16.05.1969
Sameinað þing: 52. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 1921 í B-deild Alþingistíðinda. (2146)

Almennar stjórnmálaumræður

Þórarinn Þórarinsson:

Herra forseti. Það hefur verið ljóta árferðið í þau 5 ár, sem Bjarni Benediktsson hefur verið forsrh., ef marka má sameiginlegan söng allra stjórnarsinna í þessum umr. Allir hafa þeir haft þá sögu að segja, að næstum allir okkar erfiðleikar stafi af slæmu árferði. Sé þetta rétt, eru hagskýrslur meira en léleg heimild. Samkv. hagskýrslum var heildarfiskaflinn til jafnaðar á þessum 5 árum, árunum 1964–1968, 110% meiri en hann var til jafnaðar á þremur stjórnarárum vinstri stjórnarinnar, 1956–1958. Samt var atvinna þá nóg og afkoma almennings betri en nú. Ég held, að sannleikurinn sé sá, að hagskýrslurnar séu réttar og það sé allt annað en lélegt árferði, sem eigi meginþátt í vandamálum okkar nú.

Fjmrh. flutti hér hjartnæma ræðu um, að atvinnufyrirtækin þyrftu að skila arði. Þetta er hverju orði sannara. En hvað hefur fjmrh. gert til þess að fyrirtækin gætu skilað arði? Hann hefur haft forystu um að leggja á þau marga nýja skatta, sem margir hverjir þekkjast hvergi nema hér. Skattabyrði fyrirtækjanna er nú miklu meiri en hún var, þegar vinstri stjórnin lét af völdum, og miklu meiri en í flestum öðrum löndum. Skattar eru nú ein af helztu orsökum þess, að fyrirtækin geta ekki greitt hliðstætt kaup og annars staðar. Fjmrh., sem þannig heldur á málum, ætti að tala um flest annað en hann sé fylgjandi því, að fyrirtæki geti skilað arði.

Fjmrh. sagði, að fulltrúar Framsfl. í fjvn. hefðu ekki gert neinar till. um þátttöku ríkisins í bílaeign embættismanna og það stæði á þeim, að n. afgreiddi málið. Þetta er alrangt. Fulltrúar flokksins hafa lagt til, að þessi þátttaka ríkisins félli alveg niður. Þeir hafa alltaf verið reiðubúnir til að afgreiða málið og eru m. a. reiðubúnir til að koma á fund strax í kvöld, ef ráðh. óskar eftir að afgreiða málið áður en þingi lýkur.

Benedikt Gröndal flutti hér gamalkunna ræðu um góða flokkinn í ríkisstj. Benedikt þakkaði Alþfl., að bætur almannatrygginga og atvinnuleysisbætur voru hækkaðar í vetur. Benedikt sagði einnig, að Alþfl. hefði komið í veg fyrir, að kaupdeilur nú hefðu verið leystar með lagaboði. Það væri gott að fá það upplýst af næsta ræðumanni, Jóhanni Hafstein, hvort þetta er rétt. Ég spyr Jóhann Hafstein: Var Sjálfstfl. mótfallinn hækkun umræddra bóta, og þurfti Alþfl. að beita hörðu til að knýja hana fram? Og ég spyr Jóhann Hafstein: Hefur það verið krafa Sjálfstfl., að vinnudeilurnar nú væru leystar með lagaboði? Það var algerlega rangt hjá Benedikt Gröndal, að stjórnarandstöðuflokkarnir hefðu neitað að taka þátt í þjóðstjórn á s. 1. hausti. Þetta er rangt vegna þess, að það reyndi aldrei neitt á þetta. Flokksþing Alþfl. hafði hafnað þátttöku í slíkri ríkisstj., áður en til þess kæmi, að Framsfl. eða Alþb. þyrftu nokkru að svara um það.

Það var misskilningur hjá Steinþóri Gestssyni, er hann lagði út af ummælum Jónasar Jónssonar um árferði. Jónas nefndi, að nú væri nálega meðalárferði með aflabrögð, þegar á heildina væri litið.

Það er skylt að minnast þess á eldhúsdegi, að allar ríkisstj. vilja vel. Allar vilja þær vera vinsælar og hljóta frægð af verkum sínum. En þrátt fyrir þennan sameiginlega góða ásetning allra ríkisstj. er það ákaflega misjafnt, hvernig þeim tekst til. Sumum hefur heppnazt að verða frægar af verkum sínum, en öðrum hefur tekizt svo illa, að þær eru eingöngu nefndar til aðvörunar.

