21.02.1969
Sameinað þing: 20. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 1956 í B-deild Alþingistíðinda. (2152)
Efnahagsmál
Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):
Herra forseti. Stjórnarandstaðan hefur óskað eftir því, að fram færu hér á Alþ. almennar umr. um stefnu ríkisstj. í efnahagsmálum. Hér er um að ræða kærkomið tilefni til þess að bera saman þá stefnu, sem ríkisstj. fylgir á sviði efnahagsmála, og þá stefnu, sem stjórnarandstöðuflokkarnir mundu væntanlega fylgja, ef þeir færu með stjórn landsins.
Það er því ástæða til þess að þakka stjórnarandstöðunni fyrir að hafa óskað eftir þessum umr. Ég vona, að þingheimi og þjóðinni allri verði það ljósara eftir en áður, hvað stjórnarflokkum og stjórnarandstöðu ber á milli í raun og veru.
Það er grundvallaratriði í stefnu ríkisstj. í efnahagsmálum, að gengi ísl. krónu sé rétt skráð, að rangri gengisskráningu sé ekki haldið uppi til lengdar. Þau stórkostlegu áföll, sem Íslendingar hafa orðið fyrir í utanríkisviðskiptum sínum á undanförnum tveimur árum gerðu það gengi, sem skráð hafði verið síðan 1961, óraunhæft og rangt. Gengi erlends gjaldeyris á að vera sem næst því, að það tryggi útflutningsframleiðslu hallalausan rekstur, miðað við framleiðslukostnað innanlands. Þetta átti við um gengisskráninguna á árunum 1961–1966. Á þessum árum hækkaði framleiðslukostnaðurinn innanlands að vísu geysilega, en verðlag erlendis hækkaði einnig og afli jókst mjög. Þegar verðlag erlendis tók aftur á móti að hríðlækka eftir mitt ár 1966, en kaupgjaldið og framleiðslukostnaðurinn innanlands hélzt óbreyttur, jafnframt því sem afli stórminnkaði, varð gengið rangt. Samt var í hálft annað ár frestað að gera breytingar á genginu í von um, að ytri aðstæður bötnuðu fljótlega aftur. Taldi ríkisstj. sérstaklega mikilvægt, að ekki yrði þegar í stað gripið til róttækra og að því er virzt gæti harkalegra aðgerða, sem síðar hefði ef til vill verið hægt að segja um, að hefðu verið óþarfar.
Þegar Bretar lækkuðu gengi sitt haustið 1967, var þess vegna eðlilegt, að íslenzka krónan fylgdi ekki aðeins pundinu, heldur væri lækkuð enn meir. En vegna þess að verðfall erlendis hélt áfram, samhliða því sem framleiðslukostnaður innanlands hækkaði, auk þess sem afli minnkaði enn, reyndist ný gengislækkun óhjákvæmileg á s. l. hausti. Nú standa vonir til þess, að verðlag erlendis muni ekki lækka meir, og vonandi versna aflabrögð ekki enn. Þess vegna ætti að vera hægt að halda þessu gengi, ef framleiðslukostnaði innanlands væri haldið í skefjum. En án þeirra breytinga á genginu, sem gerðar hafa verið á undanförnum tveimur árum, hefði ekki aðeins útflutningur sjávarafurða stöðvazt, heldur einnig gífurlegir erfiðleikar orðið á vegi íslenzks iðnaðar og útflutningur af hans hálfu algjörlega óframkvæmanlegur. Ef genginu hefði ekki verið breytt, hefði þurft að taka upp stórfellt kerfi útflutningsuppbóta eða lækka allt kaupgjald í landinu gífurlega með lagaboði. Slíkt vildu stjórnarflokkarnir ekki. Þess vegna breyttu þeir genginu til samræmis við þarfir sjávarútvegs og iðnaðar. Þetta hefur verið og er stefna ríkisstj. í þessu grundvallaratriði.
