16.05.1969
Sameinað þing: 52. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 1896 í B-deild Alþingistíðinda. (2141)
Almennar stjórnmálaumræður
Einar Ágústsson:
Herra forseti. Háttvirtu áheyrendur. Á þeim vetri, sem nú er nýliðinn, bjó íslenzka þjóðin við meira atvinnuleysi en nokkru sinni fyrr. Augljóst er, að getuleysi atvinnuveganna er eitt aðalvandamálið. Gengislækkun sú, sem framkvæmd var í nóvembermánuði s. l., var gerð til þess að greiða úr vanda fyrirtækjanna, en á það var bent m. a. af hæstv. forsrh., að gengisbreytingin skapaði í fyrstu lotu fleiri vandamál en hún leysti. Atvinnuvegirnir höfðu búið við fjármagnsskort í mörg ár. Þeir voru því vitanlega vanmegnugir að mæta stórfelldum hækkunum á öllum tilkostnaði, sem sigldi í kjölfar gengisfellingarinnar. Það var höfuðnauðsyn að auka rekstrarfjármagn þeirra, en þetta var ekki gert nema að mjög óverulegu leyti. Afleiðingin varð atvinnuleysi.
Þrátt fyrir mjög góða vetrarvertíð og batnandi markaðshorfur erlendis hafa vinnuveitendur enn ekki séð sér fært að greiða laun samkv. samningum. Það er þó lágmarkskrafa, að ekki verði enn vegið að þeim lægstlaunuðu, enda hljóta allir að sjá og viðurkenna, að ekki er hægt að ætlast til þess, að fjölskyldur lifi á lægstu laununum, 10–11 þús. kr. á mánuði, eftir þær stórfelldu verðhækkanir, sem yfir hafa skollið síðasta árið. Það þýðir ekkert lengur að halda því fram, að allir hafi hærri laun en þetta vegna mikillar vinnu. Ástandið hefur verið þannig í vetur, að þúsundir manna hafa ekki einu sinni haft þessi laun, hvað þá meira. Og hvernig verður ástandið, þegar 8 þús. framhaldsskólanemar koma á vinnumarkaðinn eftir nokkra daga? Að því hafa aðrir ræðumenn þegar vikið í umr., og skal ég ekki fjölyrða um það. En ég tel, að Alþ. geti ekki farið heim án þess, að einhver niðurstaða hafi fengizt í tveimur stærstu vandamálunum, sem þjóðin á nú við að glíma, kjaradeilunni og atvinnuhorfum framhaldsskólanema.
Hv. þm. Jón Þorsteinsson beindi þeim tilmælum til samherja sinna í stjórnarráðinu, að þeir notuðu tækifærið í sambandi við breytingar þar til þess að endurskipuleggja ríkisstj. þannig, að hún geti á þróttmeiri hátt en gert hefur verið tekizt á við viðfangsefni sín. Þetta er fróm ósk og sýnir mat þm. En ég er hræddur um, að enda þótt mannaskipti gætu orðið til einhverra bóta, mundu þau ekki skipta sköpum, ef stefnan yrði sú sama. Núv. ráðh. eru yfirleitt, að ég held, ekkert óstarfhæfari en ýmsir samherjar þeirra hér á þingi. Þeir eru að sönnu oft ráðvilltir og úrræðalitlir, en hafa flokksbræður þeirra önnur úrræði en þau, sem reynt er að framkvæma? Ja, það kann að vera, en þau koma ekki mjög fram hér á Alþ. Nei, mannaskiptin í stjórnarráðinu þurfa að verða miklu róttækari en þetta. Þangað þurfa að koma menn með nýja stefnu og ný úrræði. Þessir herrar eru búnir að hafa 10 ár, flest mjög góð, til þess að framkvæma það, sem þeir töldu réttast. Árangurinn blasir við. Nú er tími til kominn að breyta til.
