14.05.1969
Sameinað þing: 51. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 1859 í B-deild Alþingistíðinda. (2133)

Almennar stjórnmálaumræður

Halldór E. Sigurðsson:

Herra forseti. Góðir áheyrendur. Við 1. umr. fjárl. fyrir yfirstandandi ár lögðum við framsóknarmenn áherzlu á tvennt: Í fyrsta lagi, að hjá atvinnuleysi yrði komizt og í öðru lagi, að gætt væri ýtrasta sparnaðar og hagkvæmni í ríkisrekstrinum. Jafnhliða þessari yfirlýsingu vöktum við athygli á því, að stefna fjárlagafrv., eins og það var úr garði gert af hálfu ríkisstj., gekk fram hjá þessum höfuðverkefnum. Við afgreiðslu fjárl. á s. l. hausti gerðum við till. um 350 millj. kr. fjárveitingu til atvinnumála. Við buðum stjórnarliðinu upp á samstarf um afgreiðslu þessarar till., t. d. um það, að einhvers hluta fjárins yrði aflað með lántöku. Það, sem við töldum máli skipta, var það, að á atvinnumálum þjóðarinnar yrði tekið þá þegar með framsýni og dugnaði, svo að hjá atvinnuleysi yrði komizt.

Ríkisstjórnarliðið felldi till. okkar um 350 millj. kr. fjárveitingu til atvinnumála. Féleysi var kennt um. Afleiðingarnar hafa ekki látið standa á sér. Allt síðan um áramót hefur verið mikið atvinnuleysi í landinu og er ennþá. Hugsandi menn horfa nú með kvíða til þess, þegar skólaæskan kemur út á vinnumarkaðinn, ef getu- og úrræðaleysi valdhafanna á að mæta henni þar. Svo virðist sem helztu úrræði ríkisstj. í atvinnumálum skólaæskunnar eigi að vera þau að gera hana að bótaþegum hjá Atvinnuleysistryggingasjóði í staðinn fyrir að nýta krafta hennar til verðmætasköpunar. Fjármunir Atvinnuleysistryggingasjóðs, er áður gengu til stuðnings við atvinnuvegina og ríkisframkvæmda, rýrna nú að sama skapi sem útstreymið eykst þaðan vegna bótagreiðslna til atvinnulausra. Alls hafa verið greiddar 77 millj. kr. frá áramótum til aprílloka til atvinnulausra.

Stjórnarstefnan sjálf hefur verið stórvirk í skiptum sinum við.atvinnuvegina. Hún hefur búið þannig að þeim, að ríkisstj. telur afkomu þeirra slíka, að þrátt fyrir stórfelldari gengisbreytingu á einu ári en dæmi eru til og samfellt góðæristímabil til ársloka 1966, geti þeir ekki greitt hærra kaup en svo, að tekjur þeirra launalægstu rétt nægi til að greiða vexti og hitunar- og rafmagnskostnað í hóflegri íbúð með nútíma verðlagi.

Eins og áður er að vikið, báru stjórnarliðar því við, að fjármunir væru ekki fyrir hendi hjá ríkissjóði til að styðja atvinnuvegi landsmanna og afstýra atvinnuleysi. Um þessa röksemdafærslu er þetta að segja: Rétt er það, að ríkissjóður var rekinn með halla árið 1967, þrátt fyrir að tekjur færu verulega fram úr áætlun fjárlaga það ár, og hefur það sennilega verið einnig svo árið 1968. Það getur verið réttlætanleg stjórnaraðgerð að reka ríkissjóð með halla eitt ár í senn, ef það er gert í þeim tilgangi að færa atvinnulífi landsmanna blóðgjöf, svo að efnahagur sé treystur og atvinnulífið starfi með fullri orku. Þess háttar ráðstöfun getur beinlínis tryggt það, að tekjustofnar skili sínu, og reyndin orðið sú, að hún komi í veg fyrir rekstrarhalla ríkissjóðs, þótt djarft sé stefnt og annað sýnist í upphafi, ef framsýni og dugnaður ræður slíkum athöfnum. Ég efast t. d. ekki um það, að það hefði reynzt ríkissjóði og þjóðinni í heild happadrýgra að samþ. frv. okkar framsóknarmanna um að fella niður söluskatt af mestu nauðsynjum, þó að það liti út sem tekjumissir hjá ríkissjóði, og bægja á þann hátt frá þeim verkföllum, sem verið hafa í allan vetur og dregið hafa stórlega úr framleiðslu þjóðarinnar. Ég tala nú ekki um, hvað afkoma ríkissjóðs hefði verið betur tryggð en hún nú er með samþykkt þess frv., ef frv. okkar um hert eftirlit með álagningu skatta og innheimtu skatta hefði einnig verið samþ.