Stjórnarandstaðan hefur verið á móti gengisbreytingunum. Hvert mannsbarn hlýtur að sjá, að eina leiðin til þess að komast hjá gengisbreytingunum hefði verið að taka upp útflutningsbætur eða lækka kaupgjald með lagaboði. Fyrst stjórnarandstöðuflokkarnir voru á móti gengisbreytingunum, hljóta þeir að hafa viljað annaðhvort útflutningsbótakerfi eða lögboðna kauplækkun. Sú er því stefna þeirra. Útflutningsbótakerfi hefur verið reynt hér á landi árum saman. Það hefur reynzt hafa ótal galla. Það hefur reynzt mismuna framleiðslugreinum með algjörlega óeðlilegum hætti. Það beinir framleiðsluöflunum inn á rangar og óhagkvæmar brautir. Það hvílir eins og mara á þeim atvinnugreinum, sem arðbærastar eru, en eflir hinar, sem minnst gefa í aðra hönd. Til lengdar kemur það beinlínis í veg fyrir, að nýjar útflutningsgreinar komist á laggirnar. Nú lá það fyrir, að ísl. iðnaður hefði með réttu alls ekki sætt sig við það, að útflutningsbótakerfi yrði eingöngu bundið við sjávarútveginn. Iðnaðurinn hefði algjörlega með réttu krafizt sams konar bóta sér til handa og sjávarútvegurinn hefði fengið. Með því móti hefði útflutningsbótakerfið nú hlotið að verða stórkostlegra og umfangsmeira en nokkru sinni fyrr. En um leið hefðu gallarnir reynzt þeim mun meiri. Hættan á mismunun, sukki og jafnvel spillingu hefði orðið meiri en nokkru sinni fyrr, og voru þessir ágallar þó ærið nógir á sínum tíma.
Ég held ekki, að hugsandi menn þurfi að vera í miklum vafa um, hvor stefnan sé réttari: Sú stefna stjórnarflokkanna að skrá rétt gengi, þegar reynslan sýnir, að fyrra gengið er orðið óraunhæft og rangt, eða sú stefna stjórnarandstöðuflokkanna að skrá rangt gengi, en halda útflutningsatvinnuvegunum gangandi með stórfelldum útflutningsbótum eða lækka allt kaupgjald l landinu með lögum til þess að réttlæta hina röngu gengisskráningu.
Þá er það stefna stjórnarflokkanna að halda í aðalatriðum því innflutningsfrelsi, sem hér var komið á á árunum 1960–61 og hefur tryggt almenningi meira vöruúrval og betri neyzluvöru en það hafði áður átt kost á um áratugi. Einmitt rétt gengisskráning gerir kleift að varðveita innflutningsfrelsið og valfrelsi neytandans. Þess vegna eru náin tengsl milli þessara tveggja meginstefnuatriða ríkisstj., milli réttrar gengisskráningar og innflutningsfrelsis og valfrelsis neytandans. Þessi stefna ríkisstj. hefur verið harðlega gagnrýnd af stjórnarandstöðunni. Hvað þýðir það? Það getur ekki þýtt annað en að stjórnarandstaðan mundi, ef hún réði, ekki halda uppi innflutningsfrelsi, heldur taka upp höft á gjaldeyris- og innflutningsviðskiptum.
Stjórnarandstaðan afneitar að vísu höftum í orði, en segir, að hún vilji hafa stjórn á innflutningi og gjaldeyrisviðskiptum. Hér er aðeins um nýtt orð að ræða. Ef menn gagnrýna innflutningsfrelsið, ef menn vilja afnema það, getur ekkert komið í staðinn, nema höft, hvað svo sem menn kalla þau. Segja má og, að hér sé a. m. k. um samræmi í stefnu stjórnarandstöðunnar að ræða. Ef hún vill ekki rétt gengi, gæti hún ekki haldið uppi innflutningsfrelsi og frjálsu vöruvali neytandans. Ef hún vill útflutningsbótakerfi, er eðlilegt, að hún vilji innflutningshaftakerfi, því að þetta tvennt fer saman. Það fór líka saman á sínum tíma, þegar núverandi stjórnarandstöðuflokkar, sumpart báðir eða Framsfl. einn, stóðu ásamt öðrum flokkum að rangri gengisskráningu ásamt útflutningsbótakerfi, innflutningsgjöldum og innflutningshöftum. Kjarni þess, sem ber á milli stjórnar og stjórnarandstöðu, er einmitt fólginn í þessu. Við viljum rétt gengi, sem frjálsust utanríkisviðskipti og sem frjálsast neyzluval neytandans. Stjórnarandstaðan vill rangt gengi, útflutningsbætur, innflutningsgjöld og innflutningshöft samfara takmörkuðu frelsi neytandans til þess að ráðstafa tekjum sínum.