Raunar mátti heyra það á ræðu hæstv. félmrh., að hann hafði hlustað með athygli á orð flokksbróður síns og tekið nokkurt mið af þeim, því að hann byrjaði ræðu sína með talsverðum þrótti og tókst bara nokkuð vel upp í því að skamma stjórnarandstæðinga, enda er hann nú yngstur ráðh. og þar af leiðandi líklega ólúnastur. Síðar fór ráðh. svo að tala um mál, sem undir hann heyra í stjórnarráðinu, og fór þá að vonum mesti hressileikinn úr máli hans. Enn þá vandræðalegri hefði tónn hans þó áreiðanlega orðið, ef hann hefði tekið sér fyrir hendur að skýra hlustendum t. d. frá ástandinu í húsnæðismálum, en þau heyra, sem kunnugt er, undir þennan hæstv. ráðh. Ég skal reyna að hlaupa hér í skarðið.
Hjá Húsnæðismálastofnun ríkisins stóðu málin þannig 23. apríl 1969. Umsækjendur um íbúðalán, sem teknir hafa verið gildir og sótt höfðu um lán á tímabilinu frá 15. marz 1967 til og með 15. marz 1968, höfðu fengið eftirfarandi afgreiðslu: Þeir, sem skiluðu vottorðum um það, að hús þeirra væru fokheld fyrir 1. ágúst 1968, fengu lánsloforð í ágúst–september 1968 fyrir fyrra hluta lánsins, og skyldi það koma til útborgunar upp úr 1. apríl 1969. Þeir, sem skiluðu vottorðum um fokhelt fyrir 1. marz 1969, eru nú búnir að fá lánsloforð fyrir fyrra hluta lánsins, sem koma á til útborgunar í október 1969. Þeir, sem ekki höfðu skilað vottorðum um fokhelt fyrir 1. marz s. l., hafa enga afgreiðslu fengið, ekki einu sinni verið tilkynnt, hvort umsókn þeirra hefur verið tekin gild. Þetta eru alls 364 umsóknir. Auk þess er mikill fjöldi íbúða byggður af einstökum byggingarmeisturum, sem fengið höfðu fyrirheit um það, að kaupendur þeirra skyldu teljast hafa lagt umsókn sína inn fyrir 16. marz 1968. Vegna núverandi sölutregðu er mikið óselt enn af þessum íbúðum, og á því talan 364 eftir að hækka um eitthvað nálægt 180. Allir þeir, sem sótt hafa um lán til nýrra íbúða frá 15. marz 1968 til þessa dags, hafa enga fyrirgreiðslu fengið frá húsnæðismálastjórn og ekki einu sinni fengið tilkynningu, hvort umsókn þeirra væri samþ. sem lánshæf. Fjölda lánshæfra umsókna, sem komið hafa inn á tímabilinu frá 15. marz 1968 til 16. marz 1969, er ekki hægt að tilgreina af tveimur ástæðum. Allmargar umsóknir frá þessu tímabili er enn eftir að yfirfara og ákveða, hvort lánshæfar séu, og auk þess koma þar inn í óseldar íbúðir byggingarmanna, sem njóta sams konar fyrirgreiðslu og tekið var fram um íbúðir frá árganginum 1967 til 1968.
Fjárhagsáætlun byggingasjóðs 1969 er þannig: Væntanlegar tekjur u. þ. b. 364 millj. og gjöldin, þ. e. greiddur yfirdráttur hjá Seðlabankanum frá fyrra ári, 72 millj., óhafin lán frá 1968 u. þ. b. 15 millj., borgað til bæjarframkvæmda frá 1.1. 1969 10.5 og loks hefur verið úthlutað til útborgunar á árinu 1969 262,5 millj., og gerir þetta 360 millj.