Enda þótt ég telji, að miða verði stefnu í efnahagsmálum þjóðarinnar við aðstæður á hverjum tíma og að ríkissjóður sé rekinn að jafnaði hallalaus, er þó hægt að réttlæta halla ríkissjóðs sem aðgerð í efnahagsmálum. Hallarekstur, er nú á sér stað hjá ríkissjóði, er hins vegar forkastanlegur, þar sem hann stafar fyrst og fremst af rekstri ríkiskerfisins sjálfs, því að með hverju ári lækkar hlutfall þeirra útgjalda í heildarútgjöldum ríkissjóðs, er til verklegra framkvæmda er varið. Hefur það verið áhyggjuefni þeirra, er horft hafa á þessa þróun með opnum augum. Afkoma vegasjóðs og möguleikar hans til þess að leysa verkefni sín er glöggt dæmi um þetta, en að því verður vikið síðar.

Í sambandi við ríkisbúskapinn vil ég minna á það, er mjög rækilega var tekið fram af okkur framsóknarmönnum við umr. um fjárl. á s. l. vetri, að ef þjóðin ætti að komast úr yfirstandandi efnahagsörðugleikum, yrði að breyta til í ríkisbúskapnum, sýna þar sparnað, hagsýni og aðhald. Við afgreiðslu fjárl. bentum við framsóknarmenn á nokkur atriði, er til sparnaðar mættu verða. Hver er svo reynslan? Eitt af því, er við töldum að til sparnaðar horfði, var að sameina í rekstri hjá Skipaútgerð ríkisins allan skipaflota ríkissjóðs. Nú hefur þetta verið gert. Ekki verður hjá því komizt að vekja athygli á sparnaði ríkisstj. í framkvæmd. Skipaútgerð ríkisins er gott dæmi þar um. Ríkisstj. setti henni stjórnarnefnd fyrir nokkrum árum í sparnaðarskyni, tvo menn auk forstjóra á sama tíma sem starfsemi útgerðarinnar dróst saman, þar sem skipunum fækkaði. Þessir stjórnarnefndarmenn sátu 39 fundi árið 1967 og var greitt fyrir það 149 þús. kr. hvorum, og nú er sparnaðurinn hjá Skipaútgerð ríkisins viðbótarforstjóri, og eru þeir þá orðnir 2 við hliðina á stjórnarnefndinni. Orð og athafnir eiga ekki samleið í sparnaði hjá ríkisstj.

Enda þótt ég muni ekki að þessu sinni, tímans vegna, drepa nema á lítið eitt af því, sem ég teldi, að betur mætti fara í framkvæmd í ríkisrekstrinum, þá vil ég leggja áherzlu á það, að fullkomin ástæða er til verulegs aðhalds þar. Ég vil í því sambandi minna á orð hæstv. fjmrh. úr fjárlagaræðu hans á s. l. hausti, en þá fórust honum orð m. a. á þessa leið, er hann ræddi um skattaeftirlit, með leyfi hæstv. forseta: „Þótt ekki sé venja að minnast á einstaka aðila í þessu sambandi, get ég ekki stillt mig um að nefna misferli forstöðumanna Sementsverksmiðjunnar, af því að þar er um ríkisfyrirtæki að ræða. Það er sannast sagna ekki að undra, þó að erfitt sé um aðhald í þessum efnum, er ekki er einu sinni hægt að treysta opinberri stofnun. Því tel ég nauðsynlegt að taka mjög hart á misferli slíks fyrirtækis.“ Ég leyfi mér að spyrja: Hvað er um hörðu tökin í þessu máli? Það hefur verið furðuhljótt um það, hvort önnur mistök eða skattsvik hafi átt sér stað hjá Sementsverksmiðjunni, og alger þögn um málið, síðan fjmrh. gaf út þessa yfirlýsingu. Ég spyr: Á hvaða stigi er þetta mál? Er ekki væntanleg einhver skýrsla frá ríkisstj. um það?