Við í stjórnarfl. teljum, að nauðsynlegt sé, að vextir séu svo háir, að þeir séu hvatning til sparifjármyndunar. Hér er mikil þörf á fjármagni til nýrra framkvæmda. Innanlands fæst fjármagn aðeins með auknum sparnaði, en háir vextir hvetja til aukins sparnaðar. Þess vegna teljum við tiltölulega háa vexti æskilega til þess að örva sparnað. En þó mega þeir ekki vera hærri en svo, að framleiðslu og viðskiptum sé ekki íþyngt óeðlilega. Það er beinlínis æskilegra fyrir framleiðsluna að greiða slíka vexti en að þurfa að vera án fjármagnsins. Stjórnarandstaðan telur vextina nú vera allt of háa. Hún segist vilja lækka þá verulega. Með hliðsjón af því, að sparifjármyndun er hér mun minni en hún þyrfti að vera, og ekki síður af hinu, að sparifjáreigendur hafa á undanförnum áratugum verið hart leiknir vegna síhækkandi verðlags, þá teljum við í stjórnarflokkunum lækkun vaxta nú óheppilega og mjög rangláta í garð sparifjáreigenda. Við teljum, að vextirnir séu hér síður en svo hærri en svo, að talið verði, að þeir íþyngi framleiðslu og viðskiptum með óeðlilegum hætti, enda eru vextir hér sízt hærri en þeir eru í ýmsum nálægum löndum, og munur innlánsvaxta og útlánsvaxta er hér mun minni en nokkurs staðar annars staðar. Stjórnarandstaðan ýkir og stórkostlega þýðingu vaxtanna fyrir atvinnureksturinn. Allir vextir og bankakostnaður alls hraðfrystiiðnaðarins nam á s. l. ári 82 millj. kr. Þótt vextirnir yrðu lækkaðir um helming, og varla dettur nokkrum manni í hug að lækka þá svo mikið, mundi hraðfrystiiðnaðurinn í heild spara 41 millj. kr. á ári. Framleiðslukostnaður hans var í fyrra um 2200 millj. kr. Er ekki augljóst, að þetta hefði enga úrslitaþýðingu fyrir hraðfrystiiðnaðinn? En hvað segðu sparifjáreigendur, ef vextir yrðu lækkaðir um helming? Hvaða þýðingu halda menn, að það hefði fyrir sparnaðinn? Ég tel því ekki nokkurn vafa á, hvor stefnan í vaxtamálum sé skynsamlegri, stefna stjórnarflokkanna eða stefna stjórnarandstöðunnar. Stefna stjórnarflokkanna hvetur til aukins sparnaðar og hefur þannig í för með sér, að meira fjármagn en ella verður til ráðstöfunar fyrir atvinnuvegina án þess, að vextir séu hér hærri en þeir gerast í nálægum löndum. Vaxtalækkunarstefna stjórnarandstöðuflokkanna mundi hafa hörmuleg áhrif á sparifjáraukninguna og valda alvarlegu misrétti í garð sparifjáreigenda, auk þess sem afleiðingin yrði sú, að atvinnuvegirnir fengju minna fjármagn til ráðstöfunar en ella. Það er stefna ríkisstj. í bankamálum, að útlánaaukningu bankakerfisins verði, þegar til lengdar lætur, að halda innan þeirra takmarka, sem innlánaaukning setur.