Af framanskráðu yfirliti má því sjá, að horfurnar eru óglæsilegar að óbreyttum tekjustofnum byggingasjóðs. Enginn þeirra, sem sótti um lán á tímabilinu 15. marz 1967 til 16. marz 1968, fær nema helming væntanlegs láns fyrir árslok 1969. 364 umsækjendur frá þessu tímabili fá enga afgr. á þessu ári að viðbættum 180 íbúðum, sem keyptar verða af byggingarmönnum. Allir þeir, sem sótt hafa um lán frá,15. marz 1968, eiga.tæpast von á nokkru láni fyrr en 1971 að óbreyttum tekjustofnum byggingasjóðs. Enginn eyrir er til í hina svokölluðu framkvæmdaáætlun. Þetta sýnir, svo að ekki verður um villzt, að lánakerfi byggingasjóðs er gjörsamlega sprungið. Við framsóknarmenn höfum í báðum deildum Alþ. lagt fram frv. um nýjar fjáröflunarleiðir til sjóðsins, sem byggjast á frjálsum sparnaði einstaklinga og félaga gegn vissum fríðindum. Annars vegar leggjum við til, að seld verði vísitölutryggð spariskírteini, og skulu eigendur slíkra skírteina hafa forgang að lánum til bygginga eða kaupa á íbúðum og enn fremur rétt til 25% hærra láns en venjulegt lán byggingasjóðs er, allt eftir nánari reglum. Hins vegar er samkvæmt till. okkar um að ræða ríkistryggð útdráttarskuldabréf, og skulu kaupendur hafa rétt til að draga andvirði þeirra frá skatt- og útsvarsskyldum tekjum það ár, sem þeir kaupa bréfið af byggingasjóði. Einnig þessi bréf skulu vísitölutryggð. Síðar nefnda leiðin hefur verið farin allmörg undanfarin ár með góðum árangri t. d. í Vestur-Þýzkalandi.
Báðar þessar leiðir byggjast á frjálsum sparnaði, sem við teljum langæskilegustu leiðina til fjármögnunar íbúðarlánakerfisins. Auðvitað veit enginn fyrirfram, hversu mikilla fjármuna tækist að afla eftir þessum leiðum, þótt reyndar yrðu. Á það má benda, að spariskírteini þau, sem ríkissjóður hefur selt undanfarin ár, hafa gengið mjög vel út. Þá er enn fremur á að líta, að skattfrádrátturinn kann að örva til kaupanna. Í þjóðfélagi okkar, sem þarf á öllu vinnuafli sínu að halda til uppbyggingar, er nauðsyn, að hver og einn inni af hendi hagnýtt starf og iðki sparsemi, svo sem tök eru á. Við höfum, svo að eitt dæmi sé tekið, ekki efni á því, að dugmiklir aflaskipstjórar fari í land um 2–3 mánaða skeið vegna þess, að kúfurinn af tekjum þeirra kann að fara í opinber gjöld, og fleira þessu líkt mætti nefna. Ég vona að þessar leiðir verði reyndar, því að húsnæðismálin eru svo mikilvæg, að þjóðin hefur ekki efni á að vanrækja þau lengur.
Hæstv. ráðh. Eggert G. Þorsteinsson sagði hér í fyrrakvöld, að við stjórnarandstæðingar hefðum tafið umr. hér á Alþ. um heilbrigðismál. Það er víst líklegt eða hitt þó heldur, að við flytjum mál og reynum svo að koma í veg fyrir, að þau séu rædd. Annaðhvort er hér um að ræða dæmalausa ósvífni hjá ráðh. eða þá það, sem ég vil heldur trúa, að hann bara veit ekki betur en þetta. Það hefur ekki í eitt einasta skipti, þegar þáltill. um stækkun fæðingardeildarinnar hefur verið á dagskrá, staðið á mér að ræða hana. Henni hefur hvað eftir annað verið frestað af allt öðrum ástæðum, eins og ýmsir ráðh. vita og allir ráðh. ættu að vita.
