eða ekki. Annar sagði ári síðar, rétt fyrir kosningarnar 1967, að ef þeir félagar fengju þá ekki völdin, nennti hann ekki að vera að þessu lengur. Og nýlega sagði hinn fyrr nefndi, að nú mætti valdatakan ekki lengur mistakast.
Óeirðin er því athugaverðari sem því fer fjarri, að níðzt hafi verið á þessum mönnum, á meðan þeir hafa ekki haft öll völd í hendi sér. Engum hefur komið til hugar að setja þá til hliðar á sama hátt og foringjar þeirra hældust um, að gert hefði verið við nær helming þjóðarinnar síðast, þegar framsóknarmenn voru við völd. Þeir njóta nú einungis ekki lengur forréttinda umfram aðra landsmenn. Þeir verða eins og aðrir að sæta hinu íslenzka misviðri, una hita og kulda eftir atvikum. Veruleikinn hefur að undanförnu reynzt okkur öllum æði kaldur, en hann verður ekki hlýrri með því að treysta innantómum faguryrðum eða úr- og íslætti þeirra, sem þora ekki að segja, hvað þeim raunverulega býr í brjósti.
Vandinn, sem á s. l. vetri var við að etja, var svo mikill, að hann hlaut að bitna á allri þjóðinni. Frá því gat enginn einangrað sig eða ætlað sér forréttindi. Þess vegna var það kannað, hvort unnt væri að koma á samstarfi allra flokka. Viðræðurnar voru gagnlegar og í sjálfu sér vinsamlegar. Þar breytir engu, þó að sumir stjórnarandstæðingar láti nú í það skína eða haldi berum orðum fram, að þeir hafi þá sagt sitt hvað, sem þeir aldrei höfðu á orði í áheyrn okkar hinna. Frá þeim sést aldrei heilleg tillögugerð um úrlausn mála, heldur tætingslegar bollaleggingar um aukaatriði og svokallaðar hliðarráðstafanir, sem engum úrslitum geta ráðið.
Engu leyndarmáli er ljóstrað upp, þó að sagt sé það, sem við öllum blasti, að annað hvort varð að gera: Í fyrra lagi að samþykkja stórkostlegar uppbætur til atvinnuvega, ekki einungis til sjávarútvegs, heldur og til iðnaðar með samsvarandi skattaálagningu á allan almenning, eða í öðru lagi gengislækkun, sem hefði í för með sér almenna kjaraskerðingu þegar í stað. Þriðja leiðin, það er allsherjarlækkun verðlags, var óraunhæf, því að verðlag og tilkostnað er einungis hægt að lækka með beinum launalækkunum, sem bitna enn harðar á almenningi en hvort heldur skattar til uppbóta eða gengislækkun, þótt þær ráðstafanir séu erfiðar og enginn ráðist í þær ótilneyddur. Aðalatriðið er, að almenn kjaraskerðing var óhjákvæmileg, og það var vegna þess, að hv. stjórnarandstæðingar vissu það, sem þeir töldu sér hentara að taka ekki á sig ábyrgð á s. l. hausti, heldur létu sér nægja að hafa í frammi margs konar hrakspár.
Þvílíkt ábyrgðarleysi er út af fyrir sig ærið varhugavert. Hitt er þó miklu verra, að sumir þeirra hafa eftir föngum ætíð reynt að torvelda eðlilegan framgang mála. Fyrir jólin fullyrtu þeir, að sjávarútvegslögin, sem þá voru sett, mundu brotin og að engu gerð strax eftir áramót. Sjómannaverkfallið dróst raunar nokkuð á langinn, en um kjörin var samið innan ramma laganna og á þeirra grundvelli. Því fór sem sagt fjarri, að sú lagasetning misheppnaðist. Hún skapaði þvert á móti skilyrði til hagnýtingar þeirrar góðu vertíðar, sem okkur hefur nú hlotnazt. Svipuðu máli gegnir um hina almennu launasamninga. Þeim var löglega sagt upp flestum af hálfu verkalýðsfélaganna, og hvernig sem eftir á er látið, vissu allir fyrirfram, að áframhaldandi verðlagsbætur yrðu ekki greiddar, nema um það yrðu gerðir nýir samningar með þeim hætti, að þeir samsvöruðu núverandi efnahag okkar. Heyrzt hefur, að með þessu hafi marz-samkomulagið frá því í fyrra verið rofið. Því fer fjarri, að svo sé. Verkalýðsfélögin sjálf sögðu því sem sagt einmitt upp fyrir áramótin.