Á tímum mikillar framleiðsluaukningar og hagstæðra utanríkisviðskipta, þegar eðlilegt er, að þjóðin safni gjaldeyrissjóði erlendis, verður þó að tryggja, að nokkur hluti sparifjáraukningarinnar gangi til þess að byggja upp gjaldeyrisvarasjóðinn. Einnig getur verið nauðsynlegt, að Seðlabankinn hafi milligöngu um að tryggja ýmsum atvinnugreinum, t. d. hér á landi sjávarútvegi og landbúnaði, vissa hlutdeild í sparifjáraukningunni með því að skylda viðskiptabankana til þess að afhenda sér nokkurn hluta sparifjáraukningar sinnar. Á tímum samdráttar og halla í utanríkisviðskiptum getur á hinn bóginn verið eðlilegt og nauðsynlegt, að Seðlabankinn setji meira fé í umferð en sparifjáraukningu nemur, eins og gert hefur verið hér undanfarin tvö ár. Fáir þættir stjórnarstefnunnar hafa verið jafnharðlega gagnrýndir af hálfu stjórnarandstöðunnar og einmitt stefna hennar í bankamálum. Henni hafa verið gefin nöfnin lánsfjárhöft, frysting sparifjár o. s. frv. Stjórnarandstöðuflokkarnir hljóta því að hafa viljað fara allt öðruvísi að. Þeir hafa ávallt heimtað meiri útlán. Þeir hafa verið á móti þeim reglum, sem settar hafa verið um, að viðskiptabankarnir skyldu leggja hluta af sparifjáraukningu sinni inn í Seðlabankann til þess að gera honum annars vegar kleift að eignast gjaldeyrisvarasjóð á sínum tíma og hins vegar að kaupa afurðavíxla sjávarútvegs og landbúnaðar. Ef þeirri stefnu, sem fylgt var, hefði ekki verið fylgt, hefðu Íslendingar engan gjaldeyrisvarasjóð eignazt á árunum 1961–1966. Og Seðlabankinn hefði ekki getað annazt þau kaup afurðavíxla, sjávarútvegs og landbúnaðar, sem hann annaðist. Hefði stjórnarandstaðan ráðið, hefðu Íslendingar m. ö. o. engan gjaldeyrisvarasjóð eignazt. Hvar hefðu þeir þá staðið, þegar erfiðleikarnir dundu yfir undanfarin tvö ár, þegar gjaldeyrisvarasjóðurinn gerði þjóðinni einmitt kleift að dreifa áfallinu og gera það mun minna tilfinnanlegt en það hefði ella orðið? Og hvaðan hefði landbúnaður og sjávarútvegur átt að fá þá peninga, sem þessir atvinnuvegir fengu úr Seðlabankanum vegna reglnanna um sparifjárbindinguna? Stefna stjórnarflokkanna í útlánamálum bankanna miðar að því að byggja upp gjaldeyrisvarasjóð í góðæri, tryggja vissum atvinnuvegum nauðsynlega hlutdeild í heildarsparifjármynduninni og auðvelda gagnráðstafanir gegn áföllum af völdum aflabrests og verðfalls. Stefna stjórnarandstöðuflokkanna í bankamálum miðar að því að eyða auknum gjaldeyristekjum jafnóðum, mæta gjaldeyriserfiðleikum síðan með höftum og hafa ekkert upp á að hlaupa, ef á bjátar.
Þá er það stefna ríkisstj. í atvinnumálum að búa atvinnuvegunum þess konar starfsgrundvöll og hafa með heildarstjórn á banka- og fjármálum ríkisins þess konar áhrif á fjárfestingu og neyzlu, að full atvinna haldist í landinu. Auðvitað geta af utanaðkomandi ástæðum orðið svo snöggar breytingar á framleiðsluskilyrðum og viðskiptaháttum, að atvinna minnki um sinn og atvinnuleysi haldi innreið sína, eins og nú hefur því miður átt sér stað á undanförnum mánuðum. Undir slíkum kringumstæðum er það frumskilyrði, að gengisskráningu sé hagað þannig, að öll útflutningsskilyrði séu hagnýtt. Auk þess er það undir slíkum kringumstæðum höfuðskylda ríkisvaldsins að nota vald sitt yfir bankakerfinu, skilyrði sín til stjórnar á fjármálum ríkisins og lánstraust sitt erlendis til að veita því fé inn í atvinnulífið, sem verða má til þess að stuðla þar að eflingu heilbrigðs rekstrar og til þess, að atvinnulífið komist aftur í samt horf og allir fái verk að vinna. Þetta er ríkisstj. einmitt að gera núna. Og áframhald rangrar gengisskráningar hefði ekki miðað að því að eyða atvinnuleysinu, heldur að auka það. Innflutnings- og gjaldeyrishöft geta að vísu í bili dregið úr atvinnuleysi, en aðeins á kostnað lífskjaranna, og eru því innflutningshöft ekki rétta aðferðin til að ráða bót á vandanum. Vaxtalækkun er ekki ráð við atvinnuleysi, því að hún dregur úr sparifjármyndun, en aukið sparifé er einmitt nauðsynlegt til þess að vinna gegn atvinnuleysinu. Aukin útlán eru heldur ekki ráð gegn atvinnuleysi, því að þau hækka verðlag og framleiðslukostnað og auka því á atvinnuleysi. Stefna stjórnarandstöðunnar mundi því ekki draga úr því atvinnuleysi, sem nú er við að glíma, heldur auka það.