Annars hafa heilbrigðismálin verið í sviðsljósinu undanfarna mánuði, svo er dugnaði og harðfylgi nokkurra kvenna fyrst og fremst fyrir að þakka. Undanfarin ár hefur miklum fjármunum verið varið til sjúkrahúsbygginga. Það vekur athygli, að heildaryfirstjórn þessara mála virðist vera laus í reipunum og einkennast af sama stjórnleysinu og annað hjá hæstv. ríkisstj. Bæði ríkið og Reykjavíkurborg keppast um að koma upp sams konar sjúkradeildum, og margar gerðir af dýrum búnaði erti keyptar til landsins, þar sem færri gætu dugað, en aðrar deildir sitja algjörlega á hakanum. Þannig segir borgarlæknirinn í Reykjavík í skýrslu um þetta frá því í janúarmánuði s. l., að þegar yfirstandandi framkvæmdum ljúki, standist almenn sjúkrahús í Reykjavík fyllilega þær kröfur, sem annars staðar eru gerðar, en skiptingu þeirra í sérdeildir sé hins vegar áfátt. Hér eru ekki til deildir, sem nauðsynlega þarf að koma upp, háls-, nef- og eyrnadeild, augndeild og geislalækningadeild. Þá segir í skýrslunni, að 173 rúm vanti til að fullnægja sjúkrarúmaþörf reykvískra geðsjúklinga einna og geðdeild fyrir börn vanti tilfinnanlega. Um ástandið á kvensjúkdómadeild þarf þá heldur ekki að fjölyrða, það ætti nú orðið að vera öllum landsmönnum kunnugt. Síðasta afrek stjórnarliða í því máli var að fella till. frá Jóni Skaftasyni o. fl. um 20 millj. króna fjárveitingu til framkvæmda við fæðingardeildina.
Hæstv. ráðh. Gylfi Þ. Gíslason talaði mjög um þann vanda, sem framundan er í því að skapa vaxandi fjölda Íslendinga atvinnu á komandi árum, og vissulega er það spurning, sem vert er að hugleiða. En þá kemur það upp í hugann, hvernig íslenzkur vinnukraftur er nýttur í dag. Ég hef ekki tíma til þess að gera þessu skil, eins og vert væri, en þegar stórframkvæmdir þær, sem hér er unnið að, eru athugaðar, kemur þetta í ljós: Búrfellsvirkjun er hönnuð af bandaríska fyrirtækinu Harza, og eftirlit með framkvæmdum er einnig hjá því fyrirtæki, e. t. v. að einhverju leyti í samvinnu við Landsvirkjun. Öll verkstjórn var einnig til skamms tíma í höndum útlendinga, og framkvæmdir fóru þá fyrst að ganga skaplega, þegar íslenzkum verkfræðingum var falin forystan. Straumsvíkurhöfn er hönnuð af danska fyrirtækinu Christiani & Nielsen, enda þótt ísl. verkfræðingar hafi margir hverjir mikla reynslu í hönnun slíkra mannvirkja og ýmsir þeirra hefðu áhuga á að spreyta sig á viðfangsefninu og gerðu tilraunir til að fá að koma til greina, en án árangurs. Hafnarframkvæmdir í Þorlákshöfn voru upphaflega hannaðar af þýzka fyrirtækinu Hochtief, en síðar af dönskum verkfræðingum, og mér er sagt, að erlend aðstoð hafi verið keypt vegna hafnargerða víðs vegar um landið. Til samanburðar má geta þess, að íslenzkir verkfræðingar hönnuðu Sundahöfn að öllu leyti. Kísilgúrverksmiðjan við Mývatn var upphaflega hönnuð af kanadíska fyrirtækinu Kaiser, en sú framkvæmd var með þeim eindæmum sem frægt er orðið. Nú þarf að leggja fram stórfé til þess að reyna að koma verksmiðjunni á réttan kjöl m. a. til að byggja við hana.
Þrátt fyrir fengna reynslu af starfi hinna erlendu sérfræðinga á enn að leita út fyrir landsteinana, að þessu sinni til Bandaríkjanna. Áburðarverksmiðjuna í Gufunesi á að stækka, og ég man ekki betur en að Alþýðublaðið skýrði frá því um daginn, að hönnunin yrði framkvæmd í Bandaríkjunum. Þegar rætt var um skipulag á landspítalalóðinni á Alþ. um daginn, kom fram, að íslenzkir og danskir skipulagsmenn sátu yfir því verkefni vikum saman úti í Kaupmannahöfn. Danska fyrirtækið Kampsax var fengið til þess að framkvæma einhvers konar umferðarkönnun, vegna væntanlegra vegaframkvæmda. Hingað hafa borizt fregnir af því, að í dönsku verkfræðiriti skýri þessir sérfræðingar frá þessu og láti jafnframt getið, að þetta sé fyrsta verk, sem þeir hafi fengið að vinna erlendis án nokkurrar samvinnu við heimamenn. Ég hef ekki á móti því, að leitað sé til erlendra sérfræðinga, slíkt getur verið óhjákvæmilegt, en ég bendi á, að alls staðar annars staðar, meira að segja í hinum vanþróuðustu löndum, þykir sjálfsagt, að innlendir tæknimenn séu hafðir með í eins ríkum mæli og frekast er kostur. Á þann hátt einan standa vonir til þess, að þjóðir geti orðið sjálfum sér nógar í verkfræðilegu tilliti, þegar fram líða stundir.