Ég vil í þessu sambandi víkja lítið eitt að umr. þeim, sem orðið hafa um aths. þær, er fram komu við ríkisreikninginn fyrir árið 1967 frá yfirskoðunarmönnum. Ég vil fyrst taka það fram, að allir yfirskoðunarmenn ríkisreikningsins, auk mín þeir Sigurður Óli Ólafsson fyrrv. alþm. og Haraldur Pétursson safnvörður, stóðu að aths. Ég vil einnig vekja athygli á því, að það kemur hvorki fram í aths. né í ræðu minni við 1. umr. um ríkisreikninginn í Nd. ásökun á hæstv. fjmrh. vegna þeirra mistaka og þess stjórnleysis, er við teljum koma fram við embætti húsameistara. Hitt verð ég að segja, að grg. sú, er ráðh. lét frá sér fara vegna þessa máls, var mér vonbrigði. Ég vil það eitt um þetta mál segja nú: Ríkisstj. hefur góða grg. frá ríkisendurskoðuninni um málið, sem vitnað er til í aths. yfirskoðunarmanna, og hér eftir er það hennar mál, hvernig með verði farið. Ég vil hins vegar taka fram, sem ég hef áður gert, að ég tel linlega á haldið af hálfu fjmrn, og ráðh. um skil innheimtumanna ríkissjóðs. Úr því verður að bæta.

Ég endurtek við þetta tækifæri yfirlýsingu okkar framsóknarmanna um nauðsyn breyttrar stefnu um bílarekstur ríkisins vegna embættismanna og forstjóra. Ég tel óhjákvæmilegt að fella þessi hlunnindi niður. Svo herfilegs ósamræmis gætir þar, að allt annað er óafsakanlegt. Ég endurtek einnig, að umbætur í þjóðfélaginu á sviði efnahags- og fjármála eru óframkvæmanlegar að dómi okkar framsóknarmanna, nema ríkisreksturinn sé tekinn til gagngerrar endurskoðunar og nýrrar skipulagningar, — fyrirtæki sameinuð, aðhald hert og meinsemdir upprættar, þar sem þær er að finna. Aldrei er meiri þörf á því en nú, þegar afkoma ríkissjóðs er slík að dómi hæstv. fjmrh., að hann reynir með undanbrögðum að komast hjá því, að ríkissjóður greiði starfsfólki sínu laun þau, sem því ber samkvæmt venjulegum skilningi á kjarasamningi. Ég undirstrika, að það er breytt stefna, aukið aðhald og hagsýni, sem getur bætt afkomu ríkissjóðs, en ekki það að halda eftir þúsund kr. mánaðarlega af tekjum þeirra, sem hafa tíu þúsund kr. fyrir sig og sína að leggja á mánuði hverjum.