Stjórnarandstaðan segir, að atvinnuleysi nú sé að kenna stjórnarstefnunni. Þetta er algjört öfugmæli. Atvinnuleysi hefur haldið hér innreið sína þrátt fyrir stjórnarstefnuna. Ef stjórnarstefnan er ástæða atvinnuleysisins nú, var þá ekki góðæri og hin mikla atvinna milli '62–'66 eingöngu stjórnarstefnunni að þakka? Auðvitað er hvorugt rétt. Atvinnuleysi nú er afleiðing mjög snöggra og mjög mikilla breytinga á viðskiptaaðstöðu Íslands og versnandi samkeppnisaðstöðu íslenzks sjávarútvegs á erlendum mörkuðum. Auk þess varð atvinnuleysið sérstaklega og óvenjulega umfangsmikið vegna sjómannaverkfallsins. Nú er því lokið, og þess vegna er atvinna mjög að aukast þessa dagana. En eflaust dugar lausn verkfallsins og eðlileg vertíð ekki til þess að leysa allan atvinnuleysisvandann. Þess vegna mun ríkisstj. gera það, sem í hennar valdi stendur, til þess að efla heilbrigðan atvinnurekstur í landinu og efna til framkvæmda, sem skapa nýja atvinnu.
Þá ber að síðustu að nefna stefnuna í kaupgjaldsmálum. Stefna ríkisstj. í þeim efnum er sú, að raunverulegt kaupgjald fylgi breytingum á raunverulegum þjóðartekjum. Launþegar eiga að fá fulla hlutdeild í vaxandi þjóðartekjum hverju sinni, en hljóta hins vegar að verða að sætta sig við rýrnandi kjör, þegar þjóðartekjur minnka. Afstaða stjórnarandstöðuflokkanna hefur hins vegar verið sú, að þeir hafa yfirleitt alltaf stutt allar kaupkröfur, hvort sem þjóðartekjur hafa verið að vaxa eða minnka, og jafnvel þótt kaupkröfurnar hafi augljóslega verið meiri en svarar til hækkunar þjóðartekna, þannig að kaupgjaldshækkunin gat ekki leitt til annars en hækkandi verðlags og þar með lækkandi kaups. Reynslan ætti að vera búin að kenna Íslendingum, hvor stefnan sé farsælli, þegar til lengdar lætur.
Ég hef nú nefnt helztu atriðin, sem til greina koma við mótun stefnu í efnahagsmálum. Ég hef rakið, hver er stefna stjórnarfl., og ég hef nefnt, hver hlýtur að vera raunveruleg stefna stjórnarandstöðunnar, ef dæmt er út frá gagnrýni hennar á ríkisstj. og andstöðu við aðgerðir hennar. Stefna stjórnarfl. er rétt gengi, innflutningsfrelsi, mikið vöruúrval, frjálst neyzluval neytenda, nægilega háir vextir til að hvetja til sparnaðar, gjaldeyrisvarasjóður, efling atvinnu, m. a. með samræmdri heildarstjórn á bankamálum og ríkisfjármálum, ásamt þeirri stefnu í kaupgjaldsmálum, er tryggi launþegum jafna og réttláta hlutdeild í þjóðartekjum. Stefna stjórnarandstöðuflokkanna er hins vegar röng gengisskráning, útflutningsbótakerfi, innflutningsgjöld og innflutnings- og gjaldeyrishöft, lágir vextir, hömlulaus útlán banka og ábyrgðarlaus yfirboðsstefna í kaupgjaldsmálum. Í raun og veru ætti ekki að vera mikill vandi fyrir hugsandi menn að velja um þessar stefnur í efnahagsmálum.