Það var sannarlega margt, sem ríkisstj. vildi gera vel, þegar hún kom til valda fyrir 10 árum. Bjarni Benediktsson ætlaði sér að hljóta fagran orðstír í sjálfstæðissögu þjóðarinnar, en eftirminnilegasta verk stjórnarinnar á þeim vettvangi er brezki landhelgissamningurinn, sem hindrar um ófyrirsjáanlegan tíma, að Íslendingar fái full yfirráð yfir öllu landgrunninu til óbætanlegs tjóns fyrir sjávarútveginn og afkomu þjóðarinnar í heild. Annar slíkur minnisvarði er álsamningurinn, en samkv. honum fær svissneski álhringurinn raforkuna fyrir 27% lægra verð en Norðmenn sömdu um á sama tíma.

Ríkisstj. ætlaði sér að draga úr skuldasöfnun þjóðarinnar, því að hún er að dómi hennar orðin hættulega mikil, en útkoman hefur orðið sú, að skuldirnar hafa margfaldazt og fer senn 5. hver kr. af gjaldeyristekjum þjóðarinnar til greiðslu á afborgunum og vöxtum, og er það helmingi meira en sérfræðingar Sameinuðu þjóðanna telja, að megi vera hámark slíkra greiðslna. Ríkisstj. ætlaði sér að tryggja stöðugt gengi krónunnar og auka þannig álit þjóðarinnar út á við og sparnað inn á við, en útkoman hefur orðið sú, að hún hefur fellt gengi krónunnar fjórum sinnum, enda er íslenzka krónan nú einn verðminnsti gjaldmiðillinn í heiminum og álitið á fjármálum þjóðarinnar eftir því. Ríkisstj. ætlaði sér að bæta lífskjörin og fékk til þess einstætt tækifæri, þar sem þjóðin hefur til jafnaðar aldrei búið við meira góðæri en á þessum áratug, en samt sýnir óvefengjanlegur samanburður á verðlagi og kaupgjaldi, að lífskjörin eru nú stórum lakari en fyrir 10 árum, og eru Íslendingar eina þjóðin í Evrópu, sem þannig er ástatt fyrir. Ríkisstj. ætlaði sér að gera stórt átak í húsnæðismálum þjóðarinnar, og átti Breiðholtið að vera sérstakt minnismerki um afrek hennar í þeim efnum. En útkoman hefur orðið sú, að íbúðabyggingar hafa nú að miklu leyti stöðvazt, og Breiðholt er að verða víti til varnaðar um það, hvernig ekki á að fara að í byggingarmálum. Ríkisstj. ætlaði sér að halda ríkisútgjöldum í skefjum, og Magnús Jónsson hélt sig vera orðinn nýjan Jón Þorláksson. Útkoman hefur orðið sú, að ríkisútgjöldin hafa margfaldazt hraðar en nokkuð annað, stórfelldum nýjum sköttum hefur verið bætt við árlega og sukk og óreiða blómstrað betur en nokkru sinni fyrr, eins og svonefnt húsameistaramál er lítið dæmi um. En þó slær Seðlabankinn öll met í þessum efnum, en hann einn hefur nú orðið næstum eins fjölmennt starfslið og stjórnarráðið allt, og er það að verða hin mesta ráðgáta allra tíma, hvað öll þessi mannmergð þar hefur að gera.

Þannig mætti halda slíkri upptalningu lengi áfram. Stjórnin hefur viljað vel, en henni hefur misheppnazt á flestum sviðum. Til þess liggja margar ástæður, en sú þó veigamest, að undir forystu Gylfa Þ. Gíslasonar og ráðunauta hans hefur verið fylgt alrangri stefnu í efnahagsmálunum, stefnu, sem er ekki neitt miðuð við íslenzkar aðstæður, heldur er sótt í erlendar kennslubækur, sem fjalla um allt aðrar aðstæður en þær, sem eru hér. Þessi stefna einkennist annars vegar af algeru stjórnleysi í fjárfestingar- og gjaldeyrismálum, en hins vegar af ströngum lánsfjárhöftum, sem þó er beitt stefnulaust og bitna því einna helzt á atvinnuvegunum. Vegna þessarar óheillastefnu stendur þjóðin að mörgu leyti verr að vígi í lok sjöunda áratugs aldarinnar en hún gerði í upphafi hans, enda þótt þessi áratugur hafi verið mesti góðæristíminn í sögu þjóðarinnar.