Eins og áður er að vikið, eru vegamálin gott sýnishorn um það, að tekjur ríkissjóðs ganga til annars en verklegra framkvæmda. Engin ríkisstj. hefur haft jafn mikla möguleika til framkvæmda í vegagerð og núverandi valdhafar vegna þeirra miklu tekna er umferðin skapar, með margföldun á sköttum á rekstri bifreiða og gífurlegri fjölgun þeirra. Það hefur verið og er stefna Framsfl., að góðar samgöngur séu forsenda þess, að viðskipta- og atvinnulíf landsmanna gangi með eðlilegum hætti. Á valdaárum Framsfl. tókst að koma vegakerfi landsmanna til allra héraða landsins og á þann hátt að leggja grundvöll að því, að umferðin yrði vegasjóði sú tekjulind, er nú er orðin. Ekki orkar það tvímælis, að uppbygging vegakerfisins á þeim árum var þrekvirki. Það mun eiga sér fáar hliðstæður í sögu þjóðarinnar. Þessi staðreynd er óhagganleg, þó að verkefni vegagerðar séu óþrjótandi, er engan þarf að undra í þjóðfélagi, sem er í örri uppbyggingu. Það vekur því undrun, að eftir þær gjörbreytingar, sem hafa nú orðið um tekjuöflun til vegagerðar, skuli ástandið í fjármálum vegasjóðs vera slíkt, að hann var með 520 millj. kr. skuld á síðustu áramótum. Ástæða þess, að svo er komið, er sú, að ríkissjóður er hættur að leggja fram fé til vegagerðar síðan 1965. Ríkissjóður hefur hins vegar hirt af umferðinni allar tolltekjur og leyfisgjöld. Munu þessir tekjustofnar hafa fært ríkissjóði tekjur, er hundruðum millj. kr. námu árlega nú síðustu árin. Stærstu verkefnin í vegagerð hafa hins vegar verið fjármögnuð með erlendu lánsfé, og nam gengistapið af þeim um 150 millj. kr. á s. l. tveimur árum. Það þarf engan að undra, þó illa sé komið málum vegasjóðs, þegar svo hefur verið á haldið. Það hefur verið yfirlýst stefna Framsfl., að vegagerðin ætti að fá til sín tekjur af umferðinni og þjóðin hefði ekki efni á öðru, meðan verkefnin í vegamálum væru svo mikil sem raun ber vitni. Framkvæmd þessarar stefnu hefur Framsfl. sett fram með þeim hætti, að vegasjóður hefði sem fastan tekjustofn alla sérskatta af umferðinni og ríkissjóður veitti svo fé til hans af tolltekjum, sem til hans falla. Stjórnarliðið hefur fellt allar till. okkar framsóknarmanna hér að lútandi, meira að segja hefur ríkisstj. gengið það langt, að þeir hafa brugðizt samkomulagi, sem gert var á milli allra þingflokka við setningu vegalaga um lágmarksframlag ríkissjóðs til vegamála.

Enda þótt barátta okkar fyrir leiðréttingu í þessu máli hafi ekki náð eyrum þm. stjórnarliðsins áður fyrr, er nú svo komið, að öllum er ljóst, að rétt er, sem við höfum haldið fram, framsóknarmenn, að vegasjóður veldur ekki verkefni sínu. Nú hefur það tvennt gerzt, að með samstöðu þm. úr öllum flokkum hefur ríkisstj. verið beygð til þess að láta ríkissjóð taka að sér greiðslur á vöxtum og afborgunum af vegalánum á vegáætlunartímabili því, sem nú er að hefjast. Auk þess hefur verið horfið að því ráði að hækka benzínskatt, svo að vegagerð legðist ekki niður að mestu, eins og stefnt var að með till. ríkisstj. að vegáætlun fyrir næstu 4 ár. Hér hefur mikið áunnizt. Barátta þm. við ríkisstj. að taka vegamál úr hennar höndum hefur hvort tveggja í senn aukið veg Alþ., tryggt áframhaldandi vegagerð og bjargað verulegum þætti í atvinnumálum þjóðarinnar.

Herra forseti. Ég lýk nú senn máli mínu, en vil að lokum minna á þetta: Íslenzka þjóðin á nú í miklum efnahagsörðugleikum, svo sem kunnugt er. Ríkissjóður er rekinn með halla. Allar meiri háttar framkvæmdir eru fjármagnaðar með lánsfé, sem framtíðin á að greiða. Erlendar skuldir eru nú orðnar það miklar, að vextir og afborganir af þeim munu nema um 15–20% af gjaldeyristekjum þjóðarinnar. Geigvænlegt atvinnuleysi er í landinu. Stórátök eru á vinnumarkaðinum, atvinnuvegirnir lamaðir og kaupgjald þeirra lægst launuðu nægir aðeins til nauðþurfta. Þannig er ástandið í landinu, þrátt fyrir nýliðið góðæri og stórfelldar gengisbreytingar. Ástæðan til þessa ástands er að sögn ríkisstj. erfitt árferði. Rétt er það, árferðið er erfiðara nú en þegar það var bezt. Höfuðástæðan er samt úrræða- og stjórnleysi ríkisstj.

Enda þótt nú syrti í álinn, þá er ég sannfærður um, að íslenzka þjóðin hefur þann manndóm, sem nægja mun til þess að hún komist yfir þessa örðugleika, en til þess þarf hún nýja stjórnarforystu, — stjórnarforystu, sem hefur til að bera kjark til að takast á við vandamálin og þróttmikla framsýni og stjórnsemi í athöfnum sínum. — Góða nótt.