Benda má á í þessu sambandi, að Alþjóðabankinn hvetur mjög til þess, að innlend tækniþekking sé hagnýtt í þeim tilvikum, sem unnið er fyrir lánsfé þaðan, en reglur bankans hér að lútandi hef ég undir höndum. Við eigum orðið álitlegan hóp tæknimenntaðra manna, sem hvorki hafa sparað fé né fyrirhöfn til að afla sér fullkominnar sérþekkingar í ýmsum greinum. Þessum mönnum mörgum standa dyr opnar erlendis í háar og ábyrgðarmiklar stöður. Þar er þeim treyst. Eigum við ekki að treysta þeim líka? Ég held það.
Þegar rætt var um stækkun Kísilgúrverksmiðjunnar hér fyrir nokkrum dögum, kom það fram, að ákveðið er að láta smíða nýju þurrkarana erlendis. Þá sagði hv. þm. Sveinn Guðmundsson framkvæmdastjóri vélsmiðjunnar Héðins, að hina fyrri þurrkara, sem einnig voru fluttir inn, hefðu íslenzkir málmiðnaðarmenn auðveldlega getað smíðað og eins mundi vera um þessa. Þrátt fyrir þetta og þrátt fyrir mjög erfitt atvinnuástand í þessari iðngrein taldi hæstv. fjmrh. ekki koma til greina að gefa innlendum smiðjum kost á að bjóða í verkið. Ætli það geti ekki verið á fleiri sviðum en þeim, sem ég hef nefnt, að við sækjum það til útlanda, sem við getum gert hér heima. Ég held, að hæstv. menntmrh. ætti að athuga þetta áður en lengra er haldið.
Það var hreinskilnisleg játning hjá hv. þm. Eyjólfi Konráði Jónssyni, að stjórninni hefði mistekizt áform sín að ráða niðurlögum verðbólgunnar og uppræta spillinguna. Þetta er hverju orði sannara hjá þm. Samkvæmt verðlaginu núna í maí 1969 kostar maturinn, sem fjögurra manna fjölskylda notar um árið, samkvæmt vísitöluútreikningum 91 þús. krónur, hitinn og rafmagnið 13 þús. krónur og fatnaðurinn 40 þús. krónur. Þessir 3 liðir eru því samtals 144 þús. krónur. Þá vantar húsaleiguna, heilbrigðisþjónustuna og opinberu gjöldin. Enginn kemst hjá þeim liðum auk ýmislegs annars. Þegar haft er í huga, að lægstu launin eru um 130–140 þús. krónur á ári, sést að dæmið er óleysanlegt. Enn fremur ber að hafa í huga að þessar tölur, sem ég nefndi, eru miðaðar við útgjöld fjögurra manna fjölskyldu, en víða er að sjálfsögðu miklu fleira í heimili en 4 manneskjur.
Það er enn í fullu gildi, sem sagt var. Ef okkur tekst ekki að ráða niðurlögum verðbólgunnar, er allt hitt unnið fyrir gýg. Verðbólgan er undirrót erfiðleikanna: vegna hennar eru kaupdeilur, hún eyðir sparifénu, hún torveldar atvinnureksturinn, hún gerir húsnæðiskostnaðinn óbærilegan og þannig mætti lengi telja. Þeir, sem gefizt hafa upp í baráttunni við þennan bölvald, hafa sýnt, að þeir eru ekki færir um að stjórna landinu. Þeim ber að fara frá. — Góða nótt.