Marz-samkomulagið var og gert í þeirri trú og í því trausti, að árið 1968 yrði okkur auðveldara en árið 1967. Ella var hvort tveggja meiningarlaust: Sú takmörkun verðtryggingar, sem einkum átti við fyrri hluta árs 1968, og vaxandi verðtrygging launa eða hækkuð kaupgreiðsla síðari hluta árs. Takmörkunin átti að bæta skakkaföllin, sem við þegar höfðum orðið fyrir. Sá léttir á atvinnuvegunum nægði hvergi nærri, þegar á reyndi, og getan til aukinnar kaupgreiðslu eða launatryggingar var ekki fyrir hendi, af því að hin ytri, okkur óviðráðanlegu atvik snerust þjóðinni áfram í óhag. Þess vegna er það eitt í samræmi við marz-samkomulagið að taka nú einnig tillit til allra aðstæðna. Þegar afstaða verkalýðsfélaganna er skoðuð hlutlaust, verður hún heldur naumast skilin nema frá þessu sjónarmiði. Samningar hafa raunar gengið erfiðlega. Þar kemur margt til. Vandi sjálfs úrlausnarefnisins og tregða til að taka á sig ábyrgð af óhjákvæmilegri kjaraskerðingu. Innbyrðis klofningur og togstreita magna þessa erfiðleika, eins og von er, þegar enginn trúir hinum. Sá glundroði er ærið vandamál út af fyrir sig. En þrátt fyrir alla tregðu og togstreitu, stóryrði og hótanir um verkföll, ásamt takmörkuðum verkföllum og verkbönnum, hefur tekizt að halda svo á, að vertíðinni, mesta aflatíma ársins, hefur að mestu verið bjargað. Það hefði ekki tekizt, ef skilningur og góðvild hefði ekki undir niðri ráðið meira en af yfirborði mátti ætla.
Nú vil ég hér skjóta því inn, að þrátt fyrir hálfyrði mín í upphafi um stöðugleika Hannibals Valdimarssonar, þá met ég mjög mikils hið að mestu leyti góða samstarf, sem ég hef átt við hann og aðra verkalýðsforingja, eftir að ég tók við núverandi embætti mínu. Margháttað samstarf við þá síðustu árin hefur leitt til þess, að ég skil sjónarmið þeirra og erfiðleika miklu betur en áður. Annað mál er, að ólíkur sjónarhóll skapar ólík sjónarmið og þar af leiðandi skoðanir, og er ekki um það að fást.
Mér er vel ljóst, að ríkisstj. hefur verið sökuð um afskiptaleysi og oft hefur verið haft á orði, að hún ætti að skerast í leikinn, lögfesta eitthvað, sem enginn hefur þó gert sér grein fyrir, hvað vera skyldi, og banna verkföll. Við höfum metið hitt meira að bjarga raunverulegum verðmætum en hafa í frammi hetjuskap í orði. Að sjálfsögðu höfum við látlaust unnið að sáttum eftir því, sem aðilar, sáttanefnd og sjálfir við, hafa talið mega að gagni koma. En ótímabær lagaboð eru, eins og reynslan hefur nógsamlega sýnt, til þess löguð að hafa þveröfug áhrif við það, sem ætlað var. Enda hefur með varúð og lempni á alla vegu tekizt það, sem fáir trúðu fyrir fram og of margir hafa á móti unnið, að ná á þessari vertíð meiri verðmætum á land en oft ella.