Af hálfu Framsfl. er því oft hampað, að Alþfl. sé ekki lengur jafnaðarmannaflokkur, í rauninni standi Framsfl. og stefna hans nær jafnaðarstefnunni, og hann fylgi hér stefnu, sem sé líkari stefnu jafnaðarmanna í Vestur-Evrópu en stefna Alþfl. Meiri öfugmælum hefur varla verið haldið fram í opinberum umræðum á Íslandi. Við skulum t. d. líta á stefnu sænsku jafnaðarmannastjórnarinnar. Skráir hún óraunhæft gengi og styður það síðan með útflutningsbóta- og innflutningsgjaldakerfi? Nei. Eru innflutnings- og gjaldeyrishöft í Svíþjóð? Nei. Þar er meira að segja ekki aðeins algerlega frjáls innflutningur á dönskum tertubotnum, heldur eru þeir þar tollfrjálsir, að því er ég bezt veit, en hér er þó á þeim 90% tollur. Hafa Svíar óeðlilega lága vexti í því skyni að styrkja atvinnuvegina á þann hátt? Nei. Hefur sænski Seðlabankinn ekki sett reglur, almennar reglur, til þess að geta haft vald á heildarútlánum sænsku viðskiptabankanna? Jú. Hefur sænska stjórnin ekki talið gjaldeyrisvarasjóðinn nauðsynlegan í utanríkisviðskiptunum? Jú. Er allsherjar fjárfestingareftirlit í Svíþjóð? Nei. Hafa sænskir jafnaðarmenn stuðlað að því, að í Svíþjóð yrðu almennar kauphækkanir langt umfram vöxt þjóðartekna? Nei. Í engu atriði, sem máli skiptir, minnir stefna Framsfl. í efnahagsmálum á stefnu sænsku jafnaðarmannastjórnarinnar. Hún er í grundvallaratriðum hin sama og hér hefur verið fylgt undanfarin ár og er fylgt enn. Svíar eru hins vegar ríkari þjóð en við Íslendingar og búa við miklu meiri stöðugleika í atvinnulífi sínu og viðskiptum en við. Þess vegna hefur þróun öll þar í efnahagsmálum verið miklu stöðugri og jafnari en hér. Vöxtur þjóðartekna hefur verið þar meiri, þegar yfir lengri tíma er litið, og lífskjör eru þar betri. Launahækkanir í krónum talið hafa orðið miklu meiri hér, en hækkun verðlags hins vegar líka miklu meiri. Vilji framsóknarmenn ekki láta brosa meira að sér en óhjákvæmilegt er, ættu þeir að hætta að jafna sér og stefnu sinni við erlenda jafnaðarmenn.
Sannleikurinn er sá, að nú á árinu 1969 verður stefna sú, sem stjórnarandstöðufl. fylgja, ekki kölluð annað en úrelt afturhaldsstefna. Stefna þeirra byggir á úrræðum, sem reynd voru víða um heim fyrir 30–40 árum sem úrræði gegn vandamálum, sem voru allt annars eðlis en þau, sem nú er við að etja í vestrænum löndum. Þessi úrræði hafa aðeins orðið árangursrík sem neyðarráðstafanir til bráðabirgða. En þær hafa hvergi gefizt vel til lengdar. Menn hafa hvarvetna lært mikið síðan, bæði af reynslunni og í þekkingarleitinni. Í þróuðum iðnaðarríkjum gera menn sér nú yfirleitt grein fyrir gildi réttrar gengisskráningar. Menn hafa ekki lengur neina trú á innflutnings- og gjaldeyrishöftum né fjárfestingareftirliti og telja þessar ráðstafanir raunar skaðlegar, þegar til lengdar lætur. Menn hafa öðlazt skilning á þýðingu vaxta til sparifjármyndunar og sem leiðarvísi fyrir arðbæra fjárfestingu. Menn hafa gert sér ljósa þýðingu jafnvægis í utanríkisviðskiptum og gildi gjaldeyrisvarasjóðs. Menn hafa áttað sig á þeim möguleikum, sem heildarstjórn bankamála og ríkisfjármála felur í sér til tryggingar fullri atvinnu. Og menn hafa gert sér ljóst sambandið milli kaupgjalds og verðlags. Stefna stjórnarflokkanna, eins og raunar flestra ríkisstj. í nálægum menningarríkjum, byggir á skilningi á þessum atriðum. Stefna stjórnarandstöðuflokkanna markast hins vegar af skilningsleysi á þeim. Þess vegna er hún úrelt. Þess vegna mundi framkvæmd hennar þýða afturhvarf til fyrri tíma. Þess vegna er hún hin eina sanna afturhaldsstefna, sem boðuð er í þjóðmálaumr. á Íslandi um þessar mundir, þó að það séu undarleg örlög, að flokkur, sem kennir sig við framsókn, skuli undanfarin ár hafa reynzt mesti afturhaldsflokkur landsins.