Og nú blasir áttundi áratugur aldarinnar fram undan. Mér segir svo hugur, að hann verði einn erfiðasti og örlagaríkasti áratugurinn í sögu þjóðarinnar. Við Íslendingar höfum óneitanlega verið að dragast aftur úr öðrum þjóðum á áratugnum, sem er að ljúka, og vitna lífskjörin hér og annars staðar bezt um það. Allt bendir til, að áttundi áratugurinn muni einkennast af stórfelldri framfarasókn í heiminum, er byggist á sívaxandi þekkingu og tækni. Það verður íslenzku þjóðinni gífurleg þolraun að fylgjast með í þessari sókn, þar sem hún þarf jafnframt að vinna það upp, sem hefur mistekizt á sjöunda áratugnum. Takist okkur þetta ekki, bíða okkar lakari lífskjör og hrun hins efnalega sjálfstæðis. Þjóðin má ekki láta blekkjast af neinni barnalegri bjartsýni, eins og þeirri, sem kom fram í ræðu Eyjólfs Konráðs í fyrrakvöld, en hún má heldur ekki fyllast svartsýni og missa kjarkinn eins og þeir, sem nú eru að flýja landið. Hún verður að horfast í augu við raunveruleikann og ganga til verks einbeitt í þeim ásetningi að sigra erfiðleikana og halda stöðu sinni í samfélagi þjóðanna. En til þess að svo geti orðið, þarf nýja forystu, nýja stefnu og ný vinnubrögð. Eða trúir nokkur því í alvöru, að forysta þeirra Bjarna Benediktssonar og Gylfa Þ. Gíslasonar, sem ekki hefur reynzt betur á sjöunda áratugnum en raun ber vitni, muni henta við lausn þeirra stóru verkefna, sem bíða okkar á áttunda áratugnum? Trúir nokkur, að þessir forystumenn muni reynast betur, þegar þeir eru orðnir staðnaðir og þreyttir? Trúir nokkur, að við getum leyst með sóma vandamál áttunda áratugsins, ef við sýnum ekki í verki meiri ráðdeild og stjórnsemi í fjárfestingar- og gjaldeyrismálum og fjárstjórnarmálum ríkisins en gert hefur verið á þessum áratug. Trúir nokkur, að við leysum vandamál áttunda áratugsins með nýjum og nýjum gengisfellingum? Trúa menn, að við þurfum ekki nýja forystu og ný vinnubrögð til að leysa hin stóru viðfangsefni, sem okkar bíða á áttunda áratugnum?

Andstæðingarnir hafa varpað ýmsum hnútum að okkur framsóknarmönnum í þessum umr. Það hafa þó sumir þeirra játað, að Framsfl. hafi á þessu þingi markað sér skýrari stefnu í ýmsum málum en áður. Þá sanngirni, sem felst í þessari viðurkenningu, ber að þakka. Undir forystu hins nýja formanns okkar, Ólafs Jóhannessonar, höfum við reynt í þingflokknum og ýmsum nefndum flokksins að horfa fram á leið og leitazt við að marka okkur stefnu, er sé miðuð við þau verkefni, er bíða okkar á áttunda áratug aldarinnar. Í till. okkar leggjum við megináherzlu á ráðdeild og stjórnsemi. Þetta er undirstaða þess, að þjóð með lítil efni fái valdið verkefni sínu. Þetta eru hinar sígildu dyggðir, sem aldrei mega gleymast, en hafa gleymzt allt of oft í góðæri sjöunda áratugsins. En þær gagna okkur samt ekki til fulls, nema við lærum betur að sameina kraftana við hin ýmsu verkefni, samvinna og samhyggja verði ríkari hjá þjóðinni. Sundruð og margklofin smáþjóð getur aldrei mátt sín mikils. Þess vegna vörum við framsóknarmenn við fáu meira en aukinni sundrungu. Það, sem við þurfum, er ekki að sundrast í smærri hópa, heldur að sameina okkur í stærri og sterkari heildir, en séum þó vel í talfæri hverjir við aðra.

Framsfl. er nú langsterkasta stjórnmálaafl frjálslyndra og framfarasinnaðra manna á Íslandi. Þetta afl þarf að styrkja til meiri áhrifa og leiðsagnar um mál þjóðarinnar. Það er áhrifamesta leiðin til að knýja það fram, að þjóðin fái nýja forystu og stjórnarstefnan mótist af nýjum og ferskum sjónarmiðum, sem beinist fyrst og fremst að lausn þeirra verkefna og vandamála, er bíða okkar á áttunda áratug aldarinnar. — Ég þakka þeim, er hlýddu.