Hvernig sem þessum deilum lyktar, þá verður ekki hjá því komizt að endurskoða vinnulöggjöfina. Hún er nú orðin mannsaldursgömul, sett 1938, og því eðlilegt, að menn sjái nú margt betur en við þá frumsmíði. Ríkisstj. ákvað og á s. l. vori, hinn 9. maí, að efna til slíkrar endurskoðunar. Ýmisleg atvik hafa orðið til þess, að enn hefur ekki úr þessu orðið, fremur en fyrri tilraunum, t. d. á dögum vinstri stjórnarinnar, í sömu átt. Erfitt er að sjá, hvernig hægt er með rökum að snúast gegn þeirri breytingu, að svo veigamikla ákvörðun sem um verkfall eða verkbann megi ekki boða nema eftir samþykkt við allsherjaratkvgr., er tiltekinn lágmarkshluti félagsmanna taki þátt í, svo og að lengri fyrirvara þurfi til boðunar þvílíkra aðgerða en aðeins eina viku. Þá sýnist og, að minna megi ekki krefjast en að kröfur aðila séu settar fram áður en þessar ákvarðanir eru teknar. Vandasamara verður að finna hæfilegar reglur til að tryggja, að lítill hópur eða félag fárra starfsmanna geti ekki stöðvað víðtæka starfrækslu og þar með svipt fjölda manna vinnu eða leitt til þess, að svo verði, t. d. með víðtækum gagnráðstöfunum vinnuveitenda. Eins er á daginn komin hættan á því, að unnt er að velja úr einstök lykilfyrirtæki, þar sem stöðvun getur leitt til raunverulegrar allsherjar stöðvunar áður en yfir lýkur, þótt slíkt sé ekki látið uppi. Þá er og mjög til athugunar að lögfesta heimild sáttasemjara eða ríkisstj. til að fresta vinnustöðvun tiltekinn tíma, svo að öllum aðilum gefist nægur kostur á, í ró og næði án óhæfilegs þrýstings, að íhuga alla málavexti.
Eins og ég segi er hætt við að sumar af þessum hugmyndum mæti harðri andstöðu jafnvel sanngjarnra manna, þó að erfitt sýnist fyrir raunverulega lýðræðissinna að snúast gegn a. m. k. öðrum. En þótt hér sé um að ræða þarfar lagabreytingar, skyldu menn hafa í huga að festa ekki of miklar vonir við þær eða árangur þeirra, a. m. k. ekki í fyrstu. Einbeittir forystumenn koma vilja sínum oftast fram í slíkum deilum og þess vegna veltur mest á því að skapa skilning og samningsvilja á milli aðila. Verkfalls- og verkbannsréttur er talinn á meðal sjálfsagðra mannréttinda í lýðfrjálsum löndum í andstöðu við það, sem hjá einræðismönnum gildir, sbr. gremju Sovétmanna gegn lítils háttar vísi verkfalla í Tékkóslóvakíu á s. l. sumri. Engu að síður vegnar frjálsum þjóðum því betur sem þeim lánast fremur að forðast verkföll. Þýzkir verkalýðssinnar segja berum orðum, að hinn ótrúlega hraðfara bati á þýzkum efnahag síðustu áratugi stafi ekki sízt af því, að þar í landi hafi að mestu tekizt að forðast verkföll frá stríðslokum 1945, gagnstætt því, sem var á millistríðsárunum. Sami er dómur sænskra jafnaðarmanna um ástæður til velfarnaðar Svía hin síðari ár. Það er áreiðanlega ekki sízt í vitund um þessa reynslu skoðanabræðra sinna, sem Wilson forsrh. Breta reynir nú að fá setta löggjöf til að sporna gegn verkfallsfaraldrinum þar í landi, faraldri, sem meira en flest annað á sök á örðugleikum Breta. Enn er ekki sýnt, hvernig sú tilraun tekst. Í bili virðist svo, sem Wilson hafi orðið að láta undan síga, en aðrir telja svo mikið við liggja, að eitt helzta málgagn brezkra íhaldsmanna gerði s. l. sunnudag till. um myndun samstjórnar beggja stóru flokkanna í Bretlandi til að koma fram skaplegri löggjöf um þessi efni.
Hvað sem úr því verður, er óumdeilanlegt, að í nútímaþjóðfélögum hafa verkföll reynzt tvíeggjað vopn, sem bitnað hefur á allri þjóðarheildinni, verkalýð ekki síður en öðrum. Afnámi þeirra verður hins vegar ekki náð nema með mikilli þolinmæði og aukningu á skilningi stétta á milli og vitund um það, að öll erum við á sama báti. Valdboðin ein hrökkva skammt hér sem ella á meðal frjálsra manna, meðan skilninginn skortir. Þess vegna þarf hann öllu öðru fremur eflingar við. — Góða nótt.