Afstaða Alþb. í þessum efnum er einnig með furðumiklum afturhaldsblæ. Í Austur-Evrópuríkjunum hafa á undanförnum árum orðið mikil átök um stefnuna í efnahagsmálum. Stefna Stalíns og rússneska kommúnistaflokksins var sú, að um skyldi vera að ræða sem altækastan áætlaðan búskap, sem stjórnað væri frá einni miðstöð, og skyldi verðlagi öllu og kaupgjaldi stjórnað af ríkinu. Fyrirtækin skyldu hlýða nákvæmum fyrirframgerðum áætlunum, en hvorki keppa hvort við annað né heldur leitast við að öðlast ágóða. Á síðari árum hefur í Austur-Evrópulöndum komið fram mikil gagnrýni á þessa stefnu. Ýmsir aðilar, bæði hagfræðingar, fyrirtækjaforstjórar og stjórnmálamenn, hafa stungið upp á breytingum í þá átt, að stórlega verði dregið úr heildarstjórn þjóðarbúskaparins af hálfu ríkisvaldsins, fyrirtækjum sé fengið aukið sjálfstæði til þess að ráða, hvað og hvernig þau framleiða, þau skuli fá aukið sjálfræði til þess að ráða verðlagi á vörum sínum, keppa hvert við annað og fá að halda a. m. k. hluta þess ágóða, sem þau öðlast, og láta starfsmenn fyrirtækisins njóta þess í hækkuðum launum, ef um ágóða er að ræða. Þessar nýju hugmyndir eru almennt kallaðar frjálslyndar hugmyndir og hið gamla skipulag Stalíns og rússneska kommúnistaflokksins afturhaldskerfi.
Í Sovétríkjunum hefur þó undir forystu hagfræðinga og viðskiptaforkólfa, sem telja sig og eru taldir frjálslyndir í efnahagsmálum, verið efnt til tilrauna með þessar nýju kenningar, og hafa þær orðið æ víðtækari, þrátt fyrir þá einræðis- og afturhaldsstefnu í stjórnmálum og menningarmálum, sem fylgt er í Sovétríkjunum, en sæta þó mikilli andstöðu af hálfu afturhaldsafla. Tékkar, Tékkóslóvakar, höfðu ákveðið að taka upp þessa nýju stefnu í öllu atvinnu- og viðskiptalífi sínu undir forystu hins kunna varaforsætisráðherra síns, próf. Otasic, jafnhliða því sem þeir juku á lýðræði í landi sínu. Ráðstjórninni í Moskvu reyndist jafnilla við hvort tveggja, öra og gagngerða breytingu í atvinnu- og viðskiptalífi Tékkóslóvaka í samræmi við hina nýju og frjálslyndu stefnu í efnahagsmálum og hið aukna frjálsræði og lýðræði í stjórnmálum. Allur heimurinn veit, að þetta var höfuðástæða þess, að Sovétríkin og önnur Varsjárbandalagsríki tóku Tékkóslóvakíu herskildi og knúðu valdamenn Tékkóslóvakíu til þess að breyta um stefnu, bæði í efnahagsmálum og í innanríkisstjórnmálum.
Ýmsir forystumenn íslenzka Alþb. hafa látið í ljós samúð með frelsisbaráttu Tékkóslóvakíumanna, en stefna sú, sem forystumenn íslenzka Alþb. boða hér í efnahagsmálum, er hins vegar angi af hinni gömlu stefnu Stalínskommúnismans. Nú væri fróðlegt að fá um það algerlega skýr og ótvíræð svör, hvort leiðtogar Alþb. hér telja stefnu þá í efnahagsmálum, sem alls ráðandi var á dögum Stalíns, vera réttari en stefnu þá, sem Tékkar ætluðu og vildu taka upp í efnahagsmálum sínum. Það væri fróðlegt að fá að vita, hvort þeir telja algeran áætlunarbúskap, sem viss öfl í Sovétríkjunum fylgja, rétta stefnu eða aukna samkeppni og aukið frelsi til framleiðslu og viðskipta, þ. e. a. s. þá frjálslyndu stefnu, sem önnur öfl þar fylgja. Öllum mönnum, sem fylgjast með í þessum málum, er ljóst, í hverju stefnumunurinn er fólginn. Enginn, sem um þessi mál hugsar, getur komizt hjá því að taka afstöðu til þess, hvort hann telur efnahagsstefnu Stalíns vera skynsamlegri en stefnu þá, sem Tékkar ætluðu að taka upp, en Sovétríkin hafa bannað þeim að stíga stór spor í átt að. Leiðtogar Alþb. hljóta að hafa gert þetta upp við sig. Það er ástæðulaust, að það sé einkamál þeirra. Við þm. og þjóðin öll eigum rétt á að fá að vita skoðanir þeirra á þessu máli. Ef þeir færast undan að skýra frá þeim, hafa þeir einhverju að leyna. Þá er um eitthvað að ræða, sem þeir skammast sín fyrir eða halda, að íslenzkum almenningi muni ekki geðjast að. Við eigum öll heimtingu á að fá að vita, hver er afstaða Alþb. til alþjóðlegs stórmáls í efnahagsmálum eins og þeirra átaka um stefnuna í efnahagsmálum, sem uppi er í Austur-Evrópu.
Það verður tekið eftir svari Alþb.- leiðtoganna við þessari spurningu. Það verður líka tekið eftir því, ef þeir svara henni ekki skýrt og skilmerkilega. Þeir tala og skrifa hér í samræmi við kenningar Stalínskommúnismans. Gagnrýni þeirra á stefnu ríkisstj. hér er í anda hans. En samtímis vinna sterk öfl í Austur- Evrópu að því að breyta gamla Stalínskommúnismanum einmitt í átt til þess kerfis, sem ríkir í Vestur-Evrópu og hér á landi, en burt frá því kerfi, sem Alþb.- menn boða hér. Vilja leiðtogar Alþb. lýsa því yfir, að stefna sú, sem Tékkóslóvakar vildu taka upp, hafi verið rétt? Þeir þurfa aðeins að segja já eða nei. Ef þeir segja já, er það í ósamræmi við boðskap þeirra hér, því að stefna sú, sem Tékkóslóvakar vildu taka upp, voru spor frá Stalínskommúnismanum í átt til þeirrar frjálslyndu stefnu í efnahagsmálum, sem hér er fylgt. Ef þeir segja nei, opinbera þeir sig enn einu sinni sem afturhaldsmenn í efnahagsmálum.
Ég lýk þessum orðum mínum með því að endurtaka það, sem ég hóf mál mitt á, að það er þakkarvert, að stjórnarandstaðan skuli hafa óskað eftir þessum umr. Ég er viss um, að þær eiga eftir að upplýsa þjóðina um, hvað í raun og veru ber á milli stjórnarflokka og stjórnarandstöðu varðandi stefnuna í efnahagsmálum. Ég er viss um, að þær leiða í ljós, að stefna stjórnarandstöðunnar er úrelt afturhaldsstefna, sem ekki mundi eyða því atvinnuleysi, sem nú er hér og megináherzlu þarf að leggja á að útrýma. Hún er úrelt afturhaldsstefna, sem mundi tefja hagvöxt, en ekki stuðla að bættum lífskjörum. Stefna stjórnarflokkanna er hins vegar sú nútímastefna í efnahagsmálum, sem fylgt er í nálægum viðskiptalöndum okkar, reyndist auka hagvöxtinn í góðærinu og mun nú reynast bezta tækið til þess að mæta þeim gífurlegu erfiðleikum, sem yfir þjóðina hafa dunið, og sigrast á